24.5.2016 | 08:49
Málefni útlendinga
eru í mikilli þöggun hérlendis. Sjálfskipaður sérfræðingar flokkanna, eins og Unnur Brá hjá Sjálfstæðisflokki og Óttar Proppé hjá einhverjum vinstri flokknum, sjá um að berja niður allar efasemdir sem menn kunna að hafa gagnvart því að hafa hér sem mest opin landamæri.
Þar sem málefni útlendinga eru í meiri nánd í Evrópu en hér enn sem komið er, þá er ekki hægt að líta fram hjá því að fólk er ekki lengur tilbúið að láta segja sér fyrir verkum. Naumur ósigur Hofers í Austurríki sýnir að þessi mál eru að fá meira vægi. Kjósendur sjá í umhverfi sínu hvílík vandamál skapast með of öru aðstreymi framandi fólks. Því finnst það vera að komast í stöðu þar sem verið sé að taka af því eigið föðurland. Á Íslandi vakti Jón Magnússon sá góði lögfræðingur athygli á því að hælisleitandi kostar skattþegna um helmingi meira heldur en innlendur öryrki fær í sinn hlut og hann sárlega vantar.
Ef íslenskir stjórnmálaflokkar halda að þeir geti bara stungið hausnum í sandinn gagnvart þessum málaflokki, þá ,munu þeir þurfa að fást við nýja andstæðinga. Sjálfstæðisflokkurinn verður að hlusta á fleiri raddir um útlendingamál en Unni Brá og Áslaugu Örnu.
Einar S. Hálfdánarson, sá skeleggi endurskoðandi og lögmaður, skrifar góða grein í Morgunblaðið um þennan málaflokk. Þar sem vinstri menn lesa ekki Mogga þá vek ég í mínum vanmætti athygli á þessu hér>:(ég feitletra að vild)
"Í upphafi frumvarpsins segir að markmið laganna sé að tryggja að mannúð og skilvirkni ríki við meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi. Það er gott og blessað. Ekkert er vikið að markmiðum á borð við öryggi landsins.
Frumvarpið er langhundur og stjórnarfrumvarp lagt fram af innanríkisráðherra, varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Þess verður hvergi vart í því ráðuneyti að því sé ekki einfaldlega stýrt af embættismanni að svo miklu leyti sem því er yfirleitt stjórnað (eins og reyndar fleiri ráðuneytum).
Ýmislegt er athugavert við frumvarpið, svo vægt sé til orða tekið. Neiti útlendingur sem sækir um alþjóðlega vernd að gangast undir aldursgreiningu er óheimilt að byggja synjun umsóknar hans á þeirri ástæðu einni. Hvers vegna ætti svona vitleysa að standa í lögum?
Umsækjanda um alþjóðlega vernd skal standa til boða húsnæði, lágmarksframfærsla og nauðsynleg heilbrigðisþjónusta, þar á meðal vegna geðraskana og geðfötlunar.
Ekki væri nú dónalegt að setja sambærileg ákvæði í lög um réttindi Íslendinga.
Markmiðið um skilvirkni virðist hafa farið fyrir ofan garð og neðan. Augljóst er af lestri frumvarpsins að ekkert hald er í svo að hægt sé með skilvirkum hætti að greina á milli flóttamanna og þeirra sem ætla að koma sér á framfæri velferðarkerfisins undir því yfirskyni.
Það er þó enginn vandi, en þá þarf að gera það sem mörgum veitist orðið erfitt; segja hlutina eins og þeir eru.
Hugtakið ofsóknir og túlkun þess er sérfyrirbrigði í frumvarpinu. Ekki verður betur séð en að maður sem ekki er ofsóttur verði alger undantekning.
Kostnaðaráhrif frumvarps ráðherrans snúa aðallega að starfsemi Útlendingastofnunar, segir hún. Þetta er hreinlega alveg ósatt. Frumvarpið, verði það að lögum, mun leiða til mikils kostnaðar fyrir ríkissjóð vegna fjölgunar þeirra útlendinga sem munu geta komið hér undir ýmsu yfirskyni og ekki geta eða vilja framfleyta sér.
Um það talar reynsla annarra þjóða skýru máli. Hlutfall þeirra er þekkt stærð og nær upp í 90% af fjölda af ákveðnum þjóðum. Svo er bara að reikna. Vill hún ekki birta slíka útreikninga?
Forsætisráðherra Svía segir þá hafa verið barnalega í málefnum útlendinga. Þar hefur allt farið úr böndunum.
Þjóðarsamstaða er orðin í Danmörku um að móttöku fólks sem er í leit að ókeypis framfærslu verði hætt og reglur og eftirlit hert. En við Íslendingar þurfum víst ekki að hlusta á og læra af reynslu annarra.Við getum öll mál leyst betur en aðrir.
Þetta frumvarp þarf að ræða af raunsæi, líka á Alþingi.
Vinstrimenn verða einstöku sinnum að geta talað um kostnað, ekki bara afgreitt öll varnaðarorð sem rasisma þótt það sé einföld leið til að koma sér undan því sem ekki er þeirra sterka hlið, rökræðunni.
Og sjálfstæðismenn í þingflokki sjálfstæðismanna þurfa líka að þora að tala, ekki bara Unnur Brá. Ef flokkarnir á þinginu geta ekki tekið á vandasömum málum munu aðrir koma fram sem bjóða lausnir. Það á ekki bara við í Skandinavíu.
Menning kemur oft við sögu í frumvarpinu, menningarárekstrar hvergi. Samt er það svo að enginn breytist við það að fara yfir landamæri.
Píratinn Helgi Gunnarsson sagði að málið myndi leysast ef við lærðum að bjóða góðan dag eða heilsast á arabísku! En skríllinn sem birtist svo oft í fréttum á torgum þaðan sem flóttamenn eru fjölmennir verður áfram skríll hvernig sem heilsað er.
Reyndar þarf Helgi að læra meira en bara að heilsa á arabísku ef svo fer fram sem horfir. Mikill meirihluta flóttamanna frá Afríku og Austurlöndum er karlmenn á besta aldri sem best geta spjarað sig.
Það er skylda okkar að veita hinum sem verst eru staddir aðstoð, þar á meðal hæli eftir því sem getan leyfir. Þetta á augljóslega við um trúflokka minnihlutahópa í Austurlöndum, þ.e. þá sem eftir eru.
Yfirborðsleg alheimsbjörgunarárátta sem hrjáir svo marga er ekki svarið. Það er víst."
Þarna kemur fram rödd þess sem vill vara við að fljóta sofandi að feigðarósi.
Í vinstri pressunni í dag er forystugreinin einnig að taka á þessu alþjóðlega vandamáli. En á hinn sérstæða þöggunarhátt vinstri manna:
"...Íslensku stjórnmálaflokkarnir flestir hafa staðið sig ágætlega í að sleppa því að notfæra sér hinn fúla pytt kynþáttahaturs hingað til.
Þeir hafa hins vegar staðið sig misvel í því að reyna að þegja frá sér vandamálin.
Áhugavert verður að sjá hvort það muni breytast í komandi þingkosningum, hvort flokkarnir muni breyta áherslum sínum eða hvort Íslenska þjóðfylkingin, sem hyggst bjóða fram í haust, muni njóta einhvers stuðnings. Það verður að teljast ólíklegt en ekki útilokað.
Kynþátta- og útlendingahatur er samfélagslegt krabbamein sem mikilvægt er að uppræta áður en það breiðir frekar úr sér. Þróunin í nágrannaríkjum okkar er víti til varnaðar og mikilvægt að kynþátta- og útlendingahatarar fái skýr skilaboð frá æðstu stöðum um að sjónarmið þeirra séu einskis virði í samfélaginu og ekkert verði gert til að koma til móts við brenglaðar lífsskoðanir þeirra."
Ekkert nema hugsanalögregla er i boði kommúnista sem skal berja niður alla ranghugsun að mati elítunnar.Því var við að búast af okkur sem eldri eru að alþjóðahyggja vinstrimanna væri söm við sig þegar málefni óvelkominna útlendinga bæri á góma.
"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:51 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ekki oft sem ég er sammála, en algjörlega fyrir þessum pistli.
Óli Már Guðmundsson, 24.5.2016 kl. 10:53
Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !
Halldór !
Samt: hafið þið / sem kallið ykkur Sjálfstæðismenn, EKKI döngun og þor til, að REKA dulur og smjaðurskjóður fyrir Múhameðsku villimennzkunni, eins og Unni Brá Konráðsdóttur og vini hennar, úr þessum litlausa miðju- moðs flokki ykkar.
Þess vegna - skil ég ekki, þessi klöguljóð þín Halldór minn, í þessa veru, daginn út / sem daginn inn.
Eða - hvaða tilverurétt á þessi flokks nefna ykkar, ef þið þorið ekki að taka á málum, af fullri hörku ?
Svo - er meðvirkni margra ykkar, með enn einni Múhameðs sleikjunni, Davíð nokkrum Oddssyni, lítt til þess fallin, að auka hróður ykkar, fornvinur góður !
Samt: sem áður / með beztu Falangista og Kúómingtang (hreyfingar Chiangs heitins kai- Shek á Taíwan) kveðjum // þrátt fyrir ístöðuleysið, sem pólitískt umkomuleysi ykkar, Halldór minn ///
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.5.2016 kl. 12:09
Takk Halldór. Í raun er það að gerast hægt og bítandi í Evrópu, að góðafólkið er að styrkja þá sem hingað til hafa talist til öfgaflokka.
Fari svo fram sem horfir þá gerist þetta svipað hér, en fyrst þarf góðafólkið að æsa upp öfgamennina og bæta í þann hóp móðursjúkum kerlingum sem hugsa með hjartanu.
Hrólfur Þ Hraundal, 24.5.2016 kl. 12:12
Halldór góð grein og þörf. Þetta mál er grátlegt og að einhver skuli koma með svona frumvarp þegar hér eru hundruðin af hælisleitendum ásamt fólki sem vill komast á kerfið hér. Hér er grátið og safnað til styrktar fyrir fullfrískt fólk sem hefir verið deportan. Óskar það skiptir engu hvaða flokkur er með þessa tillögu en þetta hefir viðgengist hjá öllum ríkisstjórnum sem vilja helst setja bombu inn í þjóðfélagin og tvístra okkur.
Valdimar Samúelsson, 24.5.2016 kl. 15:32
Komið þið sælir - á ný !
Valdimar !
Nei: það er rétt hjá þér, fornvinur góður.
Allir 6 flokkarnir - sem nú hafa fólk á þingi, eru eymd og rotnun innri spillingar samofnir.
Undanskil reyndar: Ásmund Friðriksson, sem hefir góð orð um, að styðja og styrkja PEGIDA hreyfinguna Austurrísk- Þýzku, þegar hún næði að festa rætur, hérlendis.
Íslenzka Þjóðfylkingin nýja - er bara vonbrigðum undirorpin, glaðklakkalegur frjálslyndis- og sýndar lýðræðisflokkur, sem mér þykir einsýnt, að muni ekki komast á flug / vilja áframhaldandi aðild að EFTA og NATÓ, t.d., auk þess að stugga EKKI:: á nokkurn hátt, við því Mekku liði, sem fyrir er í landinu, nú þegar.
Við eigum litla samleið: með þess háttar stássi, Valdimar minn: þér, að segja.
Eygló nokkur Harðardóttir: ein af undirsátum Sigmundar Davíðs og Bjarna klíkunnar og meðlimur, er nú búin að hleypa af stokkunum, áætlun um komu Sýrlenzks innrásarliðs (''flóttamanna''), austur í Selfoss skíri / sem og í hjá leigum þess (Sandvíkur / Eyrarbakka og Stokkseyrarhreppa), svo og til Hveragerðis, á komandi Hausti.
Eitt dæmið til - um það ÖNGÞVITI, sem vinir Halldórs síðuhafa eru að efla hérlendis, til enn meiri tjóna, en orðin eru, Valdimar.
Austurríski Frelsisflokkurinn: vinir okkar / og liðsmenn Norberts Hofer, hygjast kæra úrslit göróttu forseta kosninganna, þar syðra á dögunum - og er það vel.
Frelsisflokkurinn Austurríski - starfar í anda hins þróttmikla Fidesz flokks Viktors Orban í Ungverjalandi, auk þjóðfrelsisinnanna í : Slóvakíu / Tékklandi / Póllandi og víðar, sem:: EINMITT, vilja LOKA fyrir frekara aðstreymi Múhameðsku villimannanna, til Vesturlanda !
Með sömu kveðjum - sem seinustu, /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.5.2016 kl. 17:02
hvenær rennur upp sá dagur á Íslandi AÐ- FÁTÆKUM OG SJÚKUM SAMLÖNDUM SE BOÐIÐ HUSASKJÓL OG LÆKNISHJÁLP AUK ANNARA FRÍÐINDA - 'ISLENDINGAR ERU ORÐNIR OLNBOGABÖRN Í EGIN LANDI !!!!
Erla Magna Alexandersdóttir, 24.5.2016 kl. 20:36
Hér er frétt frá Danmörku um sýrlenzkan flóttamann, Daham Al Hasan, sem kom til Danmerkur fyrir tveimur árum og býr í heilu skólahúsi í bæ á Jótlandi með einni af þremur eiginkonum sínum og átta börnum.
http://ekstrabladet.dk/nyheder/samfund/ekspert-derfor-kan-daham-faa-20-boern-og-tre-koner-til-danmark/6095171
Hann vill nú fá hinar tvær eiginkonur og önnur 12 börn frá Sýrlandi til Danmerkur. Skv. dönskum lögum og áiti lögmanna virðist ekkert vera því til fyrirstöðu.
Hann hefur lýst því yfir að hann vilji hvorki vinna né læra dönsku. En þessi 24ra manna fjölskylda verður á framfæri danskra skattgreiðenda alla ævi.
Pétur D. (IP-tala skráð) 24.5.2016 kl. 21:47
Þetta er Sænska úrelta fyrirmyndin. Sómalíumaðurinn sem fylgdi konu sinni á Östrasjúkrahúsið í Gautaborg, því hún var að fara að eignast sjöunda barnið, brosti út undir bæði eyru:
Nú þarf ég aldrei að vinna í Svíþjóð, því barnabæturnar eru svo háar. Þetta var 1995.
Allt fólk í þriðja heiminum veit þetta. Fólkið hefur síma!
Og þetta er næsta skref hér ef Öfgavinstri fær að ráða.
Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 24.5.2016 kl. 22:23
Komið þið sæl - á ný !
Nú er að sjá til: hvort Halldór síðuhafi / og aðrir dyggustu fylgismenn Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, auk 1/2 Guðsins þeirra:: Davíðs nokkurrs Oddssonar TREYSTI sér til, að lýsa yfir fullkominni andstöðu við þetta óstjórnar- gengi í landinu, sem stýrir vitfirr ingunni, úr kjallara Valhallar (við Háaleitisbraut, þar syðra) sem og úr fylgsni svokallaðra Framsóknarmanna einnig, gott fólk.
Ekki hvað sízt - í ljósi þeirrar staðreyndar, að Eygló Harðardóttir / Dagur B. Eggertsson í Reykjavík / Ásta Stefánsdóttir á Selfossi, og stalla hennar: Aldís Hafsteinsdóttir í Hveragerði hafa nú FRÍTT SPIL, með óheftan innflutnning Sýrlendinga Múhameðskra, sem og annan óþjóða lýð,af áþekkum slóðum, á komandi misserum og árum.
Hversu lengi: hyggist þið orna ykkur, við elda upplausnar innar, sem hafin er í landinu, Halldór Verkfr.,án harka legrar mótstöðu, við Anarkisma frjálshyggjunnar ?
Kveðjur samt: þó í þyngra lagi séu, að þessu sinni /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.5.2016 kl. 23:39
Halldór, good thing you are not a politician. If you were a politician, the good people at RUV would be doing everything within their power to destroy your career and reputation forever.
Leif Nennerfelt (IP-tala skráð) 25.5.2016 kl. 06:05
Svona er farið að því að stýra stjórnsýslunni.
Það var ráðist á stjórnsýsluna, og þeir sagðir rasistar og fullir af mannvonsku.
Þeir fengu engan frið.
Stjórnsýslan var fljót til, vildi losna við árásina, óþægindin.
Stjórnsýslan byrjaði að flytja inn Islamista.
Fræðingar í kringum stjórnsýsluna fitnuðu sem aldrei fyrr, við að aðstoða við innfluttninginn.
Súníta Moska skildi reist sem fyrst.
Á sama tíma neyddist Bandaríkja þing og síðan stjórnsýslan, það er Kerry, til að lýsa yfir að Islamistar væru að fremja þjóðamorð á Kristnu fólki og Yazids í Mið-Austur löndum.
slóð
Ekki hefur heyrst orð frá íslensku stjórnsýslunni um að hjálpa, bjarga Krisna fólkinu og Yazids fólkinu.
Það má vel vera að olíupeningar flóa ríkjanna, eigi alla stóru fjölmiðla heimsins og fjölmiðla kerfið á Íslandi.
Þá er ástæða fyrir okkur að skilja að þessir sömu aðilar, geta nú sem fjárfestar keypt allt land og fyrirtæki á Íslandi.
Við verðum að upplýsa þetta fyrir næstu kosningar.
Egilsstaðir, 25.05.2016 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 25.5.2016 kl. 08:36
Aðgerðir ISIS í Iraq og Sýrlandi þjóðarmorð, segir Kerry, Stjórnsýslan USA og The House, fulltrúadeildin í USA.
Hvar á Moska Shíta að vera. Nú hafa Súnítar og Shítar verið í stórstríði í 1400 ár. Þá verðum við að ákveða hvar landamærin eiga að liggja á milli trúfélagana, þessara stríðandi fylkinga?
Fyrst var talað um að Tyrkir tækju flóttamennina til baka og sendu þá áfram til Evrópu. Einnig var talað um að opna á Shengensamstarf, það er að opna landamærin til að Tyrkir gætu sennt endalausan straum af flóttamönnum til Evrópu.
Jónas Gunnlaugsson, 25.5.2016 kl. 08:42
Seint koma sumir en koma þó. Mig langaði bara að segja að Jón Magnússon er búinn að vera að skrifa hvern sterkan pistilinn á fætur öðrum um flóttamannamál (og önnur mál líka).
Elle_, 30.5.2016 kl. 17:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.