11.2.2015 | 02:10
Reykjavíkurflugvöllur
var á dagskrá á Sprengisandi á sunnudaginn. Ömurlegt var að hlusta á EssBjörn flytja þann boðskap að meirihlutinn í Borginni hafi þá hugsjón hæsta, að byggja íbúðir í Vatnsmýrinni en loka flugvellinum sem allra fyrst. Vísa síðan í einhverja Rögnunefnd sem sé að finna nýtt flugvallastæði í Reykjavík svo að þeim klafa sé lyft af innanlandsfluginu sem á því hvílir samkvæmt einhverri skilgreiningu hans sjálfs.
Enginn af viðmælendunum virtist gera sér ljóst að Rögnunefndin er varla neitt annað en Pótemkín-tjöld Dags B. Eggertssonar sem hann bjó til í þeim tilgangi að sleppa við að þurfa að ræða flugvallarmálið fyrir kosningarnar vegan yfirgnæfandi andstöðu borgarbúa við lokun vallarins. Settist enda sjálfur í nefndina sem tryggir það að vitræn niðurstaða er ekki væntanleg frá þessum skapningi hans sjálfs utan um þá köllun hans að tortíma flugvellinum til þess að byggja íbúðir sem hafa nauðsynlega nálægð fyrir 101 liðið við búllurnar í Kvosinni.
Þegar þeir fjölbýlishúsagrunnar verða allir grafnir mun líklega þurfa að dæla miklum sjó í Tjörnina til þess að halda vatnsborðinu á sínum stað og sá sjór mun óhjákvæmilega breyta öllu gróðurfari á svæðinu sem við þekkjum núna og fuglalífi.
Nú er búið að framlengja skilafrest nefndarinnar til miðs árs sem bendir til að ekki sé auðvelt að komast að niðurstöðu sem sé Degi Bé þóknanleg. Því löngu er vitað að hvorki er nýtt flugvallarstæði finnanlegt né hefur nokkur ráð á því peningalega að flytja Reykjavíkurflugvöll. Það sem ég undrast sjálfur er sú óskarpskyggni annarra nefndarmanna en Dags Bé að láta bjóða sér svona pólitíska misnotkun eins og allur þessi blekkingarleikur var settur upp af einum nefndarmanninum. Þvílíkur félagi er þessi Dagur Bé.
Sá klafi sem hvílir á Reykjavíkurflugvelli sem EssBjörn lýsir er settur saman af visntri-meirihlutanum í Reykjavík til fjölda ára. Allsherjar framkvæmdabann er á vallarsvæðinu svo að þar er enn hírst í setuliðsbröggum frá stríðsárunum þrátt fyrir að þaðan sé flogið millilanadaflug austur og vestur. Þessi klafi er smíðaður af EssBirni sjálfum undir hergöngulögum úr púkablístrum Samfylkingarinnar sem hefur verið staðföst í vallarfjandskap sínum allt frá dögum Ingibjargar Sólrúnar og R-listanum hennar illræmda sem þreifst á því að mata Framsókn á Orkuveitukrásum sem endaði auðvitað í gjaldþroti þeirrar stofnunar með hálfkaraðar hitaveitur víða um land frá útþenslustefnu Alfreðsáranna, þar sem risarækjur skipuðu veglegan sess í orkuflórunni. I stað alls þessa hefði verið hægt að hefja Reykjavíkurflugvöll til vegs og virðingar og láta hann moka ómældum fjárhæðum til Borgarinnar með aðflugi einkaþotna til ráðstefnuhalda í Reykjavík og auknu utanlandsflugi Reykvíkinga.
Nú blasir við algert úrræðaleysi í hitaveitumálum Sunnlendinga eftir gjaldþrot útrásar Orkuveitunnar sem sést best af því að næg orka er í eigu hennar fyrir austan Hvítá en fyrirtækið þykist enga burði hafa til að deifa henni austur yfir Þjórsá. En allt er heitavatnslaust frá Hellu og austur úr og þar sárvantar hitaveit.
Vinstri menn geta yfirleitt ekkert nema talað og talað um allskyns félagslegar lausnir eftir allskyns kynlegum hugmyndum sínum þar sem flest rekst á annars horn. Þeim er yfirleitt gersamlega fyrirmunað að skilja fjármál eins og skuldasöfnun þeirra í Reykjavík sýnir best.
Þetta fólk var kosið frá borgarstjórn í síustu kosningum. En tilviljunin sendi þeim Píratakaftein sem var hægt að kaupa ódýrt með einni mannréttidanefnd sem varla nokkur veit til hvers er. Allavega mat Framsókn þessa nefnd ekki meira en að tilnefna Sjálfstæðismann til að sitja í henna fyrir sig. Enda hefur EssBjörn lýst Framsókn óstjórntæka vegan skoðana á lóðaúthlutun til múslíma.
Flugvallarmálið er því í mínum augum hreinn farsi frá upphafi til enda og Rögnunefnd Dags Bé sem hann stjórnar sjálfur finnst mér bara brandari til áframhaldandi vefsláttar keisaravefaranna Dags Bé og EssBjarnar.
Reykjavíkurflugvöllur sjálfur er jafn nakinn og vinalaus eins og hann hefur verið allar götur síðan að íhaldið hætti í afgerandi stjórnmálabaráttu í Reykjavík fyrir langalöngu síðan. Þó að allur almenningur landsmanna vilji völlinn kyrran á sínum stað, þá ætla kumpánarnir EssBjörn og Dagur Bé. að berja sinn vilja fram í trássi við alla aðra.
Sannir jafnaðarmenn báðir tveir, vefarar keisarans.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:11 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Betra flugvallarstæði finnst hvorki í landi borgarinnar né í næsta nágrenni.
Þjóðin hefur heldur ekki efni á að byggja nýjan flugvöll.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 11.2.2015 kl. 10:38
Hvað með Álftanesið Halldór? Er ekki nokkuð góð aðstaða til lendinga þar. Að vísu virðast þeir sem þar setjast niður eiga erfitt með að slíta sig þaðan. Heldurðu að Dagur Bé og Essbjörn leggðu í deilu við héraðahöfðingjann þar um flugvallarstæði?
Kjartan Sigurgeirsson, 11.2.2015 kl. 11:27
Hérna er kjarni málsins í flugvallarmálinu:
http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1380464/
Jón Þórhallsson, 11.2.2015 kl. 11:52
Menn eiga að læra af þessu að kjósa ekki vinstri flokka. Þeir unnu í þágu útlendinga í síðustu ríkisstjórn (Brusselherra, Breta, Hollendinga, hrægamma) og iðka nú skemmdarverk á gatnakerfi borgarinnar og Reykjavíkurflugvelli.
Þá eru nú Bretar skárri, þeir gáfu okkur þennan flugvöll – og Kaninn gaf okkur Keflavíkurflugvöll.
Jón Valur Jensson, 11.2.2015 kl. 20:10
Allar borgir hafa garða- útivistarsvæði og svæði þar sem fólk fær frið fyrir argaþrasi götunnar.
Nema á Íslandi.
Flugvöllurinn er lifæð allra- lika Reykvikinga sem GÆTU SLASAT ÚTI Á LANDI !
Erla Magna Alexandersdóttir, 11.2.2015 kl. 20:26
Ljóst er að verulegur hluti landsins undir flugvellinum er í eigu ríkisins og verður ekki afhent borginni án samþykkis Alþingis, þannig eru leikreglurnar. Auðvitað mun borgin mótmæla því og í krafti laga um skipulagsrétt sveitarfélaga og auðvitað harðneita að greiða krónu fyrir þetta "dýrmæta" land. Halldór, það á ekki að nota orðin "að flytja" um flugvöll, heldur að byggja nýjan sem tekur mörg ár og þá með ærnum kostnaði, sem hver á að borga? Jú auðvitað þeir sem njóta, í þessu tilfelli Reykjavíkurborg, enginn annar, enda munar fólkið sem flytur inn í blokkirnar sem reistar verða þarna ekki um svoleiðis smámuni, sem eru kannski lítill hluti af því sem það kostar að gera lóðir þarna byggingahæfar með allt að 20 metra djúpum grunnum. Svo hver hugsar um endurnar sem verða að flytja og einhver nefndi sjáarvarnargarða til þess að tjörnin fyllist ekki af sjó! Ljóst er að hugmyndin um að loka flugvellinum til þess að byggja þar blokkir er einhver arfavitlausasta hugmynd sem fram hefur komið. Marfallt ódýrara er að byggja á uppfyllingum úti í Skerjafirði og fyrir utan Ánanaust, rétt eins og Öfirsey er gerð. Svo vita þessir drengir, eins og Dagur B, að þeir verða aldrei dregnir til ábyrgðar á svona rugli.
Örn Johnson, 11.2.2015 kl. 22:25
Blanda og blekkingar?
Fjárfestar, byggingaverktakar og íþróttafélög.
Þessi blanda er þekkt í borgum og sveitarfélögum
um veröld alla.
Ef þessu er blandað saman, þá veldur það skelfingu
hjá borgarfulltrúum, borgarstjórum og pólitíkusum.
ooo
Þá er hægt að láta þessa aðila skrifa undir að björgunarbátar á skipi, séu óþarfir, bátarnir séu í flestum tilfellum aldrei notaðir.
Egilsstaðir, 12.02.2015 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 13.2.2015 kl. 00:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.