Leita í fréttum mbl.is

Til hvers er fjölmenning?

sem hugtak og markmið?

Íslendingar eru sem óðast að flytja inn fólk sem hefur gerólíka menningu, trúarbrögð og siðu heldur en við sem fyrir eru í landinu.

Við leggjum upphátt kapp á að þetta fólk læri íslensku. Sem allir vita að ber lítinn áramgur. Til hvers skyldi það vera? Ætlar Þetta fólk að samlagast okkur eða halda sínum siðum og venjum? Ætlum við ekki að kenna börnum þeirra á þeirra eigin máli? Ætlum við ekki að láta þetta fólk mynda sín eigin samfélög í fjölmenningarsamfélaginu Ísland? Ætlum við ekki að greiða fyrir því að ættmenni þeirra flytjist hingað og taki þátt í fjölmenningarsamfélaginu hér á landi? Er þessi ráðstefna hugsanlega endurtekning á Rögnunefndarsýningu Dags Bé Eggertssonar í auglýsingaskyni fyrir hann sjálfan?

Við kunnum flest ensku svo við getum gert okkur skiljanleg gagnvart því flóttafólki sem hana talar. Alveg án þess að þetta fólk þurfi að læra íslensku.  Til hvers í veröldinni að vera að áreita það með íslenskukennslu? Sjáum við ekki hvernig mál munu þróast hérlendis í þessu fjölmenningarsamfélagi sem allir ráðamenn góðafólksins stefna pólitískt að hvað sem okkur í kúgaða minnihlutanum finnst.

Er einhver ástæða til annars en að ætla að fjölmenningarsamfélagið hér mun líta eitthvað öðruvísi hér en Sviþjóð, Danmörku, Hollandi, Þýslandi eða Frakklandi? Sem verða Borgarhverfi fjölmenningar þar sem okkar menning er óvelkomin?

Ég fæ ekki skilið til hvers svona ráðstefna er sem á að halda á morgun á vegum Háskóla Íslands nema til þess að gefa opinberum starfsmönnum kost á að taka sér frí úr vinnunni sinni.Niðurstaðan er gefin fyrirfram.

Verða ekki þarna Dagur Bé,háskólarektor Jón Atli Bendeiktsson, Kristrún Sigurjónsdóttir og Hanna Ragnarsdóttir og svo allir velkomnir úr hópi góðafólksins sem vilja lofsyngja fjölmenningu sem andstæðu íslenskrar menningar?  Það á ekki að ræða aðlögun fólks af fyrrnefnda hópnum heldur aðlögun íslensku menningarinnar að fjölmenningunni.

Til hvers er þá þessi fjölmenning í sambandi við móttöku flóttamanna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Sæll Halldór!

Það þyrfti helst að tala um hvern hóp fyrir sig!

Ég er sammála þér í því að sporna gegn aukinni múslimavæðingu hér hér á landi.

Myndir þú vilja að allir landsmenn væru bara í Þjóðkirkjunni og að það væri bara 1 aðal-biskup yfir íslandi?

Myndir þú skilgreina kaþólsku og jóga fjölmenningu?

Jón Þórhallsson, 9.12.2015 kl. 09:36

2 identicon

Það er engin ástæða til að örvænta.  Fríkirkjan var stofnuð vegna þess að fólk fékk nóg af því að þurfa að standa og horfa á frátekna auða fremstu bekkina.  Þeir munu eftir sem áður vera fráteknir fáeinum möppudýrum til dýrðar.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.12.2015 kl. 09:53

3 identicon

Fjölmenning hefur alltaf verið hér en er ekki ný af nálinni eins og sumir halda. 

Flestir útlendingar eru fljótir að aðlagast okkar venjum og læra tungumálið og gildir það jafnt um kristna og múslima. En ég tala bara af eigin reynslu.

Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 9.12.2015 kl. 10:14

4 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Okkur er sagt að það þurfi að flitja inn fólk af erlendu þjóðerni af því að það vanti vinnuafl í landinu, svo segja sjóræningjarnir.

Fyrrverandi sjóræningja þingmaður skrifar á mbl.is blogginu í dag að það þurfi að hafa borgaraleglaun af því að það verði ekki not fyrir mannafla í framtíðini, vegna robotavæðingu í atvinnugeiranum.

Þá kemur spurningin, hvort er það að það vanti starfskraft á atvinnumarkaðinn og þá auðvitað er fótur fyrir innflutningi erlends vinuuafls og borgaraleg laun eru óþörf.

Eða er atvinnumarkaðurinn að verða svo mettaður af róbotum að þarf borgaraleg laun, en þá auðvitað er innfluttningur erlends vinnuafls óþarfur.

I am confused.

Kveðja frá Las Vegas 

Jóhann Kristinsson, 9.12.2015 kl. 15:39

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það þarf að fara a að skilgreina hverskonar fólk vantar á vinnumarkaðinn.

Ef að álverið í Straumsvík lokar þá kemur væntanlega fólk inn  á markaðinn sem að vantar vinnu og eru svo ekki alltaf 7000 manns á atvinuleysisskránni hér á íslandi?

Jón Þórhallsson, 9.12.2015 kl. 16:50

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Svarið við fyrstu spurningu er sú sem allstaðar blasir við = vandræða.   

Hrólfur Þ Hraundal, 10.12.2015 kl. 07:06

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er nú svo með þessa atvinnuleysiskrá Jón Þórhallsson að hún er ekki eins og vararafmagnið á línunum sem landsvirkjunar trúðarnir hennar Jóhönnu vilja endilega selja um kapal til Englands. 

Á atvinnuleysisskránni er lítið varaafl og þó við hækkuðum töluna á atvinnuleysis skránni með hrokafullum múslímum með stresstöskur þá, þá ykist varaaflið ekki neitt.

Hrólfur Þ Hraundal, 10.12.2015 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418432

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband