6.6.2014 | 23:34
Salan á Landsvirkjun og lagning sæstrengs
milli Íslands og Evrópu er Ágústi H. Bjarnasyn verkfræðingi og frænda mínum hugleikin þann 20.maí s.l.Hann segir svo á bloggi sínu:(þessi bloggari feitletrar að vild)
Ráðherra vill skoða sölu á Landsvirkjun. Fyrir andvirðið á að reisa spítala. Fyrirsjáanlegt er að eftir áratug, þegar búið verður að greiða niður skuldir af nýjum virkjunum, mun Landsvirkjun mala eigendum sínum gull. Nýir eigendur munu græða á tá og fingri. Gott fyrir þá, en ekki mig.
Ráðherra vill einnig skoða lagningu sæstrengs til Englands. Annar ráðherra, Charles Hendry, fyrrverandi orkumálaráðherra Bretlands, er á fullu að fjármagna verkefnið. Hefur bara sísona tekið að sér að stjórna málum á Íslandi. Skynsamir menn sjá að dæmið mun aldrei ganga upp fyrir okkur. Hver mun græða? Ekki ég.
Fyrir nokkrum árum var Landsíminn seldur ásamt öllu dreifikerfinu. Andvirðið átti að renna til nýs Landspítala og Sundabrúar. Símapeningarnir reyndust bara loft. Kannski var hugmyndin að spítalinn yrði uppblásinn eins og íþróttahúsið í Hveragerði og Sundabrúin loftbrú? Ég tapaði heilum spítala og heilli brú yfir hafið.
Fyrir nokkrum árum voru bankar ríkisins seldir nýjum eigendum. Annar eigandinn fékk lánaða peninga fyrir sínum banka í hinum bankanum, og öfugt. Þeir áttu nefnilega ekki krónu. Allt reyndist þetta loft og blaðran sprakk með miklum látum. Ég tapaði miklu af ævisparnaðinum og lífeyrissjóðurinn skerti eftirlaun mín um tæpan helming. Guð blessaði víst Ísland, en það dugði ekki til"
Af hverju velta fjármálaráðherrar því ekki fyrir sér hver áhrifin á ríkissjóð yrðu ef hann myndi sækja inneignir sínar í skattgreiðslum til lífeyrissjóðanna, bæði héðan af sem hngað til? En ríkið á meira en þriðjung af öllum inngreiðslum í lífeyrissjóðina.
Er þetta leggjandi á þessa brjóstumkennilegu menn í stjórnum lífeyrissjóðanna að vera að braska með allt þetta fé sem þeir eiga að ávaxta með 3.5 % í það minnsta fyrir ríkið?
Þetta sama ríki sem greiðir meira en þetta í vexti af lánum sínum á meðan? Af hverju neyðum við þessa menn til að leika óligarka sem sitja yfir hvers manns diski í öllum stærri fyrirtækjum landsmanna?
Er ekki þessi stöðuga sjóðasöfnun með langt yfir 10 % af allri launaveltu landsmanna ekki orðin svo galin að það verði að hugsa málin upp á nýtt?
Er ekki kominn tími fyrir New Deal að hætti Roosewelts? Eru ekki svona vangaveltur um að selja bröskurum veitufyrirtæki almennings og leggja sæstreng yfir hafið orðin að einhverri tegund af nýfrjálshyggju sem verður löskuðu vinstra liðinu sá lífelexsír sem getur hugsanlega vakið það frá dauðum?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:38 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Kæri Halldór.
Það er beinlínis rangt hjá fránda þínum Ágústi H. Bjarnason að símapeningurinn hafi verið loft.
Hann lá lengi inni á reikningi í Seðlabankanum á nafni ríkisins.
Það var jartðfræðineminn og flugfreyjan sem eyddu þessum peningum all snarlega í SJóvárbjörgun og sparisjóðabjörgun einkavina jarðfræðinemans úr kjördæmi hans og víðar sem nutu símafjármunanna auk þeirra fjármuna sem fengust við sölu ríkisbankanna.
Þetta átt þú að geta fundið í ríkisreikningi sem á að liggja fyrir á netinu.
Hitt er rétt hjá frænda þínum Á.H. Bjarnason að núna rykfellur þessi ágæta bankabók frá tíð Davíðs forsætisráðherra og Geirs H Haarde forsætisráðherra, en á þeirra tíma var þessi banakabók bólgin mjög af fjármunum þar til ótuktirnar komust í hana. Hún er því eintómt loft nú á dögum.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.6.2014 kl. 17:52
Cacoethes,
auk þú leti mína og finndu þessar færslur fyrir okkur í ríkisreikningum svo að við sjáum þetta svart á hvítu.
Halldór Jónsson, 8.6.2014 kl. 12:12
Og sco man ég ekki heldur að þetta hafi verið rætt á lansfundi frekar en að flokkurinn hafi lofað þjóðaratkvæði um framhald aðildarviðræðnanna
Halldór Jónsson, 8.6.2014 kl. 12:14
Það eru fleiri en Hrafnkell Freysgoði sem þurfa að passa sig
Halldór Jónsson, 8.6.2014 kl. 12:15
Hér má á bls. 7 í „yfirlit 2“ um áhrif þess að ríkið fékk ríflega 66.000.000.000, inn í ríkiskassann. Ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu að fyrir þann hluta t.d. sem kom í erlendum gjaldeyri, yrði notað til greiðslu á skuldum ríkisins erlendis :
http://www.fjs.is/media/rikisreikningur/RR-2005-heild.pdf
Hér má sjá í sölu eigna á bls. 158
http://www.fjs.is/media/rikisreikningur/Rikisreikn-02.pdf
Séryfirlit 9 bls. 156
http://www.fjs.is/media/rikisreikningur/Rikisreikn-01.pdf
Sala eigna bls. 43 :
http://www.fjs.is/media/rikisreikningur/RRheild2000.pdf
Bls. 156 :
http://www.fjs.is/media/rikisreikningur/Rikisreikn-03.pdf
Bls. 45 :
http://www.fjs.is/media/rikisreikningur/2004rikisreikningurheild.pdf
Vafalaust vantar eitthvað, en hér er grunnurinn. Allt til viðbótar þessu mun vera á síðum eins og hér á bls. 74 árið 2008 sem sýna innistæður í Seðlabanka :
http://www.fjs.is/media/rikisreikningur/RR-2008-R.pdf
Það er bara að fletta ;)
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 9.6.2014 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.