Leita í fréttum mbl.is

Hann byrjaði

segja krakkarnir þegar áflogahanar eru skildir að.

Ísraelar eru úthrópaðir vegna grimmdarlegra gagnaðgerða sem þeir grípa til gegn eldflaugaárásum Hamas.  Þessi múslímsku samtök fá að vera óáreitt af yfirvöldum í Gaza og dunda sér við það að skjóta heimagerðum rakettum úr íbúðahverfum yfir á Ísrael. Þó að raketturnar séu víst ekki góðar ná þær að drepa einn og einn Ísraela.

Það er nokkuð ljóst að að tilgangurinn með skothríðinni frá Gaza er ekki endilega að drepa marga Ísraela per se með svona ófullkomnum vopnum.  Það er greinilegt að þeir eru frekar á eftir því að fá fram gagnaðgerðir Ísraela. Sem  hægt er að nota gegn Ísrael í áróðurstríðinu. Þeir eru eins og gæjarnir sem fara á ball til að fiska slagsmál með því að gefa þeim minnstu tilviljanakennt á kjaft. Þeir vita ofurvel að það er erfitt að berjast við flugur með fallbyssum. Svo þegar þeim tekst að fá konur og börn drepin í stórum stíl á Gaza þá er þeim sjálfum skemmt. Og Íslendingar halda fundi til að fordæma Ísrael fyrir grimmdarverk.

Yfirvöld á Gaza virðast ekki gera neitt til að stoppa Hamas í þessu atferli heldur láta sér vel lynda. Þau eru greinilega mjög meðvirk í allri atburðarásinni og nota hryllinginn af gagnaðgerðunm sér til framdráttar og styrkjabeiðna frá "alþjóðasamfélaginu" .  Selja líf eigin barna og þegna samviskulaust í áróðursskyni. Ef þau hefðu raunverulegan áhuga á að afstýra þessum þjáningum þá myndu þau hafa samvinnu við Ísraela um að stöðva Hamas. En þau gera það ekki og því fer sem fer.

Hér á Íslandi hlaupa menn til og halda fundi til að fordæma Ísrael. Ekki Hamas sem sannarlega byrjaði. Og svo byrjar söngurinn um að taka við flóttamönnum til Íslands. Það sé mannvonska að taka ekki á móti börnum frá Gaza.

Mikael  Torfason er einn þeirra sérfræðinga sem sem vilja að Ísland opni allar gáttir fyrir óskilgreindum innflytjendum. Hann segir í leiðara í Fréttablaðinu 9.júlí s.l. m.a.:

"....Nicholas bjargaði börnunum og kom þeim í fóstur hjá fjölskyldum víðs vegar um Bretland. Hann hélt skrá yfir börnin og hvert þau fóru. Þessa skrá komst konan hans svo í og tók að senda fólkinu bréf sem endaði svo í fyrrnefndum sjónvarpssal. Þetta einstaklingsframtak minnir okkur á hvað við flest gerum í raun lítið til að hjálpa bræðrum okkar og systrum. Víst er að ekki skortir verkefnin og tækifærin til að drýgja hetjudáð og bjarga börnum frá óöld. Við Íslendingar teljum okkur í þessu samhengi vilja fólki almennt vel en gleymum því oft þegar á hólminn er komið. Í vor tilkynnti Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra reyndar að við ætlum að taka á móti tíu til fimmtán manns frá Sýrlandi, helst börnum, en því miður kemur sú viljayfirlýsing okkur seint á blað yfir sannkallaða mannvini. Miðað við höfðatölu er þetta sambærilegt því að Svíar tækju á móti ríflega fjögur hundruð flóttamönnum. Það gera þeir ekki. Þeir hafa síðustu tvö ár tekið á móti 26 þúsund manns frá Sýrlandi. Ef við Íslendingar vildum standa jafnfætis Svíum þyrftum við að taka á móti 900 flóttamönnum til viðbótar við þessa tíu eða fimmtán. Við rétt klórum upp í 1,6 prósent af því sem Svíar hafa afrekað á þessu sviði. Og þeir virðast hvergi nærri hættir.

 

Yfir milljón sýrlensk börn eru á flótta en átökin í föðurlandinu hafa nú staðið yfir í um þrjú ár. Talið er að í heild séu um þrjár milljónir barna í verulegum vandræðum á þessu svæði. Þau búa ekki við öryggi og matur og lyf eru af skornum skammti. Við getum auðvitað ekki bjargað þeim öllum. Við getum heldur ekki leyst úr vandræðum fyrir botni Miðjarðarhafs. Kannski getur enginn mannlegur máttur leyst úr þessari flækju og það er eðlilegt að upplifa mikinn vanmátt þegar hugað er að hörmungum í heiminum. En við getum samt gert betur en að bjóða tíu eða fimmtán manns hæli á Íslandi.

 

Flugfarþegum er kennt af flugþjónum að setja súrefnisgrímuna fyrst á sjálfa sig og því næst á börn sín, á þeirri forsendu að farþegar geri lítið gagn falli þeir í ómegin. Vissulega verðum við að huga hér að innviðum og stefna að því að vera í stakk búin til að geta rétt út hjálparhönd. Aðstæður flóttafólks eru hins vegar slíkar, borið saman við þá velmegun sem við búum við hér, að það má heita ómerkilegt að blanda umræðu um hjálparstarf sem þetta saman við þjóðarstolt og þjóðerniskennd. Jaðrar við mannvonsku. Við ættum hæglega að geta tekið á móti nokkur hundruð börnum frá Sýrlandi þótt margt megi betur fara á Íslandi. Því verður nefnilega seint trúað að það sé eitthvað í fari Íslendinga sem geri okkur minni manneskjur en Svía eða Sir Nicholas Winton. "

Við þetta hef ég margt að athuga. Í fyrsta lagi geta aðrar þjóðir ekki borið ábyrgð á borgarastríðum eða ofsóknum glæpamanna  í einu landi eða afleiðingum þess. Taldi einhver sér skylt að taka á móti Gyðingum frá Þýskalandi? Vildi Píus Páfi í Róm taka við þeim?  Vildu Íslendingar taka við þeim? Eru innanlandsátök einhversstaðar sjálfgefið vandamál Íslendinga og Svía? 

Canada velur innflytjendur til landsins eftir því hvað þeir koma með handa Canada. Peninga, færni og menntun. Af hverju taka þeir ekki við tugum þúsunda flóttamanna frá Gaza? Af hverju eiga Íslendingar að gera það frekar sem geta ekki ótrýmt fátækt í eigin landi? 

Ef um er að ræða að taka munaðarlaus börn til ættleiðingar á Íslandi gegnir hugsanlega öðru mál. Leysa auk þess vandamál barnlausra og þeir  innflytjendur myndu falla að íslensku samfélagi í anda Nikulásar Wintons.  En flóðbylgjur múhameðskra vígamanna sem hafa orðið undir í blóðugum bardögum eru bara annað mál. Þeir leggja ekkert til íslensks samfélags nema vandræði.

Hvort sem þeir byrjuðu eða einhverjir aðrir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll kæri Halldór. Við megum ekki láta lækninn og Hamasvininn og fréttastofur villa okkur sýn.

Þetta eru engar rakettur sem Hamas er að skjóta. Við sem skjótum upp rakettum um áramót vitum að vkið erum heoonir nái þær 50-75 metra í loft upp án þess að fara á hausinn við að kaupa þær.

Hamas fær eldflaugar sínar frá Íran mikið til. Þær eru engar rakettur. Þeir miða á tvenn skotmörk helst í Ísrael og eru þangað einir 80 km að sögn fróðra.

Það er ekki Hamas að þakka að þær ná ekki alla leið, en Ísrael er með góð vopn til að skjóta þær niður í lofti, þrátt fyrir einbeittan ásetning Hamas til að myrða með þeim saklausa borgara í þúsundatali.

Þetta er lúalegt óþokkabragð vinstri pressunar og Haukssonarins Hamasvinarins til að blekkja okkur með rakettutali sínu alsaklausu.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.7.2014 kl. 04:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 3418233

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband