Leita í fréttum mbl.is

Gefið mér frelsi

eða gefið mér dauðann sagði Patrick Henry á þingi Virginiu 1775 í kirkju St.Johns i Richmond.

Tvö nýleg dæmi sýnast vera um að hægt sé að snúa þessu við. Gefa sjálfum sér frelsi en öðrum dauðann.

3. nóvember 2013 í Sognfirði í Noregi komu trésmiður og bifvélavirki sem varalögreglumenn  að rútubifreið upp á heiði. Þar var fyrir alblóðugur Suður Súdani vopnaður hnífi. Hann hafði þá drepið 2 farþega og bílstjórann og var einn eftirlifandi. Það tókst að afvopna hann. Menn komust að þeirri niðurstöðu að hinn ungi flóttamaður óttaðist ekkert annað meira en að verða sendur til baka. Það var ástæðan fyrir því að hann framkvæmdi þetta handahófskennda voðaverk til að tryggja að það myndi ekki gerast. 

Í Noregi sem álítur sig stundum Mekka mannréttindanna fór af stað mikil umræða um orsakir þessa ódæðis. Í ljós kom að hinn 30 ára morðingi var flóttamaður sem dvalið hafði um stund í sérstökum flóttamannabúðum meðan mál hans var í umfjöllun. En hann hafði sótt um hælisveitingu í Noregi. Hann hafði fengið að vita 9 mánuðum fyrr að umsókn hans hefði verið hafnað og hann yrði sendur til baka. Hvers vegna hann var þarna enn hefur ekki verið upplýst.Lögreglumennirnir voru óvopnaðir og spannst af allnokkur umræða í Noregi svipuð og hérlendis um hríðskotabyssurnar norsku sem Pírötum tókst að flæma úr landi.

Morðinginn fékk sínu framgengt og situr  nú í Ríkisfangelsi í Kongsvinger í boði Norska ríkisins. Þar fær hann lúxus aðbúnað sem hann annars fengi annars ekki nokkurs staðar. Afbrotið nægir til að hann fái lífstíðardóm en ekki dauðadóm eins og Vidkun Quisling. Hvað verður um hann þegar honum verður sleppt út aftur? Fær hann norskan ríkisborgararétt?

Þessi Súdani leysti sitt vandamál með því að drepa 3 norska samferðamenn sína í rútu af handahófi. Nú skal ekki efast um að þessi maður hefur haft áhyggjur þungar af því sem biði hans. Kólumbískur tannlæknir og meintur morðingi sem hér dvaldi reyndi að fremja glæp hérlendis til að verða ekki framseldur. Líklega var hann of linur af sér því hann  var sendur úr landi.

Síðan komu fréttir sjónvarps frá Svíþjóð þar sem mæðgin voru drepin tilviljanakennt í eldhúsáhaldadeild IKEA af einum eða tveimur hælisleitendum frá Eritreu sem horfðust í augu við framsal. 

Það er því staðreynd að hver hælisleitandi sem stendur frammi fyrir framsali getur orðið hættulegur lífi og limum fólks. Dæmin sanna að ekki er hægt að útiloka slíkt þó að atvikin tvö hafi gerst á hinum fjarlægu Norðurlöndum  en ekki hér.

Það er því staðreynd að þjóð sem leyfir hælisleitendum að valsa um með ferðafrelsi meða eigin þegna býður hættunni heim af örþrifaráðum þeirra. Hælisleitendur eiga auðvitað ekki að hafa ferðafrelsi heldur eiga þeir að vera vistaðir í búðum, sem er fyllilega heimilt að gera á Íslandi sem annarsstaðar.

Íslendingar eru nýbúnir að kynnast afleiðingum svefngenglastefnu okkar yfirvalda í þessum málum. Þó ekki hafi orðið hér mannvíg er áreitið af þessu fólki langt yfir þolmörkum. Almenningur er bara ekki spurður leyfis heldur er þessu fólki hleypt á hann með frjálsri för án áþvingaðrar læknisskoðunar. Þó væri auðvelt að kanna afstöðu Keflvíkinga til svona mála þar sem þeir hafa lengsta reynslu af samneyti við þetta fólk.

Svona atburðir hafa auðvitað áhrif hérlendis. Afstaða fólks breytist og það verður óttaslegið þegar það mætir framandlegu fólki. Kynþáttafordómar aukast og hætta á árekstrum vex. Málið verður enn alvarlegra ef hælisleitendur fara að grípa til glæpaverka til að hindra framsal sitt.

Það er orðinn nokkuð langur vegur og þyrnóttur frá kirkjunni í Richmond þar sem Patric Henry mælti hin tilvitnuðu orð. Líklega sá hann ekki fyrir þá útleggingu á orðinu frelsi sem hægt er að viðhafa með útúrsnúningum nú á dögum.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Í Sogn og Fjordane hafa skelfilegir atburðir átt sér stað fyrir nokkrum áratugum síðan. Það þykir víst ekki vinsælt nú til dags, að ræða þær hörmungar-afleiðingar sem seinni heimstyrjöldin skildi eftir sig í Noregi og víðar?

Kannski sumum finnist bara allt í lagi að gleyma þeim hörmungar-afleiðingum, sem sumir hafa þurft að takast á við eftir þann Evrópu-hernað?

Sögufróðir menn ættu ekki að þurfa að spyrja hvað ég á við með mínum orðum, um skelfilegar afleiðingar á sálarlíf saklauss fólks á þessum slóðum á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar.

En fólki virðist vera sama um allt sem ekki snertir eigin siðleysis-falsarapeninga-buddu blekkinganna nú til dags.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.8.2015 kl. 00:20

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Gott blogg að vanda,Halldór minn!

Kveðja,

Kristján Pétur Guðmundsson

Kristján P. Gudmundsson, 13.8.2015 kl. 01:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418390

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband