Leita í fréttum mbl.is

Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla?

eins og gera mátti ráð fyrir þá kemur yfirleitt aldrei nema vitleysa frá vinstri mönnum.

Örn Johnson benti mér á að tillaga Ögmundar væri marklaus og tilgangslaus. Trúbróðir hans Dagur Bé. getur farið sínu fram eins og hingað til. Ég tek undir með Erni vini mínum. Það er tilgangslaust að mæta á kjörstað vegna svona vitleysu. Við Örn sitjum heima.

Í tillögu Ögmundar stendur:

 "Álykti Alþingi að fram skuli fara almenn og leynileg þjóðaratkvæðagreiðsla um tiltekið málefni eða lagafrumvarp fer um framkvæmdina samkvæmt lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, nr. 91/2010

 og er niðurstaða slíkrar atkvæðagreiðslu ráðgefandi.
 

   Öll skynsamleg rök hníga því í þá átt að halda flugvellinum og miðstöð innanlandsflugs í Vatnsmýrinni en verði þar einhver breyting á er nauðsynlegt að öll þjóðin fái að koma að þeirri ákvörðun á beinan og lýðræðislegan hátt."

 

Annaðhvort getur ríkisvaldið stoppað Dag Bé. eða það getur ekki stoppað hann.

Annaðhvort er Ögmundur á þingi eða hann er ekki á þingi.

Ögmundur verður ekki á þingi næst og þá mundi einhver segja farið hefur þaðan fé betra.

Annaðhvort ræður þjóðin eða Reykjavíkurkommarnir.

Annaðhvort verður Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýri eða hann verður ekki í Vatnsmýri.

Það er engin ráðgefandi málamiðlun þar á milli möguleg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Thegar farid er ad tala um rádgefandi atkvaedagreidslur, thá vitum vid, ad thad á ekki ad gera nokkurn skapadan fjandans hlut. Bara frodusnakk til ad reyna líta vel út.

Sigurdur Hjaltested (IP-tala skráð) 1.9.2016 kl. 05:51

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sammála Sigurður,

Ömmi er bara að bullshitta

Halldór Jónsson, 1.9.2016 kl. 16:16

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

 Ömmi fúli og arabinn eru að sanna sig.  

Hrólfur Þ Hraundal, 1.9.2016 kl. 20:12

4 Smámynd: Jón Bjarni

Hvað með að koma upp flugvelli rétt utan Reykjavíkur sem getur líka fúnkerað sem alþjóðaflugvöllur og þannig sinnt bæði innanlandsflugi og svo minnkað álag á KEflavíkurflugvelli?

Getur Reykjavíkurflugvöllur orðið nytsamlegur millilandaflugvöllur?

Jón Bjarni, 2.9.2016 kl. 01:50

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já hvað með það Jón Bjarni, segð þú okkur frá.

Hrólfur Þ Hraundal, 2.9.2016 kl. 05:20

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón Bjarni, þarna ertu að tala um vitrænan hlut.

Færeyingar halda uppi flugsamgöngum við Ísland til Reykjavíkurflugvallar. Ég held að þeir komi einu sinniá dag á fjöurrahreytfla þotu sem er svo hljóðlát að enginn tekur eftir henni Hún bara hvíslar sig niður á brautina og svo eins til baka.

Er ekki furðulegt að enginn Reykvíkingur  gæti séð það til þæginda að héðan gæti farið svona eitt flug á klukkutíma til Evrópu án vandræða.Úr 101 beint á flugvöllinn og kominn í hassið í Kristjaníu á nó tæm í stað þess að eyða 2 tímum í ferðalag til Keflavíkur fyrst. Þaðan far orðið 25  þotur til Vesturheims fyrir hádegi hvern dag og ekki minna eftir ádegi. Til hver eru flugvellir yforleitt? Til að horfa á þá? Til hvers eru hjólreiðastígar? Til að hjóla á þeim? Bulll er þetta. Af hverju ekki að græða milljarða á reykjavíkurflugvelli með því að nýta hann í alvöru?

Halldór Jónsson, 2.9.2016 kl. 08:08

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Að 101 rottugengið í kringum Borgarstjórnarmeirihlutann skjuli ekki geta komið auga á þetta, ég tala nú ekki um venjulegt fólk.

Halldór Jónsson, 2.9.2016 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband