Leita í fréttum mbl.is

Haltu mér slepptu mér

elsku ótætis ESB. Þannig líða andvörpin og kveinin upp frá Íslandi þegar Júnkarinn af Lúxemburg tilkynnir sem svo að ekkert nýtt ríki verði tekið inn í bráð.

Ritstjóri Fréttablaðsins veinar eins og stunginn grís. Þetta eigi ekki við um Ísland. Víst séum við við það að verða teknir inn og það megi ekkert gera til að spilla fyrir upptöku Evru og létta af höftunum. Svo heldur því enn blákalt  fram að stjórnarflokkarnir hafi lofað þjóðaratkvæði um að halda viðræðunum áfram en ekki um neitt annað.  Það tekur því  ekki einu sinni að mótmæla lyginni í þessu málgagni Samfylkingarinnar frekar en hjá Göbbelsi gamla. Þá kemur hún bara aftur á morgun og hinn líka.

ESB sinnarnir eiga svolítið bágt og kannski eigum við ekki að vera stríða þeim neitt. Í blöðum dagsins stendur líka að atvinnuleysið á Íslandi sé nú komið í 2.5% meðan það er 10.5 % í Evrópusambandinu. Seðlabankinn kaupir Evrur sem aldrei fyrr, Íslendingar flykkjast á sólarstrendur og landið er að drukkna í ágangi ferðamanna.  Það verður að fara að stækka landið og búa til fleiri "Sehenswürdigkeiten" fyrir Deutscharann og láta hann borga inn í Evrum en ekki íslenskum hundraðköllum.

Ég held bara að ég sé farinn að vorkenna Samfylkingunni. Hvað getur hún nú  fundið sér tl dundurs þegar leiknum "Haltu mér slepptu mér" sleppir?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er eins og enginn skylji Junkerinn og túlki meiningu hans að eigin geðþótta, utan utanríkisráðherra ,sem vill skoða hvort yfirlýsing hanns gefur tilefni til að afturkalla bull-umsóknina. Ég túlka orð hanns sem sjálfvirkan sleppibúnað. Drífa sig Gunnar Bragi.

Helga Kristjánsdóttir, 19.7.2014 kl. 01:22

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já drífa sig! Takk Helga

Halldór Jónsson, 19.7.2014 kl. 12:57

3 Smámynd: Elle_

Já, þau eiga verulega bágt í Össurarfylkingunni og í lygasögubleðli þeirra.  Fyrst hurfu þau næstum af yfirborðinu í apríl í fyrra og nú þetta kjaftshögg frá dýrðarveldinu.   En aldrei mun ég vorkenna þessu frekjuliði.

Elle_, 20.7.2014 kl. 12:00

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Og ekki líður Valgerði Bjarnadóttur betur. Júnckers sagði ekkert um okkur og okkar viðræður annað en að halda mætti þeim áfram eins og hún les þetta. Hún er náttúrlega í angist um þetta eina mál Samfylkingarinnar.

Halldór Jónsson, 21.7.2014 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3418232

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband