Leita í fréttum mbl.is

Áhlaup á Íslensku þjóðfylkinguna

á Austurvelli í gær. Gunnlaugur Ingvarsson formaður lýsir því hvernig RÚV og Helgi Pírati gera sameiginlegt áhlaup á friðsamlega mótmæli Þjóðfylkingarinnar á Austurvelli í gær. Söfnuður Semu Erlu vildu svo greinilega slagsmál og reyndu að koma þeim af stað með áreiti og ofbeldi.

Verði þetta þróunin áfram að góða fólkið ætli að kæfa mótmæli alþýðu gegn öndverðum skoðunum í líkingu við þau skrílslæti sem menn urðu vitni að á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins, þá fer að styttast í stjórnmálafundi í stíl Weimar-lýðveldisins.

Gunnlaugur flytur sitt mál örugglega með  rökum og án æsinga. Hann ber ákveðið til baka að þjóðfylkingin sé rasískur flokkur heldur nokkurskonar mannúðar-og skynsemisflokkur sem vill koma í veg fyrir þau mistök sem víða hafa verið gerð.

Ég er þó nokkuð ánægður með Gunnlaug sem stjórnmálamann, hann er flugmælskur, vel upplýstur og skýr á málefnunum. Ég hygg að flokkur undir slíkri forystu geti náð raunverulegum árangri þar sem hann er greinilega drifinn af hugsjónum en ekki kerfismennsku. Framboð eru að koma fram og víst er að margir hafa beðið eftir svona fersku stjórnmálafli með stefnu fremur en fleiri útgáfum af Samfylkingunni eins og hér hafa riðið húsum um langan tíma.

Það þarf að fá frekari reynslu á það hvort þetta sé það  sem koma skal. Þeir þjóðfylkingarmenn sem mættu á Austurvelli í gær tóku greinilega áhættu. Þetta góða fólk er greinilega ekki svo gott að óhætt sé að skeyta ekki um eigið öryggi í návist þess.

Ætli frekari og fjölmennari fundir séu í aðsigi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Halldór er ekki kominn tími til að Sema Erla og vinkonur hennar fari að máta Búrkur. Það er það sem koma skal ef þær fá að ráða.

Steindór Sigurðsson, 16.8.2016 kl. 17:11

2 identicon

Nýu útlendingalögin munu kosta skattgreiðendur miljarða á kömandi árum, skattpíning á íslandi er komin upp í topp nú þegar, því er vandséð hvar á að taka fjármunina. Síðan er það fullkomlega galið að hælisleitandi geti komið hingað og óskað eftir alþjóðlegri verd, og samkvæmt lögunum ber skattgreiðendum á íslandi, að sjá honum um framfærslu, húsnæði, heilbrygðisþjónustu, lögfræðingi og fl. allt frítt.    En sjálfur getur hælisleitandinn neitað að segja til aldur, neitað að fara í aldursgreiningu og gefa blóðsýni fyrir DNA sýni, og neitað aðgefa upp þjóðerni, þetta er náttúrlega fullkomlega galið, og hvernig á að hafa upp á eftirlýstum ISIS liðum á Íslandi ef hælisleitendur geta neitð að gefa blóðsýni fyrir DNA próf, er mér hulin ráðgáta.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 16.8.2016 kl. 17:45

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Helgi pírati var nú reyndar ekki að ógna þeim neitt heldur vildi hann bara rökræða við þá um mótmæli þeirra á nýju útlendingalögunum sem eru að mestu byggð á misskiningi. Það sem þeir eru að segja um þau er að mestu bull.

Það reyndi engin að beita ÍÞ ofbeldi en því miður tók ein kona upp á því að ræna skilti af einum þeirra og skemma það. Það var gert án alls ofbeldis en vissulega var þar um þjófnað og skemmdarverk að ræða en þó snerist það sem betur fer um lítil verðmæti.

Það er engin að fara að máta búrkur enda er Sema Erla ekki að gera neitt sem gæti leitt til þess. Ég veit reyndar ekki til að nokkur múslimi hér á landi noti búrkur allavega ekki á almannafæri. Það er aðeins lítill hluti múslimakvenna í heiminum sem gerir það.

Ef hælisleitandi gefur ekki upplýsingar þá dregur það úr líkum hans á að fá hæli þannig að það hittir hann sjálfan þá illa fyrir. En hitt er þó að ef hann neitar að segja hver hann er eða hvaðan hann kom þá höfum við engan stað til að senda hann á og er það alveg óháð útlendingalögum. DNA síni úr hælisleitendum eru bara tekin til að sanna skildleika til að grunvalla fjölskyldusameiningu á. En sumir mótmælenda ÍÞ töluðu eins og það væri verið að rannsaka aldir þeirra með því. Það er ekki gert með DNA sýnum enda efast ég um að það sé hægt. Það er gert með rannsóknum á tönnum þeirra. En hingað til hefur það helst verið útlendingastofnun sem hefur hafnað slíku þó hælisleitendur hafi viljað því með því tekst hælisleitandanum að sanna að hann sé barn og þá fær hann meiri rétt. DNA próf eru líka gagnslaus til að hafa upp á hryðjuverkamönnum nema þeir séu þekktir og til DNA sýni frá þeim. Þegar komið er að slíku geta menn ekki neitað að gefa DNA sýni frekar en í öðrum glæpamálum ef dómari úrskurðar að þeim beri að gefa slík sýni á grundvelli gruns um tengsl við hryðjuverk. Þeir geta hins vegar neitað að gefa slík sýni tengt hælisumsókn. En hælisleitendur eru ekki líkegri en aðrir til að vera hryðjuverkamenn og því snýr baráttan gegn hryðjuverkum ekki neitt um hælisleitendur og ber það einmitt vott um fordóma að tengja þetta tvennt saman.

Sigurður M Grétarsson, 16.8.2016 kl. 17:58

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Undarleg var framkoma Helga Pír.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 16.8.2016 kl. 18:44

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

Takk Halldòr. Þađ var òtrùlegt ađ upplifa andlegu kugunina og hòtanir margra þeirra um likamlegt ofbeldi lika sem þetta folk i No Border vilađi ekki fyrir sig ađ beita. Skođanakugun af verstu sort og synir berlega ađ þetta liđ ber enga virđingu fyrir stjòrnarskrarvörđum retti okkar til fundafrelsis og til ađ viđ faum nptiđ rèttar okkar til màlfrelsis. En viđ stòđum þetta ahlaup af okkur. Ìslenska þjòđfylkingin er komin til ađ vera !

Gunnlaugur I., 16.8.2016 kl. 19:42

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það voru ekki neinar hótanir í gangi um líkamlegt ofbeldi og þaðan af síður var beitt líkamlegu ofbeldi.

Helgi Pírati var bara að reyna að benda fólkinu þarna á að það sem ÍÞ og fleiri hafa verið að halda fram um nýju útlendingarlögin er þvæla. En það kom í ljós að það er ekki hægt að rökræða við þetta fólk. Það bítur í sig bullið og heldur árfam í mótmælum sem eru byggð á bulli jafnvel þó búið sé að sýna því fram á að þetta er bull.

Nýju útlendingarlögin eru ekki að opna landamæri Íslands upp á gátt. Þau hafa veri mjög opin í aldarfjórðung án þess að það hafi verið til vandræða. 

Sigurður M Grétarsson, 16.8.2016 kl. 22:16

7 Smámynd: Elle_

Útlendingarlögin opna landamærin upp á gátt.  Svo var það öfgafullt fólk sem kom þarna og ætlaði að trufla fund Þjóðfylkingarinnar og þagga niður í þeim, þeim sem vilja verja lýðveldið.  Salmann var þarna talandi um hatur sem kom ekki málinu við.  Hann ætti að skoða hvað í alvöru Þjóðfylkingin stóð fyrir.

Elle_, 16.8.2016 kl. 22:40

8 Smámynd: Elle_

Nú coperaði ég villuna hans Sigurðar sem bætti r-i inn í orðið útlendingalögin.

Elle_, 16.8.2016 kl. 22:41

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Nafni minn Guðmundsson

þú segir:...að hælisleitandi geti komið hingað og óskað eftir alþjóðlegri verd, og samkvæmt lögunum ber skattgreiðendum á íslandi, að sjá honum um framfærslu, húsnæði, heilbrygðisþjónustu, lögfræðingi og fl. allt frítt.    En sjálfur getur hælisleitandinn neitað að segja til aldur, neitað að fara í aldursgreiningu og gefa blóðsýni fyrir DNA sýni, og neitað aðgefa upp þjóðerni, .."

Getur til dæmis Sigurður M. Grétarsson útskýrt að þetta standi ekki í lögunum, að þetta sé bara ekki svona osfrv.

Halldór Jónsson, 16.8.2016 kl. 23:16

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Og Gunnlaugur, það er eitthvað dularfullt sem kemur með skrifum þínum, alls kyns tákn sem ég kann ekki deili á. En ég skil þig sem svo að það sé ekki miklu logið í minni lýsingu á atburðum sem í lýsingu Sigurðar M. á ofbeldi hljóðar svona:"Það reyndi engin að beita ÍÞ ofbeldi en því miður tók ein kona upp á því að ræna skilti af einum þeirra og skemma það. Það var gert án alls ofbeldis en vissulega var þar um þjófnað og skemmdarverk að ræða en þó snerist það sem betur fer um lítil verðmæti."

Vonandi er ekki búið að hræða úr ykkur líftóruna svo mjög að þið þorið ekki að halda fundi opinberlega fyrir "stormsveitum" GF. Það er ofar mínum skilningi hvernig menn geta snúið út úr orðum þínum um almenna mannhelgi og kallað ykkur rasista í framhaldi af því. Það hefur alltaf verið stuttur ofbeldisþráðurinn í þessum svokölluðu  vinstri mönnum og beturvitendum eins og löng saga er af á þessu landi, Gúttóslagurinn  og svo 30 marz 1949, búsáhaldabyltingin .eru svona atburðir sem sýna að þetta fólk getur verið hættulegt.

Halldór Jónsson, 16.8.2016 kl. 23:27

11 identicon

Sá sem biður um alþjóðlega vernd, hefur rétt til að neita öllu er varðar einkamál sín, að fara í rándýra aldursgreiningu, blóðsýni, aldur og margt fl. Hvernig í ósköpunum eiga yfirvöld á Íslandi, að geta fylgst með eftirlýstum ISIS stíðsglæpamönnum, ef þeir hafa nær engar upplýsingar, ég bara spyr. Þetta er náttúlega fullkomlega galið, og mun kosta skattgreiðendur miljarða á komandi árum, og verður mikil gróða maskína hjá lögfræðingum á komandi árum,og greinilegt að menn vita ekkert út í hvð þeir eru að fara, það verður að taka upp 48 tíma regluna sem Norðmenn eru búnir að taka upp. Síðan væri hægt að hugsa sér að hælisleitendur sæki um alþjóðlega verd í næsta Íslenska sendiráði í Evrópu, eða norrænu sendiráði við miðjarðarhafið, þetta væri sennilega skásti kosturinn fyrir skattgreiðendur á Íslandi.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 16.8.2016 kl. 23:43

12 Smámynd: Elle_

Í RUV kom fram: Þjóðfylkingin gagnrýnir að ekki hafi verið farið eftir áliti lögreglunnar um frumvarpið um að „það tæki meint persónuverndarréttindi aðkominna fram yfir öryggishagsmuni lýðveldisins“. 
Lögregla tekur mótmælendur afsíðis | RÚV

Mér fannst það vægt sagt ábyrgðarlaust og rolulegt af alþingi og heilli ríkisstjórn.  Kýs ekki roluflokka.  Líka aðdáunarvert hvað Þjóðfylkingin sýndi mikla stillingu þarna.  Samt fullyrti Salmann: „Sorglegt að sjá fólk fullt af hatri“

Elle_, 16.8.2016 kl. 23:49

14 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eftir fréttum að dæma er það sem skrifað er hér líklega markverðast. "Kona tók upp á því að ræna skilti af gömlum manni og skemma það.I frh.-- En sem betur fer snerist það um lítil verðmæti"  O,jæja! Það hefði þá verið hægt að fara fram á greiðslu. Vegna aldursmunar var þetta ógnandi ofbeldi og særandi fyrir þáttakanda í nýjasta stjórnmálaaflinu- íslensku þjóðfylkingunni.- En það má líka gera að gamni sínu!! Veit nokkurn vegin hvar ég hef Sigurð,en hélt satt að segja að hann hefði brugðið sér í komik,þegar hann fjallaði um DNA-sýnatöku hælisleitenda."En sumir mótmælenda ÍÞ töluðu eins og það væri verið að rannsaka aldir þeirra".  Varla eru þeir svo framandi,en oft hef ég óskað að það væri hægt að leiðrétta á blogginu,eins og á Facebook þegar manni verður á í áslættinum.

Helga Kristjánsdóttir, 17.8.2016 kl. 01:01

15 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Er það rétt að Helgi Hrafn Sjóræningi sé laumumússi, eða er Birgitta búin að gera hann glórulausan?

Spyr sá sem ekki veit.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 17.8.2016 kl. 05:05

16 identicon

Hann er sami eineltistuddinn og aðrir Natódindlar og fer ekki leynt með það.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 17.8.2016 kl. 07:12

17 identicon

Tók eftir því, að það var ekki ein einasta frétt

um þetta á Ríkissjónvarpi allra landsmanna

í gærkvöldi.

Hvernig skyldi nú standa á því...???

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 17.8.2016 kl. 11:05

18 Smámynd: Elle_

Það var samt skýr frétt um hvað Þjóðfylkingin var að mótmæla í RUV.is í gær, setti það inn þarna að ofan.

Elle_, 17.8.2016 kl. 12:29

19 identicon

Takk Elle.

Fór fram hjá mér.

Sigurdur Hjaltested (IP-tala skráð) 17.8.2016 kl. 13:21

20 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hin margumtalaða og rómaða millistétt er að vakna.  Hinn þögli meirihluti - hingað til.  Stóru tíðindin eftir  haustkosningar verða ekki kosningasigur pírata!  Bara spurning hvaða framboðsflokkur hefur haft vit á því að höfða til fyrrnefndra.

Kolbrún Hilmars, 17.8.2016 kl. 17:26

21 Smámynd: Halldór Jónsson

Helga, það er til aðferð til að editera athugasemdir. ég hef prufað hana en gat elkki lært hana utanað, flókið mál fyrir mig svona vitlausan

Halldór Jónsson, 17.8.2016 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418331

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband