21.10.2015 | 08:53
Vonda fólkið
er flokkur sem Stefanía Jónasdóttir frá Sauðárkróki býðst til að fylla ef það er skilyrðið fyrir því að málefni þjóðfélagsins séu rædd á rökrænum nótum án upphrópana "Góða fólksins". Stefanía rita grein í Morgunblaðið í dag er tæpitungulausa að vanda. Hún skirfar svo(Góða fólkið les ekki hugsanlega ekki Mogga):
"Undarleg er umræðan um gott og vont fólk. Er líf og skoðanir dekurkynslóðar svona svarthvítar? Sé fólk ekki sammála þeirra skoðunum, þá er fólkið vont. Þessi dekurkynslóð sem ekkert hefur skort og bullar núna um að fátækir og aldraðir Íslendingar, sem eiga ekki í sig og á, né fyrir lyfjum, eigi bara að vera sáttir við sitt, því að raunir þeirra séu ekki viðlíka og neyð flóttafólks, - einmitt, - við þessar fáu hræður hér skulum nú axla ábyrgð á heimsbölinu, við erum svo vel undir það búin, andlega og fjárhagslega, eða hitt þó heldur. Hef tekið eftir því að góða fólkið, innan gæsalappa, er mjög svo orðljótt, - hvernig stendur á því ? Hafa þau engin rök í máli sínu, og fara þá bara í frekjukast og kalla rasistar og vont fólk ? Góða fólkið virðist ekki hafa áhyggjur af fátækum löndum sínum, hvorki börnum né öldruðum, þó fólk eigi ekki fyrir lyfjum sínum, og ekki hreyfir við þeim mál Fanneyjar frá Vestmannaeyjum, né að barn komist ekki til tannlæknis vegna fátæktar, móðirin á bara að vera nokkuð sátt því að ekki sé verið að skjóta á þau, - hva, - þetta eru bara Íslendingar. Eruð þið öll orðin snarvitlaus? Og í þessa handónýtu innviði viljið þið fá sem flesta flóttamenn. Það er ykkar, komandi og núverandi kynslóðar að vinna fyrir þessu öllu, - ykkar val. Þið hljótið að ætla að lækka laun ykkar og hætta að heimta hvaðeina, þá mega þingkonur í VG hætta sínum kröfum og Sigríður Ingibjörg, sem sér peninga allsstaðar. Þessar blessaðar konur verða þá að hætta að aumingjavæða þjóðina. Hver flóttamaður kostar 4-5 millur á ári, hælisleitandi fær 2,8 millur á ári, en til er stór hópur Íslendinga sem eru fá 1,7 til 2 millur á ári, - en það er allt í lagi, þetta eru bara Íslendingar.
Þið blaðrandi dekurfólk, þegar kemur að ykkur sjálfum, þing- og fréttamenn, listafólk og rithöfundar, þið hógværa fólkið, er ykkur fer að vanhaga um eitthvað þá munið þið góla og gráta og hóta, öfugt við hina þöglu eldri kynslóð sem farið er illa með núna. Ekki tala þingmenn um frétt frá sjúkrahússpresti í RVK er segir okkur frá fjölgun sjálfsvíga meðal eldri borgara eða þeim sem eru á sjúkrahúsum sem mistekst ætlunarverk sitt, enda varla áhugavert, - bara gamlir Íslendingar. Kannski þingmenn geti nú komið með frumvarp til laga um að við 75 ára aldur skuli okkur smalað upp í rútu og ekið upp á »Árna Páls Vatnajökul«, þar sem við getum lagst á ís til að deyja, þá fyrst eruð þið hin yngri laus við að hugsa um okkur. Eskimóar lögðust á ís til forna.
Já, þjóðfélagið okkar er orðið ljótt og á eftir að versna. Hafið skömm, Helgi Hrafn Pírati og þið öll sem ætlið okkur að sitja á sveltibekk, af því að það er stríð úti í heimi. Ég skal vera vonda konan, sem vill varðveita land mitt, þjóðina, siði og trú, en er ekki tilbúin að afhenda flóttamönnum land mitt. En þið, - góða fólkið, - verðið til þess að land og siðir tapast. Svo talið þið eins og vanvitar um það að þið ætlið að láta þetta flóttafólk gera hitt og þetta, það vanti fólk til að vinna þegar þið eldist, já Mússarnir verða mjög góðir við ykkur, Heiða Kristín Helgadóttir og þið hin er haldið að svo verði. Nú verð ég að fá að hlæja, ha, ha. Þetta fólk fer eftir sínum siðum, vilja og trú og það lætur ekkert segja sér og mun endalaust krefja ykkur um sín mannréttindi og moskur og það verður á kostnað mannréttinda Íslendinga. Lesið bókina Islamistar og naivistar, eftir danska ráðherrann Karen Jespersen, þar getur allt góða fólkið lesið um sjálft sig. Ég hélt að þingmenn væru kosnir til þess að vernda land og þjóð, en ekki til þess að gerast alheimsþingmenn. Nú ef eitthvað fer úrskeiðis hjá 300 þúsund manna þjóð þá köllum við bara til Sigríði Ingibjörgu, Birgittu, Katrínu Júl. og Jakobs, Ólínu Þorvarðar og alla þá sem vilja fylla landið af flóttafólki, þetta fólk hlýtur að bjarga málum.
Gott væri líka að þingmenn hættu að nota þjóðina í málum sem eiga ekki hljómgrunn, en þá komið þið og segið: »Þjóðin vill, þjóðin segir.« Málið er að þið hafið ekki hugmynd um hvað þjóðin vill og segir, nema bara fólkið sem RUV talar við, sí og æ. Þið skulið muna að við erum öll mennsk, en langt í frá bræður og systur, og ykkur sem stjórnið er skylt að hafa efa með í ákvarðanatöku. Þar sem þið eruð að taka við flóttafólki allsstaðar að, haldið þið að hér verði við eitthvað ráðið, skelli þeim saman og með óvopnaða lögreglu ? Þið eruð að moka hingað til lands allskonar vandræðum, sem þið munuð ekki ráða við. Mér finnst fráleitt að íbúðir Íbúðalánasjóðs skuli nú vera lausar handa útlendingum, en máttu ekki leigjast til Íslendinga. Hvar eruð þið stödd sem stjórnið? Lagið flótta Íslendinga til annarra landa áður en þið takist á við vanda heimsins. Til þeirra er nota stór orð um aðra, þá er enn mál-, rit- og skoðanafrelsi í landinu og enginn þarf að vera mér sammála. Ég kýs að vera sú vonda, ef það hjálpar til að opna augu fólks sem er á hraðleið til sjálfseyðingar. Áfram útvarp Saga, þar fær fólk að tjá sig öfugt við handónýtt RUV."
Ég finn það glöggt að sé Stefanía Jónasardóttir vond manneskja þá vil ég heldur hennar félagsskap en margra af þeim sem hún nefnir til sögunnar.
"Vonda fólkið" og "góða fólkið" er samt kannski ekki svo með öllu fjarskylt ef tækist að fá hið síðarnefnda að borðinu til að ræða rökrænt um vandamál daglegs lífs án þess að það sé fyrirfram afgreitt á grundvelli kennisetninga.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.