Leita í fréttum mbl.is

Samviskulaus

virðist meirihluti Borgarstjórnar Reykjavíkur vera þegar þeir fella tillögu Framsóknar og Flugvallarvina um að leyfa notkun á neyðarbrautinni á Reykjavíkurflugvelli.

Dagur Bergþóruson kemur með breytingartillögu um að ríkið láti opna neyðarbraut í Keflavík í stað brautarinnar á Reykjavíkurflugvelli. Þessi braut í Reykjavík  er fyllilega nothæf og þær aðstæður eru nýskeðar að opnun hennar gæti bjargað sjúklingum í lífshættu. 

Eigum við að trúa því að ástæður fyrir þvergirðingshætti Dags og meirihluta Borgarstjórnar séu meðfram vegna hagsmuna verktakafyrirtækis?

Skipulagslega er enn hægt að halda byggingunum þessa verktaka með hugsanlega einhverjum breytingum og hafa þessa neyðarbraut tiltæka eftir sem áður. Það er stundum sagt að vilji sé allt sem þarf. En því miður stundum það eina sem algerlega skortir.

Er það samt ekki samviskuleysi að setja björgun  meðborgara sinna úr lífshættu ekki ofar peningalegum eða pólitískum hagsmunum? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Satt segirðu. Hugsa sér svo, að þetta skuli vera menntaður læknir, sem talar svona. Eftir því, sem ég veit best, þá eru læknislærðir menn bundnir lækniseiðnum ævilangt, jafnvel þótt þeir starfi ekki sem læknar. Dagur hugsar alls ekki, eins og sá, sem hefur lært læknisfræði, enda þótti konan hans líka miklu betri læknir. Ég held, að hún ætti að taka hann í gegn og hundskamma hann fyrir sérviskuna í sér, og að láta það vitnast, að læknislærður maður hagi sér svo, sem hann gerir í þessu máli. Þetta er hreint hneyksli, einu orði sagt. Það er brýn nauðsyn að losna við þá kumpána Dag og Hjálmar í næstu kosningum. Þeir eru margbúnir að sýna og sanna, svo ekki verður um villst, að það er alls ekki í lagi með þá, fjarri því, og allir eru búnir að fá meira en nóg af vitleysunni í þeim. Mál er að linni.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 11.1.2017 kl. 16:52

2 identicon

Vel mælt Guðbjörg.

Hverju orði sannarra.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 11.1.2017 kl. 23:56

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Getið þið ekki látið hann hafa breiðsíðu í Mogga?

Halldór Jónsson, 12.1.2017 kl. 07:56

4 identicon

Við skulum bíða eftir því, hvað Jón Gunnarsson gerir. Ég heyrði ekki betur í útvarpinu í morgun, þegar verið var að tala við hann um Reykjavíkurflugvöll, að það komi til greina af Jóns hálfu, að ríkið yfirtaki völlinn og færi stjórn hans undir ríkið. Það líst mér vel á. Jón ætlar að gerast skörulegur ráðherra, ef hann ætlar að stjórna á þessa leið. Hann sagði eitthvað á þá leið, að það hafi komið fyrir, að vald yfir sumum málefnum sé tekið úr höndum sveitarfélaga, ef sýnt er, að þau geti ekki stjórnað þeim eins og á að gera, og ríkisstjórnin taki valdið til sín. Það verður gaman að vita, hvað Jón gerir í þessu máli, þótt það verði til lítils fagnaðar fyrir Dag og kompaní. Það væri þá hægt að segja við þessi krakkafífl í Ráðhúsinu, að í upphafi skyldi endirinn skoða. Það verður gaman að fylgjast með, hvernig Jón tekst á við þau, enda sýnt, að hann ætlar ekkert að gefa eftir, enda engin ástæða til. Eins og hann sagði sjálfur, þá verður Reykjavíkurflugvöllur þar sem hann er, og ef Jón fengi að ráða, þá færi hann ekkert af höfuðborgarsvæðinu, enda sagði Jón í útvarpinu í morgun, að innanlandsflugið ætti hvergi heima annars staðar, og alls ekki suður í Keflavík. Þetta er almennilegur samgönguráðherra, sem hugsar svona, og verður gaman að fylgjast með honum í starfi.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2017 kl. 11:54

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ólafur Bjarni Halldórsson frá Ísafirði skrifar vel um þetta mál á Vísir.is og er með nákvæmari tölur en þær uppl. sem ég var með hér um atkvæðagreiðsluna á vegum borgarstjórnar Ingibjargar Sólrúnar:

 

"Ágætt að fyrsta raunverulega afstaða nýrrar ríkisstjórnar skuli vera um Reykjavíkurflugvöll því hann er eitt af skýrum dæmum um hvernig stjórnmálamenn taka sér vald til að hunsa vilja meirihluta landsmanna sem lengi hefur legið fyrir. Síðan má rifja upp kosningar um flugvöllinn sem fram fóru í Reykjavík 17. mars 2001:
Þátttaka 30.219 eða 37,2%, Á móti Vatnsmýri 14.913 49.3%, með Vatnsmýri 14.529
48,1% - auðir og ógildir 777 2,6%. 

Borgarstjórn setti sjálf þau skilyrði að kosningin væri því aðeins bindandi að 75% tækju þátt eða að 40.000 manns greiddu öðrum hvorum kostinum atkvæði sitt. Langur vegur var því frá að kosningin fæli í sér neina skuldbindingu og því þyrfti meira að koma til ef taka ætti svo veigamikla ákvörðun.
Auk þess var með öllu óljóst hvað tæki við yrði völlurinn lagður af. Þannig stendur málið enn. Enginn álíka góður kostur liggur fyrir þó mörgu hafi verið velt upp. Þess vegna er vilji meirihluta þjóðarinnar skýr, og eru Reykvíkingar þar með taldir. Sá meirihluti telur Vatnsmýrina vera besta kostinn bæði með öruggisrökum vegna sjúkraflugs og tryggum samgöngum við höfuðborgina og þá marvíslegu þjónustu sem þar hefur verið sett niður með skattfé allra landsmanna."

 

 Hafnarfirði bætir glöggur við:

"Einmitt Ólafur Bjarni, kosningin var ekki marktæk vegna lélegrar mætingar. Samt hafa borgarstjóri og hans fylgifuglar hamrað á að kosningin sé marktæk. Þetta sýnir hvernig þetta lið í kringum Dag og hann sjálfur brengla, beygja og hundsa vilja meirihlutans, af því að hann hentar ekki þeirra þrönga markmiði."

Jón Valur Jensson, 12.1.2017 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418415

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband