Leita í fréttum mbl.is

Hvað er Islam?

spyr Valdimar Jóhannesson í Morgunblaðinu í dag. Valdimar hefur kynnt sér Islam mjög rækilega og niðurstaða hans er sú, að trúin Islam er ekki sá þáttur sem óttast þarf heldur kennisetningar Múhameðs um daglega hegðun sem strangtrúarmenn fylgja út í æsar. Svipað var ástatt í fornöld í Gyðingalandi, þar sem ámóta svartnætti grimmdar og geðveiki er að finna í Gamla Testamentinu. Má eiginlega furða sig á að það skuli vera látið fylgja Biflíunni enn í dag svo gersamlega óskylt það er kærleiksboðskap Jésúsar.

 

Grein sína endar Valdimar svo:

 

 

" Íslam, kommúnismi og nasismi eru náskyld alræðis stjórnmálakerfi, sem miða að heimsyfirráðum. Í bili virðist hafa tekist að koma böndum á tvö síðasttöldu kerfin en íslam er nú í þriðju stóru útrásinni í þær 14 aldir sem saga þess nær til, keyrt áfram með olíuauði arabaríkjanna.

Aldrei skyldi gleymast að íslam er fyrst og fremst stjórnmálakerfi frekar en trúarbrögð. Trúarþáttur íslams hefur ruglað fórnarlömb hans í ríminu þó að hann sé með ólíkindum andstyggilegur. Með því að leyfa jihadistum að byggja hér mosku er verið að greiða fyrir yfirtöku íslams á Íslandi eins og stefnt er að og sagan sýnir okkur að hefur alls staðar gerst nema þar sem hugrakkir menn hafa snúist til varnar. Ef íslam vinnur stríðið gegn vestrænum gildum þýðir það endalok siðmenningarinnar sem hefur tekist að koma á með blóði, tári og svita. Mannkynið mun sökkva niður svartan pytt þaðan sem það á kannski aldrei afturkvæmt.

Nú ríður á að hinn frjálsi heimur standi í lappirnar og að við látum ekki dómgreindarlaust fólk ráða ferðinni. Íslam stenst engin siðferðileg viðmið og stríðir gegn allsherjarreglu og ætti því ekki að njóta trúfrelsis.

Íslam mun leiða yfir þjóðina hnignun, glundroða, fátækt, forheimskun og ofbeldi eins og alls staðar hefur gerst þar sem það festir rætur. Þeir sem vinna að framgangi íslams vinna gegn framtíðarhagsmunum Íslands. Slíkir menn eru þjóðníðingar."

 

Valdimar samsamr Islam hinum verstu helstefnum í stjórnmálum sem gengið hafa yfir heiminn. Óneitanlega er margt sem rennir stoðum yfir þessar skoðanir Valdimars. Varnaðarorð hans er því ekki hægt að afgreiða sem léttvæg og óþörf. Sérhver maður verður að hugleiða fyrir sig hvort hann vilji stuðla að framgangi Islams á Íslandi. Menn vita hvað þeir hafa en ekki hvað þeir geta hugsanlega fengið með hlutleysi.

Menn verða að vita hvað Islam er í raun og veru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvaða stjórnmálaflokk treystir þú best til að standa vörðinn?

Jón Þórhallsson, 11.3.2015 kl. 17:10

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Valdimar Jóhannesson virðist hafa yfirgripsmikla þekkingu á málefnum múslima.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 11.3.2015 kl. 22:13

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón,

Mér finnst helsi vanþekkingar og óskhyggju hvíla yfir þeimöllum. Fólkið hugsar ekki 

Halldór Jónsson, 11.3.2015 kl. 23:45

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Heimir, já ég hef heyrt til Valdemars og deili þinni skoðun

Halldór Jónsson, 11.3.2015 kl. 23:45

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég var að lesa viðtal við Nigel Farage í morgun en þar á bæ segja þeir að múslímar í Bretlandi sér fimmta aflið. Þeir vilja ekki aðlaga sig að heima menningu annarra þjóða. Hann kemur að linkind manna í þessum efnum.Ég er hræddur með þessa stefnu hér hvað þá að gefa eftir með þessar grúppur og styrkina sem er lagalegt fordæmi sem erfitt er að komast úr. Arabar halda áfram að streyma inn með hjálp alþjóða lögfræðinga.  

Valdimar Samúelsson, 12.3.2015 kl. 13:40

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Fyrirmyndin um fjölmenningarsamfélagið er alltaf USA.

Ástæðan fyrir því er sú að þangað var öllum heimilt að flytja og gefið frelsi til þess að spreyta sig.  Græða eða tapa og standa og falla með eigin framtaki.  Frelsið sjálft í hnotskurn; á eigin forsendum en ekki á kostnað annarra.

Það sem er að gerast í Evrópu núna er allt annað - eða frá öfugum enda.   Frelsi innflytjandans í leit að tækifærum er þar til þess að spjara sig á kostnað velferðarsamfélaganna sem fyrr en síðar kiknar undan álaginu. 

Hvað verður um evrópska fjölmenningu þá?


Kolbrún Hilmars, 12.3.2015 kl. 15:44

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Munurinn á USA og Evrópusambandinu er sá að Bandaríkjamenn eru þjóð með fána og dollara. Enginn Bandaríkjamaður má hafa önnur lög en bandarísk, múslími eða ekki. Það yrði ekki tekið á þeim með sikihönskum sem myndu ætla að vinna á móti Bandaríkjunum eða hjálpa óvinum þeirra.Eins og þú segir Kolbrún:"Frelsið sjálft í hnotskurn; á eigin forsendum en ekki á kostnað annara."

Mótsett því sem þú segir um ESB : "Frelsi innflytjandans í leit að tækifærum er þar til þess að spjara sig á kostnað velferðarsamfélaganna sem fyrr en síðar kiknar undan álaginu. "

Halldór Jónsson, 12.3.2015 kl. 15:54

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Elítu Evrópu var alltaf meinilla við að missa dugnaðarverkafólk sitt vestur um haf.  Sú vanþóknun bergmálar enn i dag.
Skiljanlega, því ásóknin vestur varð slík fyrir rúmum 100 árum að USA þurfti að koma sér upp eigin "Schengen" eða Ellis Island...  :)

Kolbrún Hilmars, 12.3.2015 kl. 16:35

9 Smámynd: Jón Bjarni

Segðu mér Kolbrún.. hvða með kanada, þar sem ægir saman allskonar kynstofnum, trúarbrögðum og öðru - og það alveg fullkomlega vandræðalaust? 

Jón Bjarni, 12.3.2015 kl. 19:18

10 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Gæti skýringin verið sú, Jón Bjarni, að innflytjendur hafi þar næg atvinnutækifæri?

Kolbrún Hilmars, 13.3.2015 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418293

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband