Leita í fréttum mbl.is

Bjart framundan

er hjá Íslendingum í raun og veru þegar grannt er skoðað.

Landsvirkjun er að skila 100 milljörðum frá rekstri inn í ríkiskassann. Það er hérumbil sama og Kárahnjúkavirkjun kostaði. Skiljið þið þetta? Landsvirkjun er að græða hérumbil eina Kárahnjúkavirkjun á ári? Samt tala menn um að það eigi að selja Landsvirkjun til að borga skuldir ríkissjóðs?  Sem eru á langtum lægri vöxtum en gróðinn af Landsvirkjun? 80 milljarðar á móti hundrað þetta árið og vaxandi.Er þetta ekki stórkostleg hagfræði?

Vor ágæta stjórnarandstaða er stundum að halda því fram að íslensk heimili séu að greiða niður raforkuna fyrir stóriðjuna í landinu.  Sem notar einhver 90 % af allri orkunni á meðan heimilin greiða hérlendis meira en helmingi minna fyrir rafmagnið sitt en meðal Evrópubúi.  Hversu gáfað getur fólkið orðið?  Að selja Landsvirkjun? Hverjum? Jú lífeyrissjóðunum? Eiga aðrir svoleiðis peninga? En þeir skulda samt ríkinu milljarða í framtíðarskattgreiðslum? Breytir það engu?

Álverðið er núna komið í 2100 dollara á tonnið.  Það er bara að hækka því það á að fara að framleiða hundrað milljónir bíla á næsta ári sem taka til sín meira ál með hverju módeli.Og svo hefur olían hefur lækkað um helming þannig að það verðu ódýrara að eignast bíl á næsta ári en nokkru sinni fyrr, fiska eða fljúga til sólarlanda.

Fiskur verður eftirsóttari með hverju ári. En hann er hættur að keyra heimilin í kaf hvenær sem verðsveifla verður á erlendum mörkuðum. Ferðamenn streyma til landsins sem aldrei fyrr og moka inn meiri gjaldeyri en fiskurinn.

Alþingismenn virðast ekki geta klárað gjaldtökumálin til verndar íslenskri náttúru öðruvísi en að gera málið óleysanlegt með eftirlitsstöðvum og passakoðurum um allt land. Og hafa svo fríkeypis fyrir Schengen liðið til viðbótar.

Auðvitað er nefskattur á alla Íslendinga og svo inngöngugjald fyrir alla útlendinga, austan að eða vestan frá, sem koma til landsins það rétta og einfaldasta. Því sem stjórnmálamenn ætla svo ekki að stela í annað eins og útvarpsgjaldinu, geta þeir meðal annars úthlutað til nauðsynlegra framkvæmda eins og byggingar salerna sem vantar sárlega víðast hvar við ferðamannastaði okkar.

Þá vill alls kyns gáfufólk opna hér allar gáttir fyrir innflutning framandi þjóða á íslenskan sósíal auk þess að fjölga hælisleitendum sem allra mest. Í stað þess að halda upp á íslenskt þjóðerni, menningu og sögu,  þá er eins og sumu fólki sé í nöp við hugtökin í alþjóðahyggju sinni og Evrópusambands dýrkun.  

Já landið okkar er fagurt og frítt.  Það er eiginlega meiri spurning hvort við mannfólkið séum samboðin landinu?  En um það getur maður stórlega efast á stundum þegar maður hlustar á það hversu gáfað sumt fólkið getur orðið.                                                           .

En í heildina tekið  finnst mér að bara bjart sé framundan í íslensku þjólífi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eðvarð Lárus Árnason

Sæll Halldór það er ávallt gaman að lesa bloggið þitt og ekki síðra að hlusta á þig messa hjá Pétri á Útvarpi Sögu.Það er einnig fróðlegt að ráða í skilaboðin sem þú sendir út, og sendir sérstaklega formanni Sjálfstæðisflokksins. Formaðurinn hefur oftast leiðtoga talað um að hagstætt gæti verið að selja hluta Landsviskjunar til Lífeyrissjóða.Vonadi les formaðurinn rétt í skilaboð þín, og hættir við hugleiðingar sínar um sölu Landsvirkjunar  Bkv. cool

Eðvarð Lárus Árnason, 1.12.2014 kl. 23:29

2 Smámynd: Rafn Guðmundsson

ja - framtíðin verður allavega björt þegar við losnum við þessa ríkisstjórn.

Rafn Guðmundsson, 1.12.2014 kl. 23:42

3 identicon

Það birti yfir daginn sem síðasta ríkisstjórn fór frá!

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 2.12.2014 kl. 08:36

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk Eddi lögga.Bjarni talaði um að selja hluta. En selur meður eitthvað sem gefur af sér meira en það sem maður skuldar?

Rafn Guðmundsson, þú hefur líklega ekki fengið niðurfellingu?

Já svo sannarlega Rafn Haraldur.

Halldór Jónsson, 2.12.2014 kl. 09:03

5 Smámynd: Kristmann Magnússon

Já það fyrsta sme mér datt í hug þegar ég las þetta blogg þitt "Já skipstjórinn ófullur í dag" ! !  Gott blogg hjá þer í dag, EN samt segir þú nú berum orðum að þessi ferðamannapassi eða gjaldtakan af honum muni ekki skila sér á rétta staði en ert mjög ánægður með hann.  Það verður nefnilega eins með þennan skatt eins og svo marga aðra - t.d. útvarpsgjald - að ríkið á eftir að "stela" stærsta hlutanum af þesu gjaldi og það á ekki eftir sð akila sér að fullu þagað sem það ætti að fara.

En auðvitað finnst þe´r þetta allt gott og blessað vegna þess að íhaldið þitt leggur þetta til -  Æ fáðu þér bara einn - vertu ekki að reyna að skrifa þegar þú ert edrú ! ! !

Kristmann Magnússon, 2.12.2014 kl. 17:53

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Þá verður nú lítið skrifað því hlýtur að vita að ég er sífullur þó að það sé búið að snúra þig.

Hinsvegar segi ég nú ekki að ég styðji náttúrupassanna heldur nefskatt. Það þarf eitthvað að gera í þessu með mígildin og fleira og þá er hann skárri í framkvæmd. En reyndin er nú sú að bensíngjaldið fór í lambakjötið en ekki vegina í den

Halldór Jónsson, 2.12.2014 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418284

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband