Leita í fréttum mbl.is

750 flóttamenn

frá Afríku og Mið-Austurlöndum á hverju ári er það sem "Guðjón bak við tjöldin" sem flestu ræður hérlendis, virðist vera búinn að ákveða fyrir Íslendinga. Rökin eru þau, að þá verðum við hálfdrættingar á við Svía.

 

Hvað er sýrlenskur flóttamaður?

Er það ekki maður sem vill ekki berjast með öðrum hvorum stríðsaðila í Sýrlandi? Vill ekki ganga í ÍSIS eða her Assads? Vill bara stinga af?

Hvað er lýbískur flóttamður? 

Er það ekki maður sem vill heldur ekki berjast fyrir frelsi lands síns? Vill bara stinga af? Hittir glæpamenn ISIS sem selja honum far í árabát? Sem svo einhverjir bjarga fyrir utan landhelgi og flytja til Ítalíu? 

Hvað er sómalskur flóttamaður?

Er hann ekki bláfátækur og stríðshrjáður? Veit hann ekki að komist hann til Ítalíu þá á hann möguleika á að fá betri lífskjör en hann hefur?

Af hverju erum við Íslendingar farnir að bera ábyrgð á stjórnmálaástandi í öðrum löndum? Berum við ábyrgð á ástandinu innanlands í Sómalíu, Libýu eða Sýrlandi? Af hverju eru flóttamenn þaðan okkar vandamál?

Eiga flóttamenn yfirleitt að vera til? Á að leyfa þeim að flýja til annarra ríkja? Eiga þeir ekki að vera kyrrir innan sinna landamæra og axla sína stjórnmálalegu ábyrgð? Má ekki frekar senda hjálpargögn þangað?

Menntaður innflytjandi eftir löglegum leiðum getur orðið okkar landi til gagns. Ómenntaður múslími af framandi kynstofni er mun líklegri til að valda okkur kostnaði og óþægindum.

Af hverju á að láta "Guðjón bak við tjöldin" ákveða si svona að hingað eigi að koma 750 óflokkaðir flóttamenn á hverju ári?

Eigum við hvergi 750 landvarnamenn?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Dettur þér í hug Halldór minn,að nokkur sem er þér sammála þori að tjá sig? Eftir að Sturla Jónss.,greindi frá svari Bjarkar Vilhelms.á fundi um innflytjendamál.Hann spurði hana hvort gerð hafi verið kosnaðaráætlun og svarið frá henni var að hann væri rasisti.Vona að þetta sé rétt eftir haft.

Helga Kristjánsdóttir, 8.6.2015 kl. 12:58

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það væri mér engin heiður að vera hálfdrættingur við Svía í þeirra Evrópusambands sjálfvirka fíflaskap.

Ég veit ekki betur en að Íslenskir flóttamenn hafi borgað fyrir sig farið fram og til baka og hvers veggana ætu rolur sem nenna ekki að vera heima hjá sér að fá allt ókeypis hér?     

Hrólfur Þ Hraundal, 8.6.2015 kl. 14:17

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ef það er rétt að stjórnvöld ber skylda að veita flóttamönnum húsnæði og fæði frítt þá er kostnaðurinn gífurlegur.

Ef við notum 300 þúsund á mann í 750 manna hóp bara firsta árið. 

Ef það á að taka 750 flóttamenn á ári, þá er kominn til Íslands 7500 flóttamenn á 10 árum.

það sér það allt vel menntað fólk að Ísland hefur engin efni á því að veita þessu fólki frítt húsnæði og fæði. Enda geta stjórnvöld ekki einu sinni séð fyrir öryrkjum og öldruðu folki fyrir sómasamlegu lífi í dag.

Auðvitað verður kostnaðurinn meiri en 300 þúsund á mann, svo kemur heilbrigðiskostnaður, menntakostnaður og svo framvegis.

Það er auðséð að Halldór hefur rétt fyrir sér, auðvitað á ekki Ísland að sjá um þetta fólk enda hefur landið ekki efni á þessu.

Svo er hver maður sem auðvitað vill fá alla fjölskylduna og það getur farið upp í 50 ættingjar og jafnvel fleirri 750 X 50 = 37500

Eftir 10 ár þá eru flóttamennirnir orðnir 300 hundruð 75 þúsund, hvað eru islendingar margir? 300 hundruð 30 þúsund talið með innflytjendum og flóttamönnum sem er nú þegar í landinu.

Ef það veður eitthvað úr þessari vitleysu, þá verður Ísland ekki lengur með islenskar siðvenjur mikið lengur.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 8.6.2015 kl. 14:28

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Takk fyrir velvalin orð Jóhann.

Hrólfur Þ Hraundal, 8.6.2015 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418441

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband