Leita í fréttum mbl.is

Orð í tíma töluð

hjá Friðriki Pálssyni í Morgunblaðinu hinn 10.janúar s.l.

Friðrik segir:

"Óþægilegt var að sjá það í fjölmiðlum síðustu daga, að einn af dómurum Hæstaréttar, þótt hann hafi ekki dæmt í viðkomandi máli borgarinnar gegn ríkinu, sé hluthafi í Valsmönnum hf. og stjórnarmaður í Hlíðarenda ses. Síðarnefnda félagið fer með hlutafjáreign knattspyrnufélagsins Vals í Valsmönnum hf., samkvæmt upplýsingum frá Brynjari Harðarsyni, framkvæmastjóra Valsmanna hf., í Morgunblaðinu 6. mars 2014.

 

Í dómsmálinu fyrir Hæstarétti var tekist á um það, hvort neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar skyldi lokað, en borgarstjóri krafðist þess enda þótt hann væri vel meðvitaður um hversu alvarlegar afleiðingar það myndi hafa fyrir flugöryggi og sérstaklega fyrir sjúkraflug.

 

Forsenda þess að Valsmenn hf, og Hlíðarendi ses, gætu hafið byggingarframkvæmdir eða selt lóðir sínar á Hlíðarendasvæðinu var að neyðarbrautinni yrði lokað. Þessi Hæstaréttardómur skipti því gríðarlegu máli fyrir Valsmenn hf., sem hafa á undanförnum árum þverneitað að gera neinar þær breytingar á byggingaráformum sínum að neyðarbrautin gæti áfram nýst fyrir sjúka og slasaða þegar mikið liggur við. Peningahagsmunir félaganna ganga fyrir.

 

Í Bylgjunni 5. þ.m. lýsir svo Dagur B. Eggertsson því yfir, að »það hefði verið óverjandi að taka á borgina milljarða eða tugmilljarða skaðabætur vegna þess að brautin væri ennþá opin«.

 

Á að skilja orð borgarstjóra þannig að Reykjavíkurborg hafi verið hótað jafnvel tugmilljarða skaðabótakröfu ef brautinni yrði ekki lokað og að borgarstjórinn hafi talið það svo líklegt að þannig skaðabótakrafa yrði samþykkt að hann teldi það óverjandi að taka þá áhættu að leyfa brautinni að standa þar til aðrar lausnir væru fundnar?

 

En er ekki óverjandi að borgarstjóri láti hræða sig með bulli um tugmilljarða skaðabótakröfur sem í þessu samhengi er vitanlega langt utan þess sem gæti nokkurn tímann orðið að veruleika? Óbilgjörn framganga meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur gagnvart notendum flugvallarins í þessari baráttu fyrir lokun neyðarbrautarinnar sýnir að Alþingi verður þegar í stað að bregðast við og tryggja að borginni takist ekki að loka flugvellinum fyrir fullt og allt innan fárra ára, eins og hún hefur ákveðið.

 

Ný ríkisstjórn verður jafnframt að taka málefni Reykjavíkurflugvallar og þá sérstaklega sjúkraflugsins föstum tökum. Ekki er boðlegt að sitja og bíða eftir dauðsföllum vegna rangra ákvarðana, sem lítill vandi er að vinda ofan af. Sjálfsagt er að verða við kröfu sveitarfélaga á landsbyggðinni um tafarlausa opnun neyðarbrautarinnar."

Hér er talað tæpitungulaust um stöðuna eins og hún er. Greinin birtist sama dag og Dagur Bergþóruson Borgarstjóri allra Reykvíkinga í höfuðborg allra landsmanna eyðileggur hófsama tillögu um að gera ráðstafanir til að grípa megi til þessarar brautar þegar aðstæður krefjast.

Er það vansalaust fyrir Alþingi og ríkisstjórn að sitja hjá þegar verndun mannslífa er sett skör neðar en pólitískt bitbein í Borgarstjórn Reykjavíkur á flugvelli allra landsmanna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Hafðu mikla þökk fyrir tæpitungu þína Halldór.

Megi hún skila sér alla leið á borð samgönguráðherra.

Gleymum því heldur aldrei að það eru svona mál sem sýna hið rétta eðli stjórnmálamanna.

Og þar féllu margir á prófinu.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.1.2017 kl. 16:20

2 identicon

Snilldarpistill hjá þér Halldór að venju.

Það sem er þó ótrúlegast af öllu og það er

að þetta borgarstjóra f**l skuli vera læknir

í þokkabót.

Hversu margir myndu treysta honum fyrir sínum

limum og lífi...??????

M.b.kv.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 11.1.2017 kl. 16:30

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir kvejur að austan Ómar. Það eruð ekki síst þið sem eruð þolendur af fíflaskap Borgarstjóra og hans liðs.

Siggi vinur, já ekki myndi ég leita til hans svo mikið er víst.

Halldór Jónsson, 11.1.2017 kl. 21:27

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Sagt hefur verið að Degi Bergþórusyni  hafi lukkast ágætlega læknisverk þá hans brauð varð til af því að plástra landsbyggðarmenn.  

En svo hafi hann verið nefrisin að það máttu allir í þeirri sveit þar undir ganga sem væru þeir mest til óþurftar.   

Hrólfur Þ Hraundal, 11.1.2017 kl. 22:59

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ólafur Bjarni Halldórsson frá Ísafirði skrifar vel um þetta mál á Vísir.is og er með nákvæmari tölur en þær uppl. sem ég var með hér um atkvæðagreiðsluna á vegum borgarstjórnar Ingibjargar Sólrúnar:

 

"Ágætt að fyrsta raunverulega afstaða nýrrar ríkisstjórnar skuli vera um Reykjavíkurflugvöll því hann er eitt af skýrum dæmum um hvernig stjórnmálamenn taka sér vald til að hunsa vilja meirihluta landsmanna sem lengi hefur legið fyrir. Síðan má rifja upp kosningar um flugvöllinn sem fram fóru í Reykjavík 17. mars 2001:
Þátttaka 30.219 eða 37,2%, Á móti Vatnsmýri 14.913 49.3%, með Vatnsmýri 14.529
48,1% - auðir og ógildir 777 2,6%. 

Borgarstjórn setti sjálf þau skilyrði að kosningin væri því aðeins bindandi að 75% tækju þátt eða að 40.000 manns greiddu öðrum hvorum kostinum atkvæði sitt. Langur vegur var því frá að kosningin fæli í sér neina skuldbindingu og því þyrfti meira að koma til ef taka ætti svo veigamikla ákvörðun.
Auk þess var með öllu óljóst hvað tæki við yrði völlurinn lagður af. Þannig stendur málið enn. Enginn álíka góður kostur liggur fyrir þó mörgu hafi verið velt upp. Þess vegna er vilji meirihluta þjóðarinnar skýr, og eru Reykvíkingar þar með taldir. Sá meirihluti telur Vatnsmýrina vera besta kostinn bæði með öruggisrökum vegna sjúkraflugs og tryggum samgöngum við höfuðborgina og þá marvíslegu þjónustu sem þar hefur verið sett niður með skattfé allra landsmanna."

 

 Hafnarfirði bætir glöggur við:

"Einmitt Ólafur Bjarni, kosningin var ekki marktæk vegna lélegrar mætingar. Samt hafa borgarstjóri og hans fylgifuglar hamrað á að kosningin sé marktæk. Þetta sýnir hvernig þetta lið í kringum Dag og hann sjálfur brengla, beygja og hundsa vilja meirihlutans, af því að hann hentar ekki þeirra þrönga markmiði."

Jón Valur Jensson, 12.1.2017 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418415

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband