23.10.2015 | 22:40
42. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins settur
í Laugardagshöll af formanninum Bjarna Benediktssyni.
Auðvitað fór ég nú aftur á fundinn þegar bræðin rann af mér.
Ég hlustaði grannt á ræðu formannsins eins og fleiri gerðu, bæði viðstaddir og á ÍNN þar sem hún birtist í heild. Og ég verð að segja að honum tókst vel upp. Það voru talsverðir sprettir í henni og honum tókst að fara vel yfir málin svo að allir skildu.
Margt var vel sagt sem náði vel til áheyrenda. Einkanlega voru góðar hugleiðingarnar um frelsið, sem VG er búið að lýsa yfir að sé ekki lengur einkaeign Sjálfstæðisflokksins. VG ætli að láta frelsið til sín taka. Bjarni sagðist fagna því að slík sinnaskipti yrðu á þeim bæ. En hafa flokkarnir sama skilning á gildi frelsis?
Fyrir mitt leyti sýnast mér afskipti VG og annarra vinstri manna af frelsinu til þessa heldur hafa snúið að því að takamarka frelsi fólks og skera af því á enda og kanta. Ráfa af mönnum eignirnar með auðlegðarskatti sem dæmi sem þeir sjálfir útbjuggu með sólarlagsákvæði en Kata ásakar Bjarna fyrir að hafa aflagt.Hún gefur fyrirrennaranum á formannstólnum ekki eftir í álygum og rógi.
Voru tilbrigði vinstri stjórnarinnar um frelsi einstaklinganna eitthvað tengd auknu frelsi? Sáu menn einhvern frelsisglampa í augum Steingríms J. Sigfússonar þegar hann talaði um útgerðina og auðlegðarskattinn eða Jóhönnu Sigurðardóttur þegar hún pírði augun og herpti varirnar í kratakærleik sínum í Iceasave málunum? En formaðurinn leyfði þeim að sleppa með þetta á þessari stundu þó mér hafi fundist að þeir lægju nú vel til höggsins og hefði ég varla mátt bindast frekar en Þorgeir Hávarsson við þetta tækifæri.
Greinilegt var að formaður náði vel til áheyrenda þegar hann viðraði hugmyndir sínar um að allir landsmenn yrðu hluthafar í Landsbankanum og jafnvel fleiri banka ef þannig myndu kaupin gerast á eyrinni. Hann kvaddi Hönnu Birnu fallega með einlægri eftirsjá sem ég klappaði nú eitthvað minna fyrir. Hann komst stórvel frá því að lýsa því hvernig við Íslendingar værum komnir í gegn um alla þessa erfiðleika frá hruni og lengra án þess að ganga í ríkjabandalag, án þess að kasta myntinni og vera komnir á þann stað þar sem við værum núna. Hér væri hagvöxtur meiri en í Evrópu, hér væri meiri atvinna og hér værum við værum búin að borga hverja krónu til baka af AGS lánunum sem við fengum í hruninu.
Greinilegt var að formaðurinn var stoltur af þjóð sinni og framlagi Sjálfstæðisflokksins til uppvasksins eftir vinstri stjórnina. Þeirri skoðun deili ég svo sannarlega með honum. Allt krata-ræfleríið,skattfrekjan, jarmið um ónýta krónu, björgunina með því að fleygja okkur í fang ESB og borga Icesave eftir glæsilegri niðurstöðu kommúnistans Svavars Gestssonar eins og Steingrímur og Jóhanna ætluðu að gera, sýnir sig að hafa verið holtaþokuvæl og tilberasöngur í kví kví.
Enginn stjórnmálaflokkur á foringja sem er glæsilegri á velli og betur máli farinn en Sjálfstæðisflokkurinn um þessar mundir. Og enginn á heldur neinn sem jafnast á við Bjarna Benediktsson að einlægni og sanngirni í ræðustól með kærleika til allra en illan hug til einskis manns svo vitnað sé til annars þekkts lögfræðings. Þetta tókst honum í þessari setningarræðu Landsfundar.
Bjarmi Benediktsson, fær hæstu einkunn hjá mér fyrir setningarræðu sína við upphaf 42. Landsfundar Sjálfstæðisflokksins.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.10.2015 kl. 08:48 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Saell nafni. Thad er dulítid annad hljód í skrokknum í dag hjá thér. Gott ad raeda formannsins féll í gódan jardveg, medal fundargesta. Skil nú samt ekki alveg thetta med 5% handa thjódinni hjá honum og finnst ad svona dellu eigi ekki ad setja fram nema fullmótada. Tjódin á nú thegar 100% í thessum blessada banka. Svona tillaga er ekkert annad en gaspur og fullkomlega ábyrgdarlaus, án skýringa á thví hvernig framkvaema skuli thetta og útskýra hvada lukkunnar pamfílar eigi sídan ad hirda restina. Formadurinn sennilega verid kominn í banastud í raedustólnum og hreinlega vadid á súdum í raedusnilld, enda salurinn sjódheitur, eftir thví sem manni heyrist. Vid lestur frétta af thessum landsfundi, ef marka má fjölmidla, dettur menni helst í hug sagan um Dýrin í Hálsaskógi, thar sem allir eiga ad vera vinir. Innflytjendamál, flóttamannamál, aldradir og öryrkjar, ESB umsóknin, landbúnadur, sjávarútvegur, tryggingagjald, faedingarorlof, skattamál og fleira á madur eftir ad lesa um hver nidurstadan verdur um á thessum landsfundi. Vonandi verdur komist ad einhverri ábyrgri og skynsamlegri stefnu um thessi mál, auk margra annara. Helst hefur mér fundist thad tídindum saeta, fram ad thessu, ad stödumaelasektir hafa verid óvenju margar kringum fundarstadinn og vaeri gaman ad bera saman stödumaelasektir á landsfundi Sjálfstaedisflokksins annars vegar og sídan VG hins vegar. Megirdu eiga ánaegjulegan morgundag í Höllinni, en mundu ad leggja nú bílgarminum á löglegan hátt, svo komist verdi hjá frekari kostnadi af tháttökunni.;-)
Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 24.10.2015 kl. 18:59
Já nafni
ég mun engum straumhvörfum valda á þessum fundi frekar en á öðrum slíkum. Fór ekki einu sinni á ballið núna sem ég gerði alltaf áður.
Ég sé ekki eftir því að hafa mætt í minni mýflugumnd. Maður hittir svo marga gamla kunningja að það eitt borgar allt í topp. Það er vináttan við gamla vopnabræður sem öllu máli skiptir. Nýju herdeildirnar erum manni ókunnar.
Halldór Jónsson, 24.10.2015 kl. 23:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.