Leita í fréttum mbl.is

Málefni útlendinga

eru kafli í frumvarpi til ályktunar fyrir Landsfund Sjálfstæðisflokksins.

Þar segir:

"Í fjölmenningarsamfélagi felst mannauður og fjölbreytt reynsla sem er til þess fallin að auðga samskipti einstaklinga.

Taka skal vel á móti fólki sem hingað vill flytja og tryggja að það njóti  jafnra tækifæra á við aðra.

Hafa skal mannúðarsjónarmið og skilvirkni að leiðarljósi í umræðu um hælisleitendur.

Móttaka flóttamanna er sjálfsögð. Sjálfstæðisflokkurinn fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar  um að auka fjármagn til flóttamannaaðstoðar í kjölfar neyðar sem skapast hefur í Evrópu  undanfarin misseri

Tryggja þarf samkeppnishæfni landsins, með því að einfalda veitingu  atvinnuleyfa, meta menntun þeirra sem hingað leita að verðleikum og tryggja að aðbúnaður á Íslandi geri landið eftirsóknarvert til framtíðar. Alltaf skal hafa að leiðarljósi að aðstoð við flóttamenn leiði til tækifæra til sjálfsbjargar." 

Hvað finnst fólki um þetta? Er þetta söluvænt? Er fjölmenning æskilegri en það sem við höfum? Er móttaka flóttamanna sjálfsögð? Er mikilsvert að tryggja aðbúnað þeirra sem hingað leita umfram innlent útigangsfólk?

Á ég að hrópa húrra fyrir þessu öllu óbreyttu um málefni útlendinga??


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór; ef að þú ert ósáttur við landtöku múslima hér á landi; þá verður þú að mæla með öðrum flokkum:

STUÐNINGS-YFIRLÝSING:

http://www.petitions24.com/stunings-yfirlysing_vi_kristilega_-mijuflokkinn

HVAÐ KOSTAR AÐ SMYRJA NESTIÐ OFAN Í ÓVINA-HERINN?

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1976361/

Jón Þórhallsson (IP-tala skráð) 21.10.2015 kl. 09:25

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Til að byrja með ætti að veita tímabundið landvistarleyfi, segjum sem svo á bilinu fjögur til sjö ár og leyfið þá endurskoðað.  Kannski verður allt annað upp á teningnum í heimahögum þeirra sem koma hingað sem flóttafólk og gæti verið fýsilegt fyrir það að snúa aftur. 

Eins gæti sú staða komið upp að einhverjir aðfluttir, flóttamenn eða aðrir féllu ekki að okkar þjóðmenningu og væru t.d. með uppsteyt eða stundaði eitthvað ólöglegt, þá þarf löggjafinn að hafa þá heimild að geta sent þá einstaklinga til uppruna lands síns, jafnvel þó svo að viðkomandi hafi fengið ríkisborgararétt, þá þarf að vera sá möguleiki að afturkalla hann ef þannig ber undir.

Tómas Ibsen Halldórsson, 21.10.2015 kl. 11:52

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hvað segir KRISTUR?

"Til þess að hver sem að á mig trúir glatist ekki!".

Ef að sýrlendingar geta sýnt fram á; að þeir JÁTI KRSTNA TRÚ;

í sínu vegabréfi; þá mætti skoða málið.

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1960247/

Jón Þórhallsson, 21.10.2015 kl. 12:13

4 Smámynd: Jón Bjarni

Hvernig tengjast málefni flóttamanna og útigangsmanna - eru ekki flestir þeir flóttamenn sem hingað hafa komið í gegnum tíðina fólk sem vinnur fyrir sér og greiðir sína skatta og gjöld.

Eru margir flóttamenn sem hafa fengið hér landvistarleyfi á götunni eða á bótum?

Jón Bjarni, 21.10.2015 kl. 15:53

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Jón Bjarni

Konurnar umtöluðu sem komu fyrir nokkuð mörgum árum síðan og fóru á Akranes og áttu að vera konur einsamlar, voru síðan með heilu fjölskyldurnar þegar upp var staðið, það mun eftir öll þessi ár sem liðin eru aðeins ein þeirra vera í vinnu. Hinar lifa á velferðarkerfinu sem við höfum byggt í sveita okkar andlits.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.10.2015 kl. 16:44

6 Smámynd: Jón Bjarni

Meinar þú að þau hafi smyglað börnunum sínum með sér innanklæða? Var ekki allan tímann ljóst að þær kæmu með börn með sér?

8 konur með 21 barn eftir vist í flóttamannabúðum við hræðilegar aðstæður í mörg ár - ert þú með einhverjar nýlegar upplýsingar um það að þær og börnin þeirra lifi á velferðarkerfinu?

Jón Bjarni, 21.10.2015 kl. 18:59

7 Smámynd: Jón Bjarni

Það sem er merkilegast við þig Predikari er að þú þykist gefa þig út fyrir að vera trúaður maður - manst þú eftir sögunni um miskunnsama Samverjann - getur þú útskýrt boðskap þeirrar sögu fyrir mér?

Jón Bjarni, 21.10.2015 kl. 19:01

8 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Jón Bjarni

Sæa sem samverjinn hlúði að um stundarsakir til að hann næði að læknast sára sinna, var ekki gagngert að setjast upp á hann um aldur og ævi.

Já ég hef nýjar epa nýylegar upplýsingar um þær. Það var ekki aðeins um börn að ræða. 

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.10.2015 kl. 20:26

9 Smámynd: Halldór Jónsson

 Er ekki Jón Bjarni fyrir löngu fluttur til Noregs?

Halldór Jónsson, 21.10.2015 kl. 22:20

10 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Jón Bjarni

Jú og einungis ein þeirra er að vinna eftir öll þessi ár. Hinar mjólka skattpeningana þína og grenja sig máttlausar innan um stórfjölskyldurnar sem þær náðu að pranga hér inn með sér og við höldum öllu uppi á allsnægtum. Þetta er eins og að fara í sumarfrí með allt innifalið og aldrei að greiða krónu.

Ekkert slíkt er um að ræða í Ritningunni þar sem rætt er um miskunnsama samverjann.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.10.2015 kl. 22:26

11 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Já kæri Halldór. Maður hefði haldið það.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.10.2015 kl. 22:27

12 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Samúðarhræsni Góða Fólksins er stórfurðuleg og svo er Góða Fólkið að vitna í sorpritið sem þeir segja að það sé allt lígi og ekkert mark takandi á.

Það á ekki að hleypa einum einasta flóttamanni eða hælisleitenda inn til Íslands.

Íslendingum ber enginn skylda að taka við þessu fólki og sérstaklega ekki fyrr en eldrafólkið og öryrkjar fá mannúðlega umönnun frá ráðamönnum og landsmönnum öllum.

Charity starts at home.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 21.10.2015 kl. 23:03

13 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

P.S. leiðrétting :  

....grenja sig máttlausar úr hlátri

átti að standa áðan.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.10.2015 kl. 23:23

14 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Kristinn maður er skynsamur í trú sinni.Tökum dæmi úr venjulegu lífi nútímans. Steðji hætta að á flugi og þú ert með barn á þínum vegum,er þér uppálagt að setja súrefnisgrímu á þig fyrst,þá muntu ráða vel við að sinna barninu við súrefnið sem því er ætlað.

 

Helga Kristjánsdóttir, 22.10.2015 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3418255

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband