Leita í fréttum mbl.is

Jafnstöðuafli

var á Íslandsmiðum lengi áður en kvótakerfið var fundið upp.

Svo skrifar Kristinn Pétursson:

"

Erlendar þjóðir veiddu samtals 246 þúsund tonn á ári að meðaltali í 73 ár fyrir utan afla Íslendinga. Aldrei var neitt "hættuástand" skilgreint og allt í fínu lagi.

Landhelgin var svo færð út í 200 sjómílur 1975 og "stjórnun" hófst sem lofaði 500 þúsund tonn jafnstöðuafla í þorski...

8 árum eftir útfærslu landhelginnar í 200 mílur - reiknuðu "sérfræðingarnir" út neyðarástand 1983...

Komið var á "stjórnun" veiða með aflakvótum til að "byggja upp stofninn"....

Allt tímabilið síðan hefur ríkt "neyðarástand" á hverjum áratug - þorskaflinn hefur verið að rokka 35-50% af því sem var í "stjórnleysinu".

Samt eru margir að berja sér á brjóst yfir "gífurlegum árangri" - með aflann 50% af því sem var....

Hvað er að - hjá einhverjum??"

Skyldi Sjálfstæðisflokkurinn hugsa sér að endurheimta fylgi sitt með því að standa vörð um kvótakerfið í óbreyttri mynd til eilífðarnóns? Gefa makrílinn til sægreifanna þrátt fyrir 50 þúsund undirskriftir gegn því?

Hvað skyldu Píratar gera í fiskveiðistjórnunarkerfinu? Skyldi þeim finnast það best í heimi? Hvaða jafnstöðuafla skyldu þeir ákveða?

 

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Atli Hermannsson.

LÍÚ fór að "boða" jafnstöðuafla að mig minnir um aldamótin og átti hann að vera 200 þúsund tonn. Það var vegna þess að sú tala hentaði þeirra starfsemi og þeirra sölukerfi. Þeir ætluðu helst af öllu að aðlaga fiskveiðikerfið að þeirri tölu - til að búa til einskonar fyrirsjáanleika -  jafna út allar sveiflur.

Þeir sáu að þeir gátu ekki stjórnað náttúrunni -  þó að Hafró sé enn að reyna það. Það varð einhvern veginn sú breyting hjá stórútgerðinni að þeir hættu að líta svo á að við værum að eiga við breytilegan lífmassa og duttlunga náttúrunnar - yfir í að hafið væri eins konar vörugeymsla eða lager sem hægt væri að ganga inn í og ná í hráefni eftir þörfum sem hentaði framleiðslunni á hverju tíma....

Minni frameiðendur og aðrir þeir sem lausríðandi eru í kerfinu rugla þessari mynd og eru því óæskilegir og allt gert til að gera þeim lífið leitt.... enda greiða þeir á markaði sitt "hráefni" á 40% hærra verði en þeir sem boða jafnstöðuaflann og fyrirsjáaleikann.    

Atli Hermannsson., 7.6.2015 kl. 11:31

2 Smámynd: Eðvarð Lárus Árnason

Hei fyrir þér Halldór.  Ég tek innilega undir þau sjónarmið þín sem koma fram í blogginu þínu í dag.  Við sem munum stjórnarfar fyrri tíðar, skiljum ekki þetta afstöðu þess fólks sem situr á Alþingi.  Ef litið er til baka segir skinsemin aðþjóðin eigi ekki að hafa kosningarétt.Róbert athafnamaður talar um einnota Arionbanka.  Það er ekki hægt einusinni að tala um liðið sem situr á alþingi einnota. Það er handónýtt..

 yell

Eðvarð Lárus Árnason, 7.6.2015 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418443

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband