Leita í fréttum mbl.is

EES og Schengen

birtist okkur núna með því að banna okkur að kaupa ryksugur að vali. Í stað kraftmikillla ryksugna frá Bandarikjunum og öðrum almennilegum framleiðendum, 1800 w og þar yfir , eigum við núna að kaupa kraftlaust 1600 watta drasl frá Evrópu. 

Hvað erum við eiginlega að gera í þessum samnningi? Fengum við eitthvað í okkar hlut nema einhverja 10-20  % lækkun á sérverkaðri síld  á sínum tíma?  Erum við ekki hinsvegar búnir að fá yfir okkur af sérvisku Evrópusambandsins þar sem möppudýr rembast nætur og daga við að unga út nýjum tilskipunum eins og að banna mattar perur og skipta upp raforkuvinnslunni í framleiðslu  og dreiifngu. En sú aðgerð stórjók kostnað heimilanna og jók á sóun sem allir geta séð og fundið en færði okkur fátt í staðinn.

Flækjan og kostnaðaraukinn í flugmálum við upptöku JAR-OPS er alþekkt hjá einkaflugmönnum með gríðarlegri aukningu pappírs- og skoðanavinnu. Þannig má telja endalaust. Þess í stað ættu ráðamenn í hverju máli að spyrja sig hvort tiltekið frumvarp auki eða minnki flækjustigið. En þeir gera nú yfirleitt þveröfugt við það.

Er  EES nokkuð verulega annað en kröfugerð um viðskiptaþvinganir  byggð á hagsmunum evrópskra frameliðenda, sem standa höllum fæti gagnvart framleiðendum vestan hafs? Evrópustaðalrnir eru uppsuða úr bandarískum stöðlum sem við gátum alveg verið án.  Schengen samningurinn  er enn önnur óholl afleiðing sem hótar að ganga að íslensku þjóðerni og þjóðfélagskipan dauðu með óheftu innflæði hælisleitenda.

En hælisleitendur eru víst flestir múslímar af óskyldum uppruna við okkar þjóð sem ólíklega  munu samlagast íslensku þjóðfélagi nokkurn tímann eða lesa fornritin.  Því eru þeir líklega flestir  hingað komnir dæmdir til að leggjast upp á okkar sósíal þar sem þeir falla svo treglega  inn í samfélagið.  Við eigum hugsanlega eftir að velta því fyrir okkur að hreinlega kaupa þá af okkur með því að borga þeim fyrir að fara heim aftur eins og Enoch Powell velti fyrir sér á sinni tíð í Bretlandi.

Að taka upp vegabréfaskylduna aftur er lífsnauðyn fyrir þessa þjóð ætli hún að komast af í útflæði vaxandi fátæktar og útrræðaleysi frá Afríku og Arabaheiminum og svo er atvinnuleysið í ESB ekki á útleið og menn þar fara að líta hingað.

Hælisleitendur komast inn í hriplekt Evrópusambandið og eiga því greiða leið hingað þar sem okkur virðist fyrirmunað að gera farmflytjendur ábyrga fyrir að fara að reglum..

Ég get ekki séð að við höfum hætishót að gera lengur í þessu EES-samstarfi og eigum að losa okkur úr því óholla faðmlagi.   Þetta Evrópusamband er um flesta hluti einskis megnugt nema til að framleiða gagnslausan pappír með tilskipunum sem fást ekki ræddar á Alþingi Íslendinga. sem hefur þó yfirleitt haldið vöku sinni.

Ekki gat Evrópusambandið slökkt elda í bakgarðinum hjá sér í Balkanstríðinu og sýndi þarmeð að það getur ekki tekið ákvörðun um neitt sem skiptir máli að gera fljótt. Ekkert getur sambandið þess vegna gegn Pútín sem gerir hreinlega gasalegt gys af máttlausum hótunum úr þeirri átt. Sem betur fer virðast Íslendingar hafa áttað sig á  falsspámönnum krata og Vinstri Grænna sem ætluðu að lauma landinu inn um bakdyrnar í Brussel á síðasta kjörtímabili. 

Ég held að við getum sleppt EES-samningnum og Schengen án þess að skaðast á því.  En líklega verður hagnaðurinn af þessu fljótlega áþreifanlegur  og við verðum aftur frjáls þjóð í frjálsu landi utan tollabandalags smáveldanna í austri. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góður Halldór sem oftar!

Mæltu þetta manna heilastur.

Jón Valur Jensson, 14.8.2014 kl. 23:48

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Heyr heyr. Ég tek undir með bloggvini mínum Jóni Vali,

Við þurfum að losa okkur undan bæði Schengen og EES.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 15.8.2014 kl. 01:26

3 Smámynd: Sandy

Ég get ekki verið meira sammála, það er okkur nauðsynlegt að verja okkar landamæri og sekta þá aðila um háar fjárhæðir sem flytja fólk á milli landa ólöglega.

Sandy, 15.8.2014 kl. 07:45

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta báðir tveir fornvinir mínir svo og Sandy húsmóðir.

Það er eiginlega merkilegt með þetta Schengen að það virðist ekki vera útbreiddur stuðningur við það hvorki innan lögreglunnar né almennings. Það eru hinsvegar aðeilar eins og Björn Bjarnason og Halldór Ásgrímsson sem komu þessu á sem verja það. Þjóðinni virðist um megn að fara gegn skoðunum slíkra afarmenna sem virðast njóta þess að skoðanir þeirra séu lög á breiðum svæðum í þjóðlífinu.

Svo auðvitað gerist ekkert þó við séum að nöldra svona útí hornum.

Halldór Jónsson, 15.8.2014 kl. 08:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband