Leita í fréttum mbl.is

Hver mærir hinn

að vanda í þætti Hallgríms Thorsteinssonar. Alger samstaða næst um að loka Reykjavíkurflugvelli og nauðsyn þess að byggja þegar í stað hraðlest til Keflavíkur frá Reykjavík fyrir hundrað milljarða í það minnsta. Maður á heimtingu á því að stíga upp í hraðlest eins og í London segir konan sem ég næ ekki hvort er ein eða fleiri. Hrannar B. segir að Flugvöllurinn hefði verið kosinn burt fyrir tíu árum og það ætti að standa. Gott til þess að vita að greinilega hefur ekkert breyst hjá honum.

Einkennilegt hversu sammála og einsleitt fólk velst í þennan vikulega þátt sem ég er eiginlega hættur að hlusta mikið á vegna þessa einkennis Hallgríms stjórnandans. Ég heyri sjaldnast rætt um eitt einasta  atriði sem ég er sammála. Sem bendir til að þáttakendur komi yfirleitt af öðrum kanti þjóðlífsins en ég og séu nokkuð einsleitt valdir.

Þetta fólk í dag  ræddi um afnám gjaldeyrishafta undir forystu nefndar undir leiðsögn Lee Bucheits nokkurs sem það hafði fyllsta traust á. En Lee þessi vildi leggja okkur undir Icesave lll  á sínum tíma að mig minnir. Þetta fólk sá auðvitað enga leið aðra en að þetta mál yrði að vinna náið með stjórnarandstöðunni. Án þes að koma með nokkurn skilning eða tillögu til lausnar á vandanum virtist það sammála um að núverandi stjórn réði ekki við verkefnið þó nauðsynlegt væri.(Af hverju kom þetta fé hingað í byrjun? Var það ekki í leit að grænni högum? Þarf bara ekki að gefa þessu fé  svo vel að að það vilji ekki fara? Fé og fé leitar nefnilega alltaf í skjólið.)

Á sama tíma er Hrannar B. viss um að tóna verði niður verðtrygginguna þó hann virtist gera sér einhverja grein fyrir orsökum þess að hún hafi verið sett  á. Konurödd vill hætta að hlaupa á eftir hagsmunaaðilum þó að greinilega sé við hagsmunaaðila að eiga í sambandi við gjaldeyrishöft. Ef spyrlar í svona þáttum vildu nefna nöfn þáttakendanna oftar í þáttunum yrði þeta viðráðanlegra fyrir hlustandann En það skptir þá líkega ekki máli hjá þessum þáttastjórnanda þar sem boðun stefnunnar er líklega meira atriði en ekki hverjir segi þetta eða hitt. 

Síðan er rætt um stöðu Seðlabankastjóra. Einn þáttakandi vill leita út fyrir landsteinana í valnefnd. Hrannar ver skiljanlega áframhald setu  Más í embættinu sem einu réttu leiðina.Það verði að meta hæfni valnefndar svo að fólk eins og lögreglustjóri og Ólöf Nordal lendi ekki þar inni. Lögreglustjóri nýtur samt talsverðs almenns trausts þessa hóps vegna annarra mannkosta en það eitt er ekki talið nóg í lokuðu bakherbergi þar sem vali bankastjórans fer endanlega fram.

Konurödd ver Má vegna þess að ríkja verði traust á milli ....Víst getur hann segir Hallgrímur. Sem sagt okkur gengur illa að ná tökum á fagmennsku þó að Seðlabankastjórar séu nú skipaðir vandaðar en áður. (Sem segir sitt um álit þessa hóps á fyrri Seðlabankastjórum, lífs eða liðnum.) Að þau skuli gefa sig í þetta þau Stefán og Olöf segir kona(Margrét Sanders af  Morgunblaðinu?)og  bendir nú á að til þess að vera talinn hlutlaus þá verður viðkomandi að vera vinstrimaður. Már er langbestur úr flugvélinni segir Hrannar enn að vonum og hefur þá komið vali þeirra vinstri manna vel til skila.

Mikið lifandis skelfing er gott að vita til þess að RÚV heldur áfram á þeirr braut að rækta hlustleysisskyldu sína með því að láta sem flesta hlutlausa vinstri menn tala í svona þáttum og sammælast þar um að mæra hverjir aðra og samflokksmenn sína.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 3418398

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband