Leita í fréttum mbl.is

Pótemkin

var fursti sem frægur varð að hafa leiktjöld sem sýndu afrek hans í efnhagsmálum þegar drottningin ók hjá. Ástandið var hinsvegar dulið bak við leiktjöldin. 

Ég man eftir því að Pólarnir voru málaðir þegar kóngurinn kom í gamla daga. Hann þurfti að keyra framhjá blessaður og þeir þóttu hrörlegir. Þar bjó fátækt fólk í húsnæði sem ekki þótti annars borga sig að halda við og því var helst lítið gert í málum hússins og sérstaklega málefnum íbúanna sem bjuggu við margar slæmar aðstæður bak við nýju málninguna.

Málningin á Pólunum varð því einskonar stjórnmálaleg viljayfirlýsing sem beindist að því að sýna kónginum að við værum alveg að fara að redda þessu. Viðreisn er alveg að fara að redda þessu ef við göngum í ESB.

Ég sló upp á síðu Viðreisnar. Ég segi að ég er eiginlega bit hvað búið er að gera Pólana flotta að utan. Hvar íbúarnir eru veit ég minna um. En þarna eru svakalega flottar stefnuskrár í atvinnulayouti og grafík sem Benedikt má vera stoltur af. 

Þarna eru talsverðir peningar á ferð. En ekki kenndi ég marga af því fólki sem auglýst er sem forsvarsfólk, kannaðist við einn en kem honum ekki fyrir mig í bili.

Svo ég fór að lesa stefnumálin. Þau eru auðvitað samin af kunnáttumönnum og soðin upp úr þeim ótal óskalistum sem flokkar eins og til dæmis Sjálfstæðisflokkurinn hafa sett fram í áranna rás. Kliðmjúkt í öllum málum sem hringsnúast um það eina mál sem ég fann til að vera ósammála: Innganga í Evrópusambandið

Það er hið mikla baráttumál sem þeir kalla Vestræna Samvinnu undir stóru Evrumerki. Hugsanlega væntanlegt flokksmerki.

Alltaf hef ég skilið hugstakið Vestræn Samvinna öðruvísi og að hún kæmi ekki ESB við. Byggðist á allt öðrum málum  alls hins vestræna heims.

En öll önnur mál snúast um þetta atriði þar sem það er lagt sem nokkurskonar grunnatriði eftir því sem lýst er hvernig Fróðafriður sá skuli samsettur sem ríkja skal á Íslandi.

Flokkurinn hefur ekki haldið neinn landsfund né lagt málefni sín til umfjöllunar flokksmanna. Þetta er því ritverk fárra höfunda og hlýt ég að lesa það með tilliti til þess.

Svona hljóðar Manifesto Viðreisnar:

Réttlátt samfélag

Allir skulu hafa rétt til góðrar heilbrigðisþjónustu, menntunar og félagslegrar þjónustu. Lífskjör á Íslandi verði svipuð og í nágrannalöndum og gróska í menningarlífi.

Jafnvægi

Stöðugt efnahagslíf og fjölbreytt atvinnutækifæri. Sköpun verðmæta með hugviti og skynsamlegri nýtingu auðlinda til framtíðar. Hallalaus fjárlög og skuldir ríkisins lækkaðar.

Viðskiptafrelsi

Markaðslausnir þar sem við á, gjaldeyrishöft felld niður, engar samkeppnishindranir. Frelsi, jafnrétti, lýðræði og jafn atkvæðisréttur fyrir alla.

Vestræn samvinna

Þjóðin kjósi strax um hvort ljúka skuli viðræðum um fulla aðild að Evrópusambandinu til þess að ná megi aðildarsamningi sem borinn verði undir þjóðina.

 

Hvernig getur nokkur verið óssammála fyrstu þremur atriðunum? "Bind í sveitum sólskinið.." er ákveðið í annarri setningu sem gæti verið óvissa um.

En fjórða atriði skilur á milli. þar er gjá sem enginn andstæðingur ESB aðildar kemst yfir.

Ég tel að Íslendingar séu jafnmiklir Ameríkumenn og Evrópumenn í það minnsta. Ég þoli illa að heyra talað um það að Íslendingar séu Evrópumenn þegar við eiga miklu stærri skyldmennahóp vestan hafs. Landstærðirnar vestan hafs eiga líka miklu betur við okkur Íslendinga en þröngbýlið og smáborgaralíferni Evrópumanna.

En hvað leysist með því að kjósa Viðreisn í stað Sjálfstæðisflokkinn. Nýr og ferskur kannski og laus við doðann sem nú heltekur móðurflokkinn. Vinsæll foringi kosinn í fjöldakosningu? Flokksdeildir um allt land? 85 ára saga orðheldni og hugsjóna eða nýtt blað?  

Við vorum búin að hafna ESB með 90% hætti á Landsfundum Sjálfstæðisflokksins. Til hvers þarf þá enn einn Samfylkingarflokk til að halda því að þjóðinni? Aðildin fer aldrei í gegn meðan Sjálfstæðisflokkurinn stendur saman.

Pótemkín tjöld blekkja engan til lengdar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gott hjá þér, Halldór, sem oftar! smile

Heilar þakkir fyrir þína varðstöðu um fullveldi landsins, sem sjálfstætt á að geta samið við allar þjóðir um verzlun og viðskipti. Eins og fáeinir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins gera sér grein fyrir, einna helzt Sigríður Á. Andersen alþm., þá eru tolla- og vörugjalds-lækkanir gagnvart Bandaríkjunum margfalt meira hagsmunamál Íslendinga en frekari samningar við Evrópusambandið. Og Bandaríkin ætlast ekki til neins fullveldisframsals af okkar hálfu, hvað þá afsals æðsta og ráðandi löggjafarvalds!

Jón Valur Jensson, 14.7.2016 kl. 12:43

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er sammála honum Jóni Vali, að það er miklu vænlegra að halla sér meira að Bandaríkjunum og miklu meira hagsmunamál að gera milliríkjasamninga við þá heldur en ESB. Í Bandaríkjunum er þó hagvöxtur þótt lítill sé en samkvæmt spám er gert ráð fyrir mun meiri vexti þar í framtíðinni en í ESB er hnignun og ekki minkar hnignunin við BREXIT.

Jóhann Elíasson, 14.7.2016 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 3418315

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband