2.10.2015 | 09:03
Dagur Bé og Borgin hans
virðast óaðskiljanleg. Dagur er Borgin og Borgin er Dagur. Dagur er í hlutverki sólkonungins sjálfs, Lúðvígs fjórtánda. Hann hefur einnig erft vísdóm vorra gömlu kónga í Kaupmannahöfn, sem sögðu "Vi alene vider".
Þannig veit Dagur hvað er ásættanlegt öryggi í flugi, hvar er best að finna nýtt flugvallarstæði þegar hann er búinn að loka Reykjavíkurflugvelli og úthluta Háskólanum lóðum í Fluggörðum án þess að hafa eignarheimildir á.
Flokksbræður hans í Isavia er auðvitað reiðubúnir að gefa út álit sem styðja stefnu Dags og alltaf virðist hægt að finna sérfræðinga sem geta skrifað hentanleg álit fyrir góða borgun.
Guðni Ágústsson skrifar snarpa grein í Morgunblaðið í dag. Hann er þreyttur á hjásetu ríkisstjórnarionnar í flugvallarmálinu en bindur vonir við innanríkisráðherruna Ólöfu Nordal.
Guðni segir svo í lok greinar sinnar:
"Innanríkisráðherra taki flugvöllinn í faðm sinn og slái á puttana á óþægu börnunum í borgarstjórninni og segi þeim að »svona geri menn ekki«, að borgarstjóri og borgarstjórnin komist ekki upp með að hrekja flugvöllinn í burtu úr Reykjavík. Og eyðileggja loftsamgöngurnar í landinu og að auki er það óumdeilt að staðsetning flugvallarins við Landspítalann hefur bjargað fjölda mannslífa. Neyðarbrautin er lífgjöf svo margra Íslendinga og útlendinga í áranna rás. Höfuðborgin verður að virða flugvöllinn og þýðingu hans, bæði fyrir borgina og landið allt.
Málið þolir ekki lengri bið, Ólöf Nordal, deilunni um flugvöllinn verður að ljúka, þér er treystandi, þú ert samgönguráðherra, flokksbróðir þinn, Kristján Þór Júlíusson, er heilbrigðisráðherra og þú hefur sýnt það í verki að þú bæði hlustar og heggur á rembihnúta."
Og hinir vösku forystumenn "Hjartað í Vatnsmýrinni" sem stóð fyrir stærstu undirskriftarsöfnun í sögu þjóðarinnar til styrktar Flugvellinum hafa þetta að segja í Fréttablaðinu í dag:
"
Isavia segir óhætt að loka þriðju flugbraut Reykjavíkurflugvallar.
Umræðan um neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar er alvarlega á villigötum. Þar á meðal er þessi yfirlýsing Dags B. Eggertssonar röng. Isavia segir hvergi að það sé óhætt að loka brautinni.
Áhættumat Isavia varð ekki til átakalaust. Í miðju matsferlinu varð ótrúleg atburðarás. Öll áhættumatsnefndin, þar með taldir starfsmenn Isavia, komst að þeirri niðurstöðu, að lokun brautarinnar væri óásættanleg fyrir flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli. Þá tók yfirstjórn Isavia þá dæmalausu ákvörðun að reka alla sérfræðinga flugrekstraraðilanna úr nefndinni og fól einvörðungu innanhússfólki að halda vinnunni áfram. Sú nefnd skautaði fram hjá ýmsum flugöryggisþáttum, svo sem vindhviðum, hemlunarskilyrðum og fleira, sem þeim ber reglum samkvæmt að taka til greina. Um er að ræða breytur sem reglugerð um flugvelli kveður á um að reiknað skuli með.
Úrvinnsla Isavia í þessu máli er þannig algerlega einhliða og á skjön við reglur, bæði íslenskar og alþjóðlegar, sem um þetta gilda. Öllum málsaðilum er þetta kunnugt.
Niðurstaða áhættumatsins er sú, að eftir lokun neyðarbrautarinnar verði ástandið þolanlegt. Flugöryggi á vellinum verður þolanlegt ef brautinni verður lokað.
Áríðandi er að taka fram, að mikilvægur fyrirvari er í skýrslunni svohljóðandi: Þetta áhættumat tekur ekki á áhrifum á flugvallarkerfið í landinu, neyðarskipulagi almannavarna, sjúkraflutningum, umhverfisþáttum s.s. veðurfræðilegum áhrifum frá væntanlegum byggingum í nágrenni flugvallarins né fjárhagslegum þáttum flugrekstrar.
Erfitt er fyrir venjulegt fólk að átta sig á því, hvað fær meirihluta borgarstjórnar í Reykjavík til að ráðast á eitt mikilvægasta samgöngumannvirki landsins, sem er að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins og ætla að eyðileggja það. Reykjavíkurflugvöllur hefur háan nýtingarstuðul og gott flugöryggi og skerðing á öryggi hans úr góðum flokki í þolanlegan er óskiljanleg. Þeir sem berjast fyrir svona breytingum taka mikla ábyrgð, sérstaklega varðandi sjúkraflutninga, eins og öllum er kunnugt.
Hjartað í Vatnsmýri skorar enn á Reykjavíkurborg að stöðva framkvæmdir Valsmanna á Hlíðarendasvæðinu áður en alvarlegur skaði hefur hlotist af. Sá milljarða gróði, sem þeir telja sig ætla að fá út úr þessu"
Einræðisstjórnin í Reykjavíkurborg er eins og stjórn Assads í Sýrlandi algerlega ónæm fyrir óánægjuröddum borgaranna, hafi þeir eitthvað við framferði hennar að athuga. Hugsanlega vegna þess að Dagur og Assad eru starfsbræður. Í skjóli hins nýja afls íslenskra stjórnmál, Píratans Halldórs Svanssonar Kristjánssonar úr Háskólanum, þá fá þeir félagar, Dagur Bé, EssBjörn og Hjálmar Sveinsson að valsa um með hvaða óhæfuverk sem er gegn Reykjavíkurflugvelli hvað sem líður þjóðarvilja. Hann skiptir þesa menn engu.
Það er bara Dagur Bé og Borgin hans.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:06 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 3419711
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Vel sagt Halldór. Samt alveg með ólíkindum hvað Reykvíkingar láta bjóða sér uppá með þennan borgarstjóra-þurs og hans óvita hóps við stjórn. Engin mótmæli. Ekkert. Líður Reykvíkingum svona vel að það er hægt að bjóða þeim nánast endalaust uppá á cirkus og bull...???? Það er eitthvað mikið að í henni Reykjavík.
M.b.kv.
Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 2.10.2015 kl. 11:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.