Leita í fréttum mbl.is

Á virkilega að borga BHM?

kaup allan verkfallstímann?

Það segir sig sjálft að þeir reikna með því sem gefnu. Annars væru þeir farnir að vinna. Tapið af 10 vikna verkfalli næst aldrei inn þó þeir fái 10 % kauphækkun strax. Það tekur þá ár að vinna hvern einn verkfallsmánuð til baka. Og þá á verðbólgan sem þeir ollu eftir að taka sinn toll.

Á að gildir sama um hjúkrunarfræðinga? Þeir hóta að fara úr landi annars. Það er eins og að þeir eigi störfin. Eru kannski fáanlegir hjúkrunarfræðingar erlendis frá? Læknar? 

Á virkilega að borga fólki kaup fyrir að vera í verkfalli?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ekki eins létt og fyrr að fá vinnu í Noregi,eftir því sem ég las um á mánud.

Helga Kristjánsdóttir, 10.6.2015 kl. 14:57

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sem skattgreiðandi mótmæli ég því að greiða þeim laun fyrir að naga neglur heima hjá sér.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 10.6.2015 kl. 15:55

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hjúkrunarfræðingar eru flestir á undanþágum og vinna fyrir kaupinu sínu.
Spurning með hina fræðingana, en það var viðtal við geislafræðing í einhverju dagblaðinu fyrir stuttu, sem undi sér vel í Noregi í vinnu sem ómenntaður aðstoðarmaður í leikskóla.  Noreg skortir greinilega ekki allar sortir af fræðingum.

Kolbrún Hilmars, 10.6.2015 kl. 17:37

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Dr. Vilhjálmur Örn hefur skrifað um að ekki er allt gull sem glóir í umræðunni um dýrðina í Noregi, sömuleiðis ræðir han vanþakklæti þessara stétta vegna niðurgreiddu námslánanna og fleira fróðleg,

Farið öll til Noregs, sem fyrst heitir einn af pistlunum hans :

http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1561811/

.

Lygaherferð íslenskra lækna heitir einn pistill hans :

http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1558624/

.

Saxi læknir á förum til Noregs heitir enn einn pistill hans :

http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1322831/

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 10.6.2015 kl. 20:26

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hafa einhvern tíma verið gerðir kjarasamningar á Íslandi, sem ekki eru afturvirkir? Þekki það ekki nógu vel, en man í svipinn ekki eftir neinum. Það leiðréttir mig vonandi einhver, sem veit betur. VR samningurinn er t.a.m. afturvirkur um mánuð og þar var ekki einu sinni farið í verkfall, svo heitið gat. Algerlega fáránlegt munstur, sem virðist vera orðið einhverskonar "norm" og verkfallsstéttir því sultuslakar í verkfalli, sama hvað það kostar í verðmætum eða mannlegri þjáningu.

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 10.6.2015 kl. 23:45

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Munurinn á Noregi og Íslandi er sá, að enginn er látinn svelta né sendur beint á götulífið húsnæðislausa í Noregi. Það hefur ekkert með þjóðartekjur/framleiðslu á mann þar í landi að gera, heldur siðferðisþroska almennings þar í landi.

Þar í landi þykir það styrkur að viðurkenna veikleika, og leita sér hjálpar.

Á Íslandi er hugarfarið á allt annan veg afvegaleitt af kerfis-valdinu.

Það er á fáfræðilegan og vanþroskaðan hátt talað um aumingjaskap, ef fólk er ekki tilbúið í þrotlaust bankaræningja-varðstöðustríð með aftöku-valdafjölmiðlum.

Sýslumannaframkvæmd bankarán á heimilum og öðrum stjórnarskrárvörðum eignum og fyrirtækjum, fær að viðgangast á Íslandi, ef fólk hefur ekki valdhafalögfræðinga á sínum snærum. Eða hefur ekki óbrjótandi andlegt og líkamlegt viljaþrek og réttlætiskennd.

Það kostar flesta heilsuna að standa í slíkri baráttu fyrir réttlætinu!

Það útskýrir kannski hvers vegna læknar setjast ekki á þing?

Þegar helmingur umræddra/verkalýðsforystu-samdra launa er hirtur í skatt og lífeyris-sjóðaránsgjöld (ábyrgðarlausra og siðblindra spilavítis-lífeyrisfjárfestingarsjóða og löglausra banka), ásamt útsvari til sveitarfélagsins? Þá duga 300.000 króna brúttó-mánaðartekjur fyrir 100% vinnu, ekki fyrir húsaleigu né okurvaxta-verðtryggingar-lottóhúsnæðislánum.

Þetta er staðreynd!

Hvernig á fólk á slíkum skattpíningarlaunum að framfleyta fjölskyldu með húsnæði, mat, og opinberlega skyldaðri ríkis/sveitarfélaga-þátttöku?

Það kemst enginn hjá því, að horfast í augu við staðreyndir í samfélagi láglauna-skattpínda Íslands!

Við eigum ekki að gera öðrum það sem við viljum ekki að aðrir geri okkur!

Siðferðisregla númer eitt?

Eða hvað?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.6.2015 kl. 18:35

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Anna, hvar á að fá peninga til að borga öllu plentí skæs? Valgerður Bjarna segir að það verði að hækka skatta á þér og Sveini til þess að borga þeim sem minna hafa

Halldór Jónsson, 13.6.2015 kl. 18:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418442

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband