19.6.2014 | 21:38
"..en vér höfum allir ein lög og einn sið
því að það mun satt vera: ef vér slítum lögin, þá slítum vér friðinn."
Svo mælti Þorgeir Ljósvetningagoði árið 1000. Sá hann sem var, að í óefni stefndi ef hér í landi skyldu vera fleiri lög en ein og fleiri trúarsiðir en einn. Hann sá það greinilega fyrir sér til hverra óhappa slíkt myndi leiða. Hann hefði ekki undrast afleiðingar eftirgjafanna sem allstaðar blasa nú við um hinn vestræna heim með innflutningi framandi trúarbragða og villimannlegra siða.
Líklega hefði hann undrast fjölmenningarstefnuna og trúfrelsi það sem keyrt er ofan í landsmenn af nomenklatúrunni sem hér ræður öllu án þess að hafa verið til þess útnefnd. Þessum sem nóbelsskáldið nefndi Guðjón bak við tjöldin.
Nú á dögum er búið að slíta varnaðarorð Ljósvetningagoðans úr öllu samhengi. Nú skal á þá hlustað fyrst sem krefjast trúfrelsis til að viðhafa annan messusöng og særingaþulur en hin kristna þjóðkirkja notar. Önnur trúfélög skulu fá lönd og óðul til jafns við þjóðkirkjuna sem auðvitað á allt annað tilkall til þeirra vegna forsögunnar.
Síðan skal fyrst á þá hlustað sem heimta frelsi til að láta einhver önnur lög gilda í landinu en þau sem Alþingi hefur sett. Þar næst skal þessum fólki leyft að byggja hof fyrir goð sín og blóta þau fyrir opnum tjöldum þó að fyrirgangurinn hneyksli meirihluta íbúanna og valdi þeim ónæði. Almenningi er jafnvel ætlað að hlusta á framandlegt söngl á útlenskum tungum hvort hann vill eður eigi samkvæmt ákvörðunum þeirra sem ekki láta spyrja sig né kjósa. Daglega skal almenningi ætlað að horfa á hallarbyggingar í útlenskum stíl sem innfæddum er meinaður aðgangur að nema innvígðir séu og helst karlkyns.
Ljósvetningagoðinn sá nauðsyn þess að leyfa sérvitringum að iðka svokallaða trú sína. En trú kemur til sögunnar þar sem heilbrigðri skynsemi sleppir. Þessvegna taldi hann rétt að leyfa þeim mönnum að blóta á laun ef það athæfi truflaði ekki aðra.
Hversvegna getum við núlifandi ekki sagt við nnflytjendendur frá framandi þjóðum að þeir geti haft trú sína útaf fyrir sig og blótað á laun ? Forsætisráðherra Ástralíu sá ástæðu til að segja við innflytjendur þar í landi að Ástralir væru kristin þjóð og að þeir skyldu semja sig að áströlskum lögum og siðum eða fara til síns heima ella.
Af hverju erum við að láta einhverja menningarvita segja okkur og ráða því fyrir okkur, þó við vitum langflest mun betur, að allt sé vitleysa sem Þorgeir Ljósvetningagoði sagði á sinni tíð:
" En vér höfum allir ein lög og einn sið því að það mun satt vera: Ef vér slítum lögin, þá slítum vér friðinn."
.
og þykir mér það ráð, að láta þá eigi ráða, er hér gangast með mestu kappi í móti og miðlum svo mál millum þeirra, að hvorir tveggja hafi nokkuð til síns máls, en vér höfum allir ein lög og einn sið, því að það mun satt vera: ef vér slítum lögin, þá slítum vér friðinn.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Hvort sem þér líkar það betur eða verr, er pólitískur rétttrúnaður þessa dagana bundinn við boltaliðin. Látum okkur ekki eitt andartak dreyma um að beina gagnrýni í átt að boltahofunum þeirra. Sjálftakan virðist stundum vera þar óbeisluð. Löngu liðnir, gömlu dagarnir sem Bjartmar kvað um: "Mér er sagt að þegja meðan fréttatíminn er"
Þorkell Guðnason, 20.6.2014 kl. 00:23
Sæll Halldór Jónsson.
Má ég spyrja, nákvæmlega HVAÐ er verið að "keyra ofan í" þig? Er verið að þvinga þig til einhvers - annars en þess að umbera það að annað fólk á Íslandi hagi sínu lífi eins og það kýs SJÁLFT, en ekki eins og ÞÚ kýst að það hagi sínu lífi??
VErðurðu fyrir miklum óþægindum af moskunni við Bústaðaveg? Eða þeirri í Ármúla? Þekkirðu yfir höfuð EINHVERN sem hefur orðið fyrir óþægindum vegna múslima á Íslandi?
Veistu til þess að það standi til að útvarpa "söngli" úr fyrirhugaðri moskubyggingu við Miklubraut? Veistu til þess að þér verði meinaður aðgangur? Ertu mikið að sækja kirkjubyggingar sértrúarsafnaða??
Getur verið að ENGINN hafi orðið fyrir óþægindum vegna múslima á Íslandi, en að það séu múslimar á Íslandi sem þurfi að þola alls konar aðkast og fordóma frá gömlum íhaldsömum körlum sem gjamma á Útvarpi Sögu, hér á moggabloggi og í aðsendum greinum í Mogga??
Svo held ég þetta endalausa hæp um Ljósvetningagoðann sé komið út úr öllu korti. Hann er örugglega ofmetnasti Íslendingur allra tíma.
Einar Karl, 20.6.2014 kl. 00:45
Alltaf sama sagan hjá ykkur Karl,enginn hefur orðið fyrir óþægindum.! Hafði nokkur Íslendingur orðið fyrir óþægindum af “Hell Angels”? ,en Jóhönnustjórn rak þá með harðri hendi héðan frá landi okkar.-- how com --?
Helga Kristjánsdóttir, 20.6.2014 kl. 01:55
Helga,
viltu skilgreina alla múslima, 1.5 milljarð mannkyns, sem alþjóðleg glæpasamtök?
Hvað er það sem er ólöglegt sem þú óttast að íslenskir múslimar taki upp á?
Einar Karl, 20.6.2014 kl. 09:06
Gott að skerpa á þessu Hlldór. Þorgeir ljósvetningargoði var vitur maður og úrskurður hans á alþingi 999-1000 var í reynd upphaf á því sem kallað er trúfrelsi í dag og finnst víð í stjórnarskrám ríkja íslenska stjórnarskráin er í fullu samræmi við úrskurð hans. þett hefur reynst okkur og mörgum öðrum þjóðum gott skipulag trúmála.
Eftir að Vinstrimönunum var sparkað úr stjórnarráðinu með skömm, eru þeir einfaldlega komnir í heilagt stríð gegn lýðveldi íslands. Þeir vita sem er, að fólkið sem er núna í landinu mun aldrei kjósa þá aftur til valda.
Hugmyndfræðin er sú að allt sé skárra en núverandi ástand, ef hægt er að rífa niður samfélgið með því að byggja moskur og dæla inn skríl til koma á illindum meðal þegnanna þá er það vatn á millu vinstrimanna og leið til að skipta um þjóð í landinu sem hugsanleg mundi ekki kjósa til hægri. Stjórnarskra lýðveldisins er í raun aðal óvinur vinstrimanna í þessu stríði og því reynt að halda henni utan við umræðuna, eins og hún skipti ekki máli, og þeir sem síðan vitna í hana eða íslensk lög bara sakaðir um þjóðrembing og rasisma.
Guðmundur Jónsson, 20.6.2014 kl. 10:41
Guðmundur Jónsson:
mér finnst það kristaltært dæmi um rasisma í þínum málfutningi að tala um að "dæla inn skríl".
Í alvöru, hvaða SKRÍL ertu að tala um? Alla nýbúa á Íslandi, eða bara múslima sem hingað flytjast?
Hvað áttu við þegar þú talar um að "dæla inn", ertu að vísa til þess þegar flóttamönnum er boðið að koma, eins og t.d. þegar palestínskum flóttakonum var boðið að flytjast til Akraness? Eru þær konur "skríll" í þínum huga?
Í mínum huga ert þú rasisti Guðmundur Jónsson.
Einar Karl, 20.6.2014 kl. 11:24
Karl,ég legg út frá rökum þínum,um að enginn (á Íslandi) hafi orðið fyrir óþægindum af mosku við Bústaðaveg eða Ármúla,get bætt við í Skógarhlíð. Ef ég kýs að taka dæmi, ættir þú að skilja að ég er að vísa í fyrirbyggjandi aðgerðir stjórnvalda, vegna vitneskju þeirra um vel þekkt vandamál sem fylgja ,,Hells Angels,, Sá er mergur málsins,en ekki þótt þetta dæmi kæmi mér í hug á sprettinum líktist músslimum. Þannig gæti ég haldið áfram,en til hvers,? Allt sem ég nefndi yrði þá gert að viðmiði við þá sem Samfó leikur sér með til að egna okkur kristna íslendinga.
Helga Kristjánsdóttir, 20.6.2014 kl. 12:22
"Einar" Ég sagði að hugmyndafræði vinstrimann væri sú að dæla inn skríl og kom á illindum meðal þegnanna. Það er að segja, leiðtogar vinstrimanna líta á þetta sem skríl. Ekki ég.
Guðmundur Jónsson, 20.6.2014 kl. 12:29
Það er auðvitað ekki rétt að gefa innflytjendum sérréttindi umfram íslendinga, eins og til dæmis palestínsku flótta konurnar.
En auðvitað á að afnema trúfrelsi og banna trúarbrögð, eins og Einar Karl vill afnema rit og tjáningarfrelsi
Kveðja frá Seltjarnarnesinu.
Jóhann Kristinsson, 20.6.2014 kl. 12:31
Merkileg að mannréttindaverjandinn skuli hlífa mér við rasistastimplinum. Honum til fróðleiks, uppfylli ég fullkomlega skilyrðin. "Rasistar eru ætíð af evrópskum ættum, yfirleitt aldir upp við kristna siði á hátíðum og tyllidögum". Andúð mín á dekri við þá sem trúa á boltliðin, er væntanlega ekkert síður rasismi, en moskumoldviðrið, sem var notað sem "smjörklípa" í nýliðinni kosningabaráttu.
Þorkell Guðnason, 20.6.2014 kl. 12:45
Merkileg að mannréttindaverjandinn skuli hlífa mér við rasistastimplinum. Honum til fróðleiks, uppfylli ég fullkomlega skilyrðin. "Rasistar eru ætíð af evrópskum ættum, yfirleitt aldir upp við kristna siði á hátíðum og tyllidögum". Andúð mín á dekri við þá sem trúa á boltaliðin, er væntanlega ekkert síður rasismi, en moskumoldviðrið, sem var notað sem "smjörklípa" í nýliðinni kosningabaráttu.
Þorkell Guðnason, 20.6.2014 kl. 12:47
Moldviðrið var skapað til að valda hneysklun sem það er, jafnt hjá venjulegu fólki sem sækir kirkjur,skírðust,fermdust og giftust.
Helga Kristjánsdóttir, 20.6.2014 kl. 13:13
Einar Karl
Það er verið að keyra ofan í mig fjölda innflytjenda sem hvorki ég né þjóðin almennt kæra sig um. Það er mála sannast að við vitum hvað vissum innflytjendum fylgir sem dæmin sanna frá löndunum í kring um okkur. Þessvegna er Scehengen keyrt ofan í mig og ég get ekki fengið að greiða atkvæði um það hvort ég vil það eða ekki. Heldur ekki um það hvernig tekið er á hælisleitendum sem ég er ósammála þó að Hanna Birna hafi sagst ætla að koma til móts við mínar skoðanir.
Ef að við myndum takmarka fjölda innflytjenda sem við gætum gert ef við værum ekki í Schengen gætum við minnkað þessa eftirsókn eftir lóðum og húsum undir moskur.
Múslímar koma úr öðrum menningarheimi en við sem fyrir erum. Þeir hafa siði sem okkur finnast ógeðslegir og sumir glæpsamlegir. Þessvegna vill fólk ekki sjá þá hingað. Þeir færa okkur aðeins vandamál en ekkert jákvætt. Þeir valda okkur ónæði hvað sem þú segir.
Þú ræðst á Þorgeir Ljósvetningagoða. Ég met hann mikils og hef á hasn speki meiri mætur en þinni eins og hún birtist mér gjarnan. Þó er alls ekki allt slæmt um þig .
Það er til dæmis þarft af þér að vekja athygli á að ríkið er að moka peningum í allskyns trúarhópa sem enga ástæðu ber til nema útúrsnúningar og frasar um trúfrelsi. Sem á ekki rétt á sér á Íslandi nema sem launhelgar skv. foroðningu Ljosvetningagoðans. Hells Angels ættu jafnvel að fá styrki eftir sömu forskriftum eða AlQueda. En skv. þinni bloggsíðu líta þessi fjárútlát út svona:
Óháði söfnuðurinn 3.312 2.633
Fríkirkjan í Hafnarfirði 6.221 4.561
Sjónarhæðarsöfnuðurinn 57 39
Vottar Jehóva 688 544
Bahá'í samfélagið 399 317
Ásatrúarfélagið 2.382 2.122
Krossinn 601 489
Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu185 149
Vegurinn 632 479
Orð lífsins . .
Kletturinn - kristið samfélag . .
Búddistafélag Íslands 964 743
Fríkirkjan Kefas 121 94
Fyrsta baptistakirkjan 26 20
Félag múslima á Íslandi 481 317
Íslenska Kristskirkjan 273 206
Boðunarkirkjan 119 103
Samfélag trúaðra 32 26
Zen á Íslandi - Nátthagi 111 103
Betanía 185 141
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan 563 438
Serbneska rétttrúnaðarkirkjan 276 202
Fjölskyldusamtök heimsfriðar og sameiningar21 17
Reykjavíkurgoðorð 26 25
Heimakirkja 91 89
SGI á Íslandi 165 138
Menningarsetur múslima á Íslandi 360 237
Kirkja hins upprisna lífs 35 33
Alþjóðleg kirkja Guðs og embætti Jesú Krists31 27
Catch The Fire (CTF) 206 153
Vonarhöfn 26 20
Himinn á jörðu 39 39
Bænahúsið 38 26
Emmanúel baptistakirkjan 26 20
Hjálpræðisherinn trúfélag 42 30
Ísland kristin Þjóð 16 15
Zuism 2 3
Siðmennt 612 585
Endurfædd kristin kirkja 1 1
Postulakirkjan Beth-Shekhinah 20 19
Ég held að að það mætti strika yfir þetta allt saman þar sem þetta kemur skattlögðum almenningi ekkert við.
Halldór Jónsson, 20.6.2014 kl. 13:22
Ómenntaður lýður frá þriðja heiminum sem ekkert kann nema kórönsk fræði á ekkert erindi sem innflytjendur á ÍSlandi. Þeir verða bara byrði og auka vanda þeirra sem höllum fæti standa í okkar þjóðfélagi. Ég vil hafa þjóðina norræna að stofni til alveg eins og hesta-og kúakynið okkar og þessvegna máttu kalla mig rasista eins og þig lystir.
Halldór Jónsson, 20.6.2014 kl. 13:26
Mikið ofboðslega hlýtur þú að vera vond manneskja Halldór
Jón Bjarni, 20.6.2014 kl. 13:47
Gott innlegg hjá þér Halldór, þó ég viti ekki alveg hvort við séum alveg sammála um heildarmyndina. En er það ekki allt í lagi?
Ég held að Ísland sé ríkari þjóð að fá hingað fólk frá öðrum þjóðum. Forfeður okkur fóru víða, ekki satt! Þú lærir með því að fara og búa í öðru landi, og við lærum m.a. með því að fá til okkar fólk. Þýsku konurnar sem komu hingað eftir stríð höfðu góð áhrif á mannlífið hér og það hafa fleiri innflytjendur gert. Rétt eins og aðrar þjóðir eru farrnar að gera í vaxandi mæli, er að við þufum líka að gera kröfur til innflytjenda. Þeir læri tungumálið og þeir aðlagist samfélagi okkar. Merkel kanslari Þýskalands hefur tjáð sig mjög skýrt um þessi mál, og eru þó Þjóðverjar með umburðarlyndustu þjóðum í Evróðu hvað innflytjendamál varðar. Er það nasismi eða fastitmi, hjá Merkel. Því halda engir fram sem kynna sér málið.
Þó að við séum ekki 100% sammála um öll mál, getum við rökrætt þau og nálgast hvorn annan í skoðunum e.t.v. Aðrir segja eins og Jón Bjarni : ,,Mikið ofboðslega hlýtur þú að vera vond manneskja Halldór" Það upplifi ég fyrst og fremst sem skoðun heimsk manns, í merkingunni maður sem lítið hefur farið, en e.t.v. er hann líka bjáni.
Sigurður Þorsteinsson, 20.6.2014 kl. 15:37
Ég segi bara vá.
Moggabloggið er greinilega undirlagt af rasistum. Og ritstjórn bloggsins hampar þeim duglega.
Ég skil vel að margir hafi lagt á flótta héðan af blogginu síðustu vikurnar.
Einar Karl, 20.6.2014 kl. 15:48
Halldór,
mér finnst þú blanda öllu saman í illa þefjandi graut.
Fólk fær ekki rétt til búsetu á Íslandi á grundvelli Schengen-samstarfsins.
"Ómenntaður lýður frá þriðjaheiminum" fær ekki neinn sjálfkrafa rétt til að koma hingað og setjast að, hvorki í gegnum Schengen, EES eða aðra milliríkjasamninga, sem þér virðist almennt vera í nöp við.
Já svona viðhorf kalla ég og miklu fleiri rasisma, ég veit ekki hvort ég nenni að útskýra fyrir þér af hverju, ef þú skilur það ekki, kominn á þinn aldur.
Hugsaðu nú samt um eitt. Hvaðan heldurðu að fólkið komi sem skeinir okkur, háttar og klæðir á elliheimilum? Hvaðan heldurðu að fólkið komi sem verkar fiskinn sem sjómenn draga í land? Hvaðan heldurðu að fólkið komi sem skúrar 90% af öllu atvinnuhúsnæði á Íslandi? Eða fólkið sem eldar oní þig mat ef þú leggst á spítala? Býr um spítalarúmið þitt og þvær sængurfötin? Skúrar heima hjá fólki sem nennir ekki að gera það sjálft?
Innflytjendur koma hingað og vinna baki brotnu, störf sem barnabörnin þín vilja ekki vinna, Halldór.
Svo fá þeir ekkert nema skít og skömm frá gömlum körlum eins og þér.
Einar Karl, 20.6.2014 kl. 15:58
Ja hérna Einar Karl
það er laglegt ef þú þarft að flytja þriðja heims fólk til að skeina þig í ellinni. Hvernig var þetta á tímum foreldra þinna? Það hefur bara jækkað hjá þér kaupið svo mikið að þu þarft ekki lengur að leita í betri störf. Ameríkanar eru búnir að taka upp þrælahald aftur þar sem eru illegal immigrants.
Hefuðru vitneskju um hvað kólumíukonurnar vinna mikið eða hvar eða palessínsku flótakonurnar.? margt Asíufólkið sem hingað kemur er jafnvel hámenntað en fær ekkert nema líkamleg störf vegna tungumálsins.
Viltu fá arabiska hest inn í landið á kostnað íslenska hestsins? Viltu setja Geddur í Þingvallavatn? Ef þú vilt það ekki þá ert þú rasisti alveg eins og ég.
Fólk sem kemur inn á Schengen ólöglega í gegnum Ítalíu eða austurríkin kemur hingað.
Svo Moggabloggið er verra en annað blogg? Ætli það sé eki Davíð að kenna?
Hefur þú engan metnað fyrir þjóð þína? Er alþjóðahyggjan og fjölmenningarhneigði í þér með þeim hætti að þú sæir ekkert athugavert víð það að flytja inn 20.þúsund Afríkumenn til búsetu á Suðurlandi eins og krataprófessorinn lagði til? Hefði slíkt engin áhrif á þig?
Halldór Jónsson, 20.6.2014 kl. 18:14
Mér finnst þessi kona hérna orða mjög vel það sem ég tel vera stóra áhyggjuefnið í öllu þessu, sjá: https://www.youtube.com/watch?v=qwhs02qaUTY
Mofi, 20.6.2014 kl. 20:12
Guðmundur Jónsson skrifar:
Á hverju í ósköpunum byggir þú þessa skoðun?! Frámunalega heimskulegt komment hjá þér.
Einar Karl, 20.6.2014 kl. 21:47
Halldór,
ég er ekkert að tala um hvað ég vilji eða vilji ekki, ég er að tala um Ísland Í DAG. Ætli séu ekki hér eitthvað um 20.000 innflytjendur. Þetta er fólkið sem vinnur störfin sem ég taldi upp, og mörg fleiri störf.
Þetta fólk hefur lagt mikið á sig til að komast hingað, það leggur mikið á sig til að sjá sér og sínum farborða og skapa sér betra líf. Það leggur mikið til íslensks samfélags, auðgar okkar samfélag og gerir fjölbreyttara. OG það hugsar um okkur á elliheimilunum!
Þetta fólk á skilið annað en að gamlir kverúlantar hrauni yfir það og kalli ljótum nöfnum, kallar sem sitja heima allan daginn fyrir framan skjáinn og rausa og SJÁ EKKI RAUNVERULEGA SAMFÉLAGIÐ Í KRINGUM SIG heldur búa sér til einhvern ímyndaðan veruleika þar sem útlendingar eru tortryggðir, sérstaklega ef þeir eru ekki af "norrænum kynstofni".
Hvenær hefur innflytjandi eða "nýbúi" eitthvað angrað þig? Hvenær talaðir þú síðast við innflytjanda á Íslandi??
Einar Karl, 20.6.2014 kl. 22:09
Einar Karl, þú veldur mér engumv onbrigðum þó þú svarir engu efnislega af spurningum mínum til þín heldur hraunir yfir mig og hvað ég geri allan daginn.(ég vinn ennþá þó ég sé gamall rasisti ef það skiptir einhverju) Málið er það Einar minn, að ég held að þú viljir ekki hafa vandamál í þinni fjölskyldi þó ég sé nógu góður til þess. Ég þekki marga innflytjendur og umgengst þá. Það skiptir máli hvaðan þeir koma og hvaða menningarbakgrunn og menntun þeir hafa. Sumir taka venjulegum Íslendingum langt fram um margt. En þá eru þeir oftar en ekki Pólverjar sem eru svipaðri okkur en ýmsir aðrir. Svo eru aðrir sem bara vilja nota okkar kerfi og við getum ekki notað vegna menningarfjarlægðar. Hvernig heldurðu að væri að hafa Egil Skallagrímsson í vinnu hérna í nútímanum? Heldurðu ekki að hann þyrfti einhverja þjálfun áður en hann teldist nútímamaður?
Halldór Jónsson, 20.6.2014 kl. 23:48
Jón Bjarni,
já ég veit að ég er ekkert sérstakt góðmenni miðað við marga engla í mannsmynd sem ég hef kynnst. En ég vil rækjta kynni við góða einstaklinga en ekki massa af framandi fólki. Hvað ætlir þú yrðir flinkur að stjórna svona 20 manna gengi sem væri að koma beint frá bardögum í Írak þessa dagana blóðugir upp að öxlum? Ætli þú rifir mikinn kjaft?
Halldór Jónsson, 20.6.2014 kl. 23:51
Hverju reiddust goðin þá er börðust innbyggjar áratugum saman á 13. öld? Þetta voru allt kristnir menn uppá Kaþólska siðar vísu og Máríudýrkendur. Einn siður.
Að öðru leiti veit eg ekki betur en hér ríki einn Sjallasiður sem barinn hefur verið ofan í innbyggja með tilheyrandi sukki, spillingu og sjallasmámennaskap.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.6.2014 kl. 01:39
Ómar Bjarki Kristjánsson, sem nauðsynlegt er að hafa með svo þér verði ekki ruglað saman við hinn ágæta jarðfræðing og alnafna að fornöfnum, þú átt greinilega bágt og þér hlýtur að líða illa dags daglega. Ég hef heyrt að sálfræðingar geti hjálpað við kvíðaraskanir í ýmsum tilvikum. Það hlýtur að vera erfitt að vakna til þess sem þú kallar Sjallasiðar með sukki spillingu og sjallasmámennaskap. sem væri mjög fróðlegt syrir mig að fá nánar skilgreindan. Láttu mig endilega vita hvernig þér gengur.
Halldór Jónsson, 21.6.2014 kl. 09:29
Á ég að trúa því, að mannréttindafrömuðir þeir sem telja sig þess umkomna að úrskurða Halldór vin minn Jónsson, "rasista", treysti sér ekki til þess að senda mér lika fúkyrðaflauminn?
Er fyrirlitning mín á áhangendum boltatrúar og óskeikulli aðdáun þeirra á klaninu sem þeirra liði tilheyrir, virkilega ekki næg ástæða til að úrskurða mig rasista?
Ég ítreka að ég uppfylli öll almenn skilyrði til þess: Hvítur - gagnkynhneigður, af evrópskum ættum - alinn upp við kristna siði á hátíðis- og tyllidögum!
Hvaða ómennska er það sem veldur því að þið kallið mig ekki líka rasista og vonda manneskju - Einar Karl og Ómar Bjarki? ... eða er það bara venjulegur ræfildómur ómerkilegra áróðursgjammara fyrir flokksstarfið?
Þorkell Guðnason, 22.6.2014 kl. 00:51
Keli minn, þú ert svo alþekktur mannvinur og gáfnafantur að það þorir enginn í þig. Þeir treysta sér bara til að hrekkja minnimáttar eins og mig eins og þau voru hrekkjusínin í den.
Halldór Jónsson, 22.6.2014 kl. 11:01
Undarlegur misskilningur og vanþekking gegnsýrir umæðuna um staðsetningu moskunnar.
Islam eða kritstindómur eru ekki kynþættir (rasar), það eru trúarbrögð.
Þetta hélt ég að allir vissu, en greinilegt er á umræðunum að svo er ekki. Bulla endalaust um eð hinir og þessir séu rasistar ! Hvaða kynþátt eru menn með í huga?
Ágúst H Bjarnason, 22.6.2014 kl. 14:32
Já frændi skarplega athugað.
Það er í tísku að dragar menn í dilka eftir því hvaða sjónarmið í óskyldum málum menn aðhyllast. Ég hef orðið var við það að maður er jafnvel stimplaður hægri-öfgamaður og erindreki heimskapítalismans ef maður efast um að allt sé rétt sem Al Gore og þeir réttrúuðu í loftslagsvísindunum segja um hnattræna hlýnun, Hefur þú rekist á það að vinstrisinnar eru meiri talsmenn gróðurhúsaáhrifa og hnattrænnar hlýnunar en aðrir?
Halldór Jónsson, 22.6.2014 kl. 19:09
Alveg hárrétt á Ágústi, andstaða við Íslam er ekki rasismi. Fjölmiðlar þurfa hérna að hjálpa til og leiðrétta þessa vitleysu að tala um rasisma þegar kemur að andstöðu við ákveðin trúarbrögð.
Mofi, 22.6.2014 kl. 19:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.