Leita í fréttum mbl.is

Ótrúlegt !

er það sem maður les í Staksteinum Mogga.

"Lög sem sett voru árið 2013 og gera það að verkum að olíufélögin verða að setja íblöndunarefni í eldsneytið eru vafasöm fyrir margra hluta sakir. 

Fyrir það fyrsta voru vinnubrögðin við lagasetningu stórundarleg, þar sem í ljós kom að tiltekinn hagsmunaaðili hafði samið lögin.

 

Þá hefur verið bent á að lögin, sem sett voru til að mæta tilskipun frá ESB, ganga mun lengra en þörf var á og væru jafnvel alveg óþörf ef stjórnvöld hefðu frekar farið þá leið að sækja um undanþágu, sem ætti að vera sjálfsögð miðað við hve stór hluti orkunýtingar hér á landi er frá umhverfisvænni orku.

  

Einnig hefur komið fram að lögin hafa leitt til þess að miklar fúlgur af dýrmætum erlendum gjaldeyri hafa farið í að kaupa íblöndunarefnið, langt umfram það sem eldsneytið sjálft kostar. Þar við bætist að eldsneytið nýtist verr með íblöndunarefninu í, sem eykur líka kostnað bíleigenda. 

 

Nýjast í þessu máli er svo að Samkeppniseftirlitið bendir á það í nýrri skýrslu sinni um eldsneytismarkaðinn að þessi lagasetning sé samkeppnishamlandi og hafi einnig þannig orðið til að auka kostnað neytenda. 

 

Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp Sigríðar Andersen og nokkurra annarra þingmanna um að vinda ofan af þessar vitleysu. Alþingi hlýtur að afgreiða frumvarpið með hagsmuni íslenskra neytenda í huga."

Er þetta afrek hjá Sigríði Andersen eða er þetta vitni um sofandahátt núverandi ríkisstjórnar að hafa valdið neytendum þessum skaða og halda því áfram? 

Hverskonar vinnubrögð eru þarna við Austurvöll? Er þetta fólk að vinna fyrir almenning eða einhverja aðra? Hvar er virðing Alþingis stödd? Er þetta umhyggjan fyrir smælingjunum að láta þá borga meira fyrir bensínið? 

Langafi minn, hann Jón Ólafsson, gekk þaðan út einn góðan veðurdag fyrir margt löngu, sagði af sér þingmennskunni og sagðist ekki geta setið stundinni lengur með þvílíkum mönnum sem þar væru innan dyra. Enda var hann um margt á undan sinni samtíð hann Jón Ólafsson. Hann átti það eftir löngu síðar að segja af sér þingmennsku og öllum eftirlaunum af sömu ástæðum.

Þá voru líklega bæði launin og eftirlaunin ekki eins góð og þau eru í dag sem gera það að verkum að menn hanga á þingmennskunni sinni eins og hundar á roði. Hver skyldu mánaðareftirlaun Steingríms J. Sigfússonar, sem setti lögin um íblöndunina, sem hins þingelsta verða þegar hann loksins hættir? 

Jón Ólafsson barðist fjárhagslega í bökkum til æviloka vegna seinni afsagnarinnar sem hann gerði í bræðikasti vegna þess að vera ekki skipaður í bygginganefnd Safnahússins. Hann hafði nefnilega 8 ára starfsreynslu að baki sem bókavörður í Chicago umfram alla þálifandi Íslendinga. Hann reiddist svona illa þegar Landlæknirinn var tekinn fram yfir hann í nefndina.

 

Jón þessi fékkst við margt um dagana. Hann gaf út stafrófskver handa Íslendingum í meira en 16000 eintökum rétt eftir aldamótin 1900 og kenndi greinilega flestum Íslendingum af þeim kynslóðum að lesa. Hann varð ritstjóri fleiri blaða en nokkur Íslendingur til þessa dags.

Jón Ólafsson kenndi í Verslunarskólanum og samdi eitt fyrsta íslenska fræðiritið í Hagfræði sem afkomandi hans, Ársæll Valfells lektor, hefur endurútgefið.

Hann varð líka þjóðskáld með "Máninn hátt á himni skín." Hann dró að sér konur sem segull stál og þjáðist í hljóði vegna fjarvista við börnin sín mörg og fjarlægu því hann var án efa tilfinningaríkur maður. 

 

Í dagsins önn var Jón Ólafsson höfundur nýyrðanna:

Lindarpenni,strokleður,afbrigðilegur, bandalag, dómgreind, eldmóður, félagslund, fjölbreytni, fjölhæfi, fjölhæfni, formælandi, talsmaður, frumkvæði, frumlegur, frumleiki , hugðarefni, hugnæmur, íhlutun, jákvæður, neikvæður, misbeita, ófremdarástand, ofstækismaður, raunhæfur, raunvísindi, réttmætur , rétttrúaður, rökleiðsla, rökræða, samkeppni, sérlyndi, siðmenning, skilgreina, smásálarskapur, stjórnmálamaður, umburðarleysi, uppeldisáhrif, valdhafi, vanmeta, viðfangsefni, víðtækur, þröngsýnn.

Flest orðin eru  notuð enn í dag. En Jón varð að búa þau til til að geta tjáð hugsun sína fyrir einföldum sálum á þeirri tíð.

Jóni Ólafssyni var hinsvegar ávallt mest í nöp við heimskuna ótrúlegu í fari mannkynsins og reyndi ávallt að kenna og uppfræða alþýðu.

Hann mælti við mann af munni fram daginn áður en hann dó, 67 ára gamall:

"Höndin skelfur, heyrnin þverr,

helst þó sálar kraftur.

Sjónin nokkuð ágæt er

og aldrei bilar kjaftur".

En er ekki gott þegar menn geta með stífri efrivör gert góðlátlegt grín að sjálfum sér að leiðarlokum eins og Jón þessi Ólafsson sem kallaði sjálfan sig ævintýramann? Og hafði nokkuð til síns máls.

Hefði Jón sætt sig við þá íblöndun bensíns sem myndi rýra kjör lítilmagnanna eins og samþykkt Alþingis ber vitni?.Var þetta ekki sama fólkið og snökti af umhyggju fyrir fátæka fólkinu fyrir kosningarnar? Hefði Jón Ólafsson samþykkt svona ótrúlegt "ófremdarástand" í eldsneytismálum fátæks fólks?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Þetta var mjög fræðandi pistill. Í senn svakalegur, fyrri parturinn, og skemmtilega fróðlegur hinn seinni. Stórmerkilegur maður, Jón Ólafsson, það er ljóst.

Már Elíson, 13.12.2015 kl. 03:40

2 identicon

 Var hann nokkuð Indíafari? :-)

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 13.12.2015 kl. 10:35

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Már. Já hann reyndi margt hann Jón. Líklega hefði hann viljað geta komið fleiru til leiðar. Langar dvalir hans í Vesturheimi gáfu honum líklega talsvert víðari sjóndeildarhring en meðal íslenskra fátæklinga.Honum sveið efnaleysi þeirra mikið og kenndi Dönum um það í miklu óhófi að manni finnst. Hann vildi flytja alla Íslendinga til Alaska þar sem þeir myndu getað búið við betri skilyrði og þá var olían alveg eftir ófundin.Hann var ótrúlegur brokkari allt sitt líf.

Nei Rafn Haraldur, það var miklu eldri maður en stórkostlegur líka..

Halldór Jónsson, 13.12.2015 kl. 11:46

4 identicon

Þakka þér fyrir greinina þar sem þú minnir á orðasmíð langafa þíns.  Ég las þessa bók Mills á sínum tíma en hafði ekki hugmynd um að öll þessi merkilegu orð sem þú nefndir væra frá Jóni Ólafssyni komin. Ég játa að ég trúði þér ekki í fyrstu og fletti eitthvað 10 orðum upp í Orðabók Háskólans. Og viti menn! Öll orðin frá Jóni komin.

Þakka þér fyrir að minna okkur á þetta! Og halda uppi minningu um þennan stórmerkilega (ævintýra(mann). Það er góð tilfinning að vera frá góðum kominn!

Eggert Ásgeirsson

Eggert Ásgeirsson (IP-tala skráð) 16.12.2015 kl. 07:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 3418433

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband