Leita í fréttum mbl.is

Hverjir eiga loftrýmið?

yfir Íslandi ? Íslenska ríkið kostar loftrýmisgæslu sem fjölþjóðaherir stunda fyrir ómældar fjárhæðir. Við stjórnum stærsta loftrými heims. Við getum sagt því upp ef við ætlum ekki að ráða við þennan lýð.

Það er dæmt og dæmt eum kjör flugumferðarstjóra en flugumferðarstjórar láta það sem vind um eyru þjóta. Mæta ekki, skrópa, ljúga opinberlega og bulla.  Það er ekki hægt að finna nema 1 mann á vakt á Keflavíkurflugvelli segja þeir. Fleiri eru ekki tiltækir vegna skyndilegrar mannfæðar í stéttinni að sögn þeirra félags. Hvar erum við stödd? Á revíu?

Hver á loftrýmið? Þjóðin? NATO ? Flugumferðarstjórar?

Hverjir stjórna fjölda flugumferðarstjóra? Flugumferðarstjórar.

Hverjir mennta flugumferðastjóra? Flugumferðarstjórar.

Hverjir borga? Ég og þú.

Reykjavíkurflugvöllur er dæmi um flugvöll þar sem hægt er að loka turninum og skilgreina völlinn sem óstjórnaðan. Stærri velli þekkir maður frá Bandaríkjunum þar sem svo er háttað.

Þetta gengi alveg hér eins og þar. Þarna losnar heilmikill fjöldi flugumferðarstjóra sem geta þá gengið vaktir annarsstaðar. Það er hægt að gera þetta á morgun með einni tilskipun.

Af hverju lætur ríkið eða þjóðin bjóða sér þennan ruddaskap og niðurlægingu af hálfu félags flugumferðarstjóra? Er þetta flugumferðarstjórafélag stéttarfélag eða annars konar félag sem þekkt eru úr Vesturheimi aðallega?

Eiga þeir loftrýmið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Íslenska ríkið kostar ekki loftrýmisgæslu sem fjölþjóðaherir stunda fyrir ómældar fjárhæðir. Við stjórnum stærsta loftrými heims og fáum greitt fyrir það. Flugumsjón sú er fram fer á Íslandi er Íslenska ríkinu að kostnaðarlausu. Íslenska ríkið hagnast vel á flugumsjón.

Réttinda og launabarátta flugumferðarstjóra hefur áhrif út fyrir stétt flugumferðarstjóra. Stétt með stétt er eitur sem atvinnurekendur þola illa. Því setja þeir ætíð dæmið þannig fram að aðrar stéttir launamanna snúast á sveif með atvinnurekendum að halda launum niðri og koma í veg fyrir hækkanir. Þeir vita að sameinaðir stöndum vér en sundraðir föllum við. Deilum og drottnum er þeirra kjörorð. Látum launþegana berja á hver öðrum.

Davíð12 (IP-tala skráð) 10.7.2016 kl. 00:20

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Davíð12 komin aftur. Flugumferðastjórar hafa ekki sýnt samningsvilja og kosta þessari þjóð mikla peninga . Þeir hafa margfalt meira kaup en almúgin hvað þá eftirlaunafólk. Þeir vilja ekki semja það er málið. Upphæðir skipta þar engu.

Valdimar Samúelsson, 10.7.2016 kl. 09:11

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Valdiomar, ég var líka að vona það sama og þú

Halldór Jónsson, 10.7.2016 kl. 10:30

4 Smámynd: Halldór Jónsson

með Davíð 12

Halldór Jónsson, 10.7.2016 kl. 10:30

5 identicon

Það er sorglegt að sjá launþega ráðast á aðra launþega og taka málstað atvinnurekenda. Að varpa sökinni á launþegann þegar hann þiggur ekki með þökkum og auðmýkt þá aumu smjörklípu sem atvinnurekandinn býður honum.

Og að nota þau rök að almúginn og eftirlaunafólk séu á lágum launum og því ættu aðrir launþegar ekki að krefjast hærri launa og betri vinnuskilyrða er hinn mesti undirlægjuháttur. Hefðuð þið eitthvað bein í nefinu væru þið ekki á lágum launum og stæðuð með öðrum launþegum í stéttarbaráttunni.

Vinnuveitendur eiga góða samherja í ykkur stéttarsvikurunum sem í öfund og aumingjaskap getið ekki unnt öðrum launamönnum mannsæmandi afkomu.

Davíð12 (IP-tala skráð) 10.7.2016 kl. 14:50

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór Davíð12 kemur alltaf inn með mótmæli reyndar hef ég aldrei lesið eitt né neitt eftir hann en þar að kíkja á pakkan hans. NoOffence Davíð. 

Valdimar Samúelsson, 10.7.2016 kl. 15:24

7 identicon

Eru einhverjar fleiri stéttir Halldór sem þú vilt banna með lögum að vera veikar eða skylda með lögum til að vinna yfirvinnu þegar þér hentar?

ls (IP-tala skráð) 11.7.2016 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband