Leita í fréttum mbl.is

Samkeppniseftirlitið

er með 25 manna herdeild af sérfræðingum og stjórum. Stundum fréttist af sektargreiðslum fyrirtækja upp á par hundrað milljónir og þá á almenningur að verða voða glaður.

En hvað gerist í framhaldi? Þeir menn sem störfuðu í þessum "brotlegu fyrirtækjum" eru bara mættir aftur, annaðhvort á sama stað eða nýjum og "samkeppnin" heldur áfram. Nú ætti það að veraa ljóst hverjum meðalsnotrum að fyrirtæki fremja ekki glæpi né hafa einbeittan brotavilja eins og VISA, EUROCARD, Húsasmiðjan eða BYKO.  Það hljóta að vera menn sem taka ákvarðanirnar en ekki fyrirtækin sem eru sektuð þegar upp kemst.

Mér barst í hendur blað sem hann  Ámundi gefur út og fjallar um hringamyndunina í matvöruversluninni. Þar er lýst hvernig Arion banki, undir forystu þrælvans manns í samkeppnismálum og afskriftameistara, spinnur vef með fákeppnisaðilum um það göfuga markmið að græða á almenningi. Allt undir glöggu auga Samkeppniseftirlitsins sem hefur aðeins kliðmjúkan texta uppi um hættu á "stjórnunartengslum" og eitthvað geti "leitt af sér blokkamyndun" og blablabla. Aðalatriðið er að það er ekkert gert sem almenningur hefur hag af.

Vestan hafs myndu flestir af aðalleikurunum í þessum fléttum vera uppteknir annarsstaðar og ekki vera í aðstöðu til að brugga svona launráð  fyrir almenning, sem fær að borga auk þess að fá að lesa reyfarafréttir í blöðum af svívirðunni sem gengur nætur og daga. Þar eru nefnilega gerendurnir sóttir til saka fyrir glæpaverkin þótt hagnaðurinn sé sóttur í fyrirtækin.

Allt um það sýnist Samkeppniseftirlitið ver einskis nýt stofnun sem kostar almenning bara salt í sárin og mætti því loka að skaðlausu. Gagnsemi hennar er ekkert sem neinu máli skiptir fyrir neytandann. Hér vantar meiri lögreglu, dómara og tugthús en ekki meira kjaftæði. Varð einhver var við að eitthvað gerðist við frásögn Baldurs í Múrbúðinni?

Samkeppniseftirlitið virðist vera meira upptekið af því að fylgjst með atburðarásinni heldur en að koma í veg fyrir hana og skiptir þess vegna engu máli fyrir almenning því hann  borgar á endanum fyrir allt saman.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Athyglisvert að allar sektargreiðslur fyrir brot á samkeppnislögum renna til ríkissjóðs. 

Fyrirtækin sem kæra og dæmast hafa rétt fyrir sér fá engar bætur.  Sennilega fá þau heldur ekki málskostnað sinn endurgreiddan - hvað þá skaðabætur,  sem þýðir að ekkert þeirra nennir að efna tvisvar til slíkra "vandræða". 

Kolbrún Hilmars, 15.8.2014 kl. 17:40

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta er skarplega athugað Kolbrún. En sérð þú virkilega fyrirtækin sem sökudólga í þessum málum? Hvað með stjórendurna? Bera þeir enga ábyrgð eins og Hann Höskuldur bankastjóri sem var tvívegis uppvís að einbeittu broti í starfi hjá VISA. Visa fékk sekt an hann fék bankastjórastól.

Halldór Jónsson, 15.8.2014 kl. 20:57

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Halldór, ég sá nú eiginlega fyrirtækin sem fórnarlömb, þ.e. eigendur/hluthafar sem sitja uppi með kostnaðinn af skaðabótamáli fyrir hönd ríkisins.

Hins vegar tel ég það sjálfskaparvíti ef fyrirtækin  ráða stjórnendur sem eru hálfvitar. 

Kolbrún Hilmars, 15.8.2014 kl. 23:47

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Kolbún mín,

Vinur minn einn heitinn sem var Framsóknarmaður með stórum staf sagði einhverntímanna við mig að þeir verstu væri ekki hálfvitar heldur gáfuð illmenni og þá væri erfiðasat að varast. Einbeittur brotavilji kemur sektarúthlutunum ekkert við, Krimminn sjálfur sleppur og fer bara eitthvað annað meira að starfa Guðs um geim..

Halldór Jónsson, 16.8.2014 kl. 07:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband