Leita í fréttum mbl.is

"Hinsegin flóttamenn á leið til Íslands


Félags- og húsnæðismálaráðherra og utanríkisráðherra (Eygló Harðardóttir og Gunnar Bragi Sveinsson)hafa samþykkt tillögu flóttamannanefndar um móttöku fimm hinsegin flóttamanna frá Simbabve, Úganda og Kamerún og sex manna fjölskyldu frá Afganistan.
 
Móttökusveitarfélög flóttafólksins eru Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbær.
 
Tillaga flóttamannanefndar um móttöku fólksins byggist á samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 10. september síðastliðnum (Var ekki Jóhanna örugglega hætt þá?) þar sem ákveðið var að taka annars vegar á móti hinsegin fólki og hins vegar konum í hættu frá Afganistan, alls 10 – 14 einstaklingum.
 
Flóttamannanefnd skoðaði umsóknir flóttafólks sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lét nefndinni í té.
 
Reykjavíkurborg verður móttökusveitarfélag hinsegin flóttafólksins og hefur því átt aðkomu að 
málinu með flóttamannanefnd. Ein kona er í hópi flóttafólksins, hinir fjórir eru karlmenn. 
 
Öll eiga þau sameiginlegt að hafa flúið heimaland sitt vegna ofsókna sem þau hafa orðið fyrir."
 
Þetta segir í Fréttatímanum.
  
Hverjir skyldu verða fegnastir? Íslendingar? Fólkið? Fólkið í löndunum sem það kemur frá?
 
Búast menn við því almennt að hinsegin fólk frá Afríku muni samlagast Íslendingum á skemmri tíma en einhverjum kynslóðum? Eða megum við treysta því að kynvilla sé yfirleitt ekki arfgeng eins og Sigurður Þórarinsson benti á ? Því verði vandamál af þessum innflytjendum endanleg? Kemur til greina að láta hinsegin flóttamenn njóta algers forgangs yfir aðra flóttamenn?
 
Hver voru vandamál kvennanna frá Afgahnistan? Er hægt að fá þau upplýst? Koma  eigimenn með þeim og börn? Koma frændur og vinir síðar?
 
Hvað skyldu vera margar milljónir kvenna í Afgahnistan sem nú bíða og kvíða endurkomu Talibana?Er Ísland nógu stórt fyrir allt þetta fólk? Og Ingibjörg Sólrún farin til rólegri svæða.
 
Hvað eru ofsóknir vegna kynvillu? Hverjir ofsækja þetta hinsegin fólk? Hvernig?
 
 Hverjir eru í "flóttamannanefnd". Hvernig komast menn í hana? Getur maður sótt um starf? 
 
Eru ekki allir yfir sig ánægðir með endalausa stjórnvisku okkar landsfeðra? Sem eru ekki einusinni lengur  hinsegin heldur rétteigin. Eða hvaða orð hefur íslensk málnefnd um þá sem eru ekki hinsegin?  
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 3418398

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband