Leita í fréttum mbl.is

Loftur Altice

Þorsteinsson verkfræðingur skrifar ágæta grein um afleiðingar þess þegar hræsninnar og fljótfærnin fá að ráða ferðinni í opinberri umræðu. Loftur skrifar:

"Helför gyðinga veldur því, að á meðal siðaðs fólks þykir gyðingahatur vera afleitt hugarástand. Samt blómstrar gyðingahatur hérlendis og hefur gert allt frá tíð Steingríms Hermannssonar. Löngum hafa gyðingahatarar ekki svalað svívirðilegum kenndum sínum á opinberum vettvangi. Nú er öldin önnur og öfgarnar gerðar opinberar, jafnvel undir merkjum mannkærleika.

 

Björk »abdallah« leggur fram tillögu fyrir hönd Fatah

 

Flestum á óvart ákvað meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur 15. september 2015, að sniðganga vörur frá Ísrael, föðurlandi gyðinga. Yfirlýstur óvinur Ísraels lagði fram tillöguna og samþykkt hennar var sögð vera kveðjusending til hryðjuverkasamtakanna Fatah, sem aðsetur hafa á Bakkanum (vesturbakka Jórdanár).

 

Víðtæk mótmæli hófust strax við þessu augljósa gyðingahatri, bæði hérlendis og utanlands. Ljóst var að viðskiptahagsmunum Íslands var stefnt í hættu og fjölmörg dæmi voru nefnd um fjárhagstjón sem sniðgangan hafði valdið. Ísland hafi orðið fyrir verulegum álitshnekki og umheimurinn hefur komist að því að gyðingahatur dafnar á Íslandi.

 

Þáttur utanríkisráðherrans »hugumstóra«

 

Ríkisstjórn landsins vaknaði með andfælum við tíðindin og »hugumstórum« utanríkisráðherra var falið að senda frá sér yfirlýsingu um sniðgönguna, sem vonast var til að varpað gæti hulu á sannleikann. Til að forðast misskilning skal þess getið, að ráðherrann »hugumstóri« er alls óskyldur »Don Quijote de la Mancha«. Þetta er hins vegar ráðherrann sem kom Íslandi í viðskiptastríð við Rússland, að boðskipun ESB.

 

Ráðherrann sendi frá sér yfirlýsingu 18. september, þar sem í lokin segir: »Utanríkisráðuneytið áréttar að ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur er ekki í samræmi við utanríkisstefnu Íslands«. Hver er þá utanríkisstefna Íslands gagnvart Ísrael? Er hún í samræmi við stefnu þjóðarinnar frá 1947, þegar Ísland var í forustu hjá SÞ (Sameinuðu þjóðunum), að tryggja stofnun þjóðríkis gyðinga í Ísrael? Sendiherra Íslands, Thor Thors, var framsögumaður málsins á alherjarþingi SÞ, sem hlaut yfir 70% fylgi og varð þannig alþjóðalög.

 

Í lok heimsstyrjaldarinnar fyrri 1922, fól Þjóðabandalagið Bretlandi að stjórna svæðinu »British Mandate for Palestine«, sem tekið hafði verið af Tyrklandi. Á meðal gyðinga vakti þessi ákvörðun mikinn fögnuð, því að þeir höfðu loforð Bretlands um að »Konungsríki Davíðs og Solomons« yrði endurreist. Loforðið gaf Bretland með svonefndri »Balfour-yfirlýsingu« frá 2. nóvember 1917. »Balfour-yfirlýsingin« hlaut einnig samþykki Þjóðabandalagsins og var þar með orðin skuldbinding alþjóðasamfélagsins.

 

Alþingi tekur upp stuðning

 

við hryðjuverkamenn

 

Hægt er að staðhæfa, að gyðingahatur blómstrar á Íslandi. Skilaboð borgarstjórnar til vina okkar í Ísrael staðfesta það. Hatursmenn Ísraels í borgarstjórn móta samt ekki stefnu landsins í utanríkismálum. Alþingi ætti að hafna stuðningi við hryðjuverkasamtök og fordæma gyðingahatur. Nýjasta ályktun Alþingis varðandi Ísrael er frá 29. nóvember 2011 og taki menn nú eftir: »Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki innan landamæranna frá því fyrir sex daga stríðið árið 1967. Alþingi áréttar að PLO, Frelsissamtök Palestínu, eru hinn lögmæti fulltrúi allrar palestínsku þjóðarinnar.«

 

Þessi hræðilega ályktun var samþykkt með 38 atkvæðum og þar á meðal var hinn »hugumstóri« utanríkisráðherra. Þetta er auðvitað gróft dæmi um gyðingahatur, því að PLO er samnefni fyrir hryðjuverkasamtökin Hamas á Gaza og Fatah á Bakkanum. Svo má spyrja sig hvaða umboð Alþingi hefur til að úthluta yfirráðum á umdeildu landi, til skrifborðsskúffunnar PLO. Alþingi var að taka undir markmið þessara múslima um að fremja þjóðarmorð á gyðingum og tortíma föðurlandi þeirra.

 

Viðbrögðin verði trúverðug

 

Borgarstjórn Reykjavíkur kom saman til neyðarfundar 22. september og felldi úr gildi hina alræmdu sniðgöngu á Ísrael. Sumir hafa af ókunnugleika talið að yfirlýsing utanríkisráðherrans »hugumstóra« hafi haft hér nokkur áhrif. Svo var þó ekki, heldur réðust afdrif sniðgöngunnar, við skrifborð hryðjuverkaforingjans Mahmoud Abbas.

 

Hatursmenn Ísraels hafa áratugum saman reynt að vinna gyðingum sem mest tjón og hafa beitt viðskiptaþvingunum í þeim tilgangi, meira að segja áður en Ísrael var stofnað. Hryðjuverkasamtökin Hamas á Gaza og Fatah á Bakkanum hafa mismunandi stefnu í öllum málum, þar á meðal viðskiptaþvingunum gegn Ísrael. Fatah samdi upphaflega tillögu, en Hamas dró hana til baka. Fatah er vinnuveitandi Bjarkar »abdallah«, en Hamas stjórnar gerðum Dags »abdallah«.

 

Ítök hryðjuverkasamtaka múslima á Íslandi eru yfirþyrmandi og bregðast verður hart við. Dagur »abdallah« og hinn »hugumstóri« utanríkisráðherra verða báðir að víkja úr opinberum störfum. Brotthvarf þessara einstaklinga mun þó ekki nægja til að bæta orðspor landsins. Bjóða mætti Jerúsalem höfuðborg Ísraels að verða vinaborg Reykjavíkur. Svo væri einnig til bóta að ríkisstjórn og Alþingi bæðust afsökunar, að hætti siðaðra manna."

Hér eru orð að sönnu. Flumbrugangur og hroðvirkni eru yfirleitt aðalsmerki "góða fólksins" sem ekki hugsar nein mál til enda. Þar eru bara orðin til alls fyrst og ekkert rýnt í afleiðingar góðmennskunnar.

Loftur Altice á mínar þakkir fyrir þessi skrif.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband