Leita í fréttum mbl.is

87.5% ný viðhorf

fyrir Sjálfstæðismenn í aðsigi?

Í Morgunblaðinu á föstudaginn skrifar Hjörtur J. Guðmundsson merkilega hugleiðingu um hvernig Viðreisn og  Sjálfstæðisflokkurinn geti náð saman um Evrópumál.

Hjörtur segir m.a.:

 „….Málin sem helzt strandar á eru samkvæmt fréttum annars vegar sjávarútvegsmálin og hins vegar Evrópumálin. Viðreisn vill að aflaheimildir verði boðnar hæstbjóðanda sem færi í grundvallaratriðum gegn núgildandi fiskveiðistjórnunarkerfi.

 

Hins vegar fælist í því ákveðinn undirbúningur fyrir inngöngu í Evrópusambandið eins og fleira í stefnu flokksins enda má gera ráð fyrir að bjóða yrði upp aflaheimildirnar á öllu Evrópska efnahagssvæðinu (EES).

 

Hvað varðar Evrópumálin sjálf er ljóst að himinn og haf er á milli Viðreisnar og Bjartrar framtíðar, sem vilja ganga í Evrópusambandið, og Sjálfstæðisflokksins sem er því alfarið mótfallinn og þar með öllum skrefum í þá átt að opna á málið. Til að mynda þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hefja eigi nýja vegferð til Brussel. Einu gildir í þeim efnum þótt reynt yrði að fara í kringum stefnu flokksins með því að láta þingið afgreiða málið. Líkt og Vinstri-græn gerðu 2009.

 

Tækist einkum Viðreisn að fá Sjálfstæðisflokkinn til þess að hunza stefnu sína í Evrópumálum eða fara í kringum hana, sem væri í eðli sínu nákvæmlega það sama, og framkvæma stefnu Viðreisnar með einum eða öðrum hætti yrði það óneitanlega kaldhæðni örlaganna. Þar með hefði Benedikt Jóhannessyni, formanni Viðreisnar, tekizt að fá Sjálfstæðisflokkinn til þess að gera það sem honum mistókst ítrekað á meðan hann var þar innanborðs.

 

Þetta væri hliðstætt og ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði farið í stjórnarsamstarf við Frjálslynda flokkinn á sínum tíma og samþykkt að afnema fiskveiðistjórnunarkerfið. Ríkisstjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn væri raunar sú pólitíska viðurkenning sem Viðreisn þyrfti til þess að festa flokkinn í sessi. Viðurkenning sem hvorki Frjálslyndi flokkurinn né Borgaraflokkurinn hlaut. Enda heyra báðir flokkar sögunni til í dag.“

Í Kryddsíld nú rétt í þessu segir Benedikt að hann sé 87.5 % viss um að hann sé að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum.

Í áramótagrein í Mogunblaðinu í dag segir sami Benedikt:

„…Evrópusamvinnan innan Evrópska efnahagssvæðisins hefur reynst þjóðinni vel, en mikilvægt er að fylgjast með þróun mála þar innan dyra þar sem Ísland er í raun aukaaðili og tekur upp stóran hluta lagarammans, án þess að eiga sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar. Viðreisn er þeirrar skoðunar að rétt sé að þjóðin taki ákvörðun um það hvort aðildarviðræður verði teknar upp að nýju við Evrópusambandið…“

Er Benedikt 87.5% búinn að beygja Sjálfstæðisflokkinn til hlýðni við sig?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Gosi  var og er frakkur, dug mikil við orð án staðfestu og án sannleika og raninn lengist.  

Skjóni er kannski ekki besti klárinn, en þó skárri en asni. 

Ætli Bjarni að tvímenna með Gosa á Skjóna á landsfund, hvað þá?  

Hrólfur Þ Hraundal, 31.12.2016 kl. 15:50

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þakka þér Halldór margt fróðlegt og skemmtilegt og hafðu árangur og nægju sem og fólk þitt allt á nýju ári.   Hrólfur Hraundal

 

Hrólfur Þ Hraundal, 31.12.2016 kl. 15:51

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hrólfur, þakk þér fyrir margar hressilegar athugasemdir á liðinni tíð. Gangi þér allt í haginn á nýju ári og láttu endilegha heyra í þér sem oftast.

Halldór Jónsson, 31.12.2016 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418216

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband