Leita í fréttum mbl.is

Sámur fóstri

er kominn út.

Endilega kíkið á blaðið

http://issuu.com/radandi_auglysingastofa/docs/samur_fostri_1_tbl_mars_2016_280x42

Tökum gjarnan við commentum á blaðið í hvora átt sem er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Blaðið er komið til mín og enn einu sinni vil ég óska ykkur aðstandendum þess til hamingju og ennfremur þakka gott blað.

Jóhann Elíasson, 24.3.2016 kl. 17:13

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Spennandi verð að kíkja hvort mér hefur verið sent eintak.

Helga Kristjánsdóttir, 24.3.2016 kl. 18:05

3 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Höfðingsskapur: sem veglyndi mikið, af þinni hálfu Verkfr. snjalli, að standa fyrir þessarri þörfu og merku útgáfu.

Þau eintök - sem borist hafa inná mitt heimili til þessa, rifja upp ljúfsárar minningar um, hversu vel úr garði gerð var, Ísafold Björns heitins Jónssonar - reyndar: löngu fyrir tíð okkar núlifenda, en, ....... Sögum Ísafoldar, sem til voru í bókasafni föður míns heitins, í skinnbandi, heima á Stokkseyri,mun ég aldrei gleyma, gott fólk.

Tek alfarið undir: með þeim Jóhanni Stýrimanni, sem og nöfnu minni Kristjánsdóttur, hér efra.

Með beztu kveðjum - sem endranær / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.3.2016 kl. 19:44

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta öll sömul. Ég man eftir Ísafold og Vörðu í Borgarfirðinum í stríðslokin. Þetta var mikil sending sem okkur barst eins og raunar flest í þá daga. Tíminn kom í brúsunum frá Borgarnesi en minn bóndi lét hann hafa forgang til vissra hluta, því aldrei var keyptur klósettpappír til sveita.

Það var sett rúlla fram  þegar tignir gestir komu en jafnharðan fór hún inn í skáp þegar gesturinn bakkaði frá heimtröðinni og Tíminn og eilífðin tóku við að telja stundirnar. Sem eru núna meira horfnar en þessar ungu stundir hugans.

Halldór Jónsson, 24.3.2016 kl. 20:08

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Pósturinn Páll og kötturinn Njáll eru ekki lengur eins tryggir og skilvirkir og var.  En hér norðan á nesinu njótum við enn þjónustu flutningafyrirtækisins Ragnar og Ásgeir og hef ég það fyrir sið að panta allt frá saumnálum til járns í tonnavís með þeim, því þótt fyrirkomi að pósturinn Páll og kötturinn Njáll hafi staðið sig og skilað af sér hér í póstbúrið þá getur það reynst þrautin þyngri að ná nauðþurftum þaðan út.

En blað það er þið hafið hér mært þætti mér gaman að sjá og flutninga bílum Ragnars og Ásgeirs sem á stundum eru um fimmtíu  tonn munar ábyggilega ekkert um eitt svona blað, eða hvað, á að borga hvar? 

Hrólfur Þ Hraundal, 25.3.2016 kl. 07:39

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Því miður verðég að hryggja þá sem ekki búa í Suðurkjördæmi með því að enn er Sámur ekki stærri en svo að vera borinn út þar með póstinum.

Þau ykkar sem ekki geta nýtt sér að lesa blaðið í tölvunni á pdf formi með því að fara á slóðina sem gefin er geta með því að senda mér heimilsfang sitt á halldorjonss@gmail.com fengið mig til að póstleggja ykkur bloggvinum mínum eintak

Halldór Jónsson, 25.3.2016 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3417960

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband