Leita í fréttum mbl.is

Valið vandað

á flóttamönnum sem Guðni umfaðmar á Bessastöðum. Eftir myndum að dæma er hér eingöngu um Múslíma að ræða. Það er sneitt hjá kristnum og menntuðum.

Valdimar H, Jóhannesson veltir framhaldinu fyrir sér:

"Nú þegar ásetningur yfirvalda virðist vera að opna flóðgáttir fyrir svokallaða flóttamenn inn í landið væri lágmarkskrafan að skoðað væri hvað það muni kosta íslenskt samfélag í fjármunum og ýmsum neikvæðum hliðarverkunum. Hvað mun það kosta í beinum fjárútlátum, hvað mun það kosta í verra þjóðlífi, hvað mun það kosta í minni þjóðartekjum á mann og breyttu samfélagi?

 

Reynslan er hvarvetna sú, að atvinnuþátttaka múslímskra flóttamanna á Vesturlöndum er afar lág um leið og afbrotatíðni er miklu hærri en hjá öllum öðrum þjóðfélagshópum hvort sem það eru innfæddir eða aðrir innflytjendur. Auk þess þarf enginn að efast um að löndin með mörgum múslímskum innflytjendum breytast til hins verra með auknu öryggisleysi almennra þegna, auknum glæpum, aukinni spennu og versnandi afkomu svo ekki sé talað um hryðjuverkin sem fylgja múslímskum innflytjendum.

 

Lítum til reynslu Dana. Árið 2010 tosaðist atvinnuþátttaka hjá flóttamönnum, sem eru yfirgnæfandi múslímar, í 8% eftir árið. Þetta var áður en flóðbylgjan stóra skall á Vestur-Evrópu 2015. Tölur um atvinnuþátttöku flóttamanna hafa síðan enn versnað. Núna segja tölur frá Dönum 2016 að atvinnuþátttaka flóttamanna er um 2% eftir árið þrátt fyrir að stjórnvöld hafi lagt sig fram um að hjálpa flóttamönnum að komast á vinnumarkaðinn með námskeiðum og með því að greiða atvinnurekendum til þess að aðlaga flóttamenn að störfum með lærlingsstöðum. Velferðarkerfið verður að halda uppi 98% af flóttamönnum eftir árs aðlögun og reynslan kennir að langstærsti hluti þeirra verður alltaf þurfalingar og komandi kynslóðir þeirra einnig.

 

Sama reynslan og Danir hafa liggur fyrir hvarvetna fyrir þar sem tölur eru aðgengilegar t.d. í Þýskalandi. Þetta er ekki eina sameiginlega reynslan heldur önnur og verri: Ógnvænleg aukning í alls kyns glæpum, sérstaklega ofbeldisglæpum svo sem nauðgunum, líkamsmeiðingum og manndrápum. Tölur um glæpatíðni flóttamanna eru óskemmtilegar að svo miklu leyti sem þær eru aðgengilegar en mikillar tilhneigingar gætir til þess að fela þessar tölur.

 

Glæpatíðnin heldur svo áfram að vera mjög há hjá múslímskum innflytjendum kynslóð eftir kynslóð. Múslímar eru t.d. um 70% af öllum föngum í Frakklandi þó að þeir séu aðeins um 10% þjóðarinnar. Það vill segja að múslímar í Frakklandi eru 21 sinnum líklegri til að gerast sekir um alvarlega glæpi, sérstaklega ofbeldisglæpi, en aðrir þjóðfélagshópar að meðaltali að sögn þessara talna. Allar tiltækar tölur um glæpatíðni á Vesturlöndum benda í sömu átt. Þannig er t.d. sagt að um 80% nauðgana í Svíþjóð a.m.k. stafi frá múslímskum karlmönnum sem eru rúm 2% af íbúum.

 

Þeirrar hugsunar virðist gæta hér að Íslendingar séu miklu færari að taka við erlendum flóttamönnum en aðrar þjóðir eru. Hörmuleg reynsla annars staðar muni því ekki endurtaka sig hér. Við ættum ekki að þurfa að velkjast í vafa um þetta atriði. Alkunna er að Akurnesingar tóku afar vel á móti 28 ríkisfangslausum arabískum flóttamönnum fyrir tæpum áratug. Einkaaðilar og sveitarfélagið sinntu verkefninu af alhug. Nú skyldi sýna efasemdamönnum í tvo heimana og aðlaga þá að fullu inn í íslenskt samfélag. Engar upplýsingar fást um árangur þó að eftir því sé leitað. Skagamenn hrista bara hausinn og segjast ekki vita deili á neinum árangri. Þeir og við, sem borgum brúsann, fáum engar upplýsingar. Hér hefði mátt reikna með betri árangri en almennt væri vegna þess hve þetta voru fáir einstaklingar sem væri unnt að sinna betur og hefðu fáa aðra að reiða sig á en vinalega nágranna.

 

En það er enn meira í húfi. Hvaða áhrif munu mannskæð hryðjuverk hafa á þjóðlíf og ferðamannaþjónustu hérlendis? Þau verða ekki síður í löndum sem leggja sig fram um góðar móttökur eins og Kanadamenn hafa nú fengið að reyna og Evrópuþjóðir hafa mátt þola undanfarin ár með hörmulegum afleiðingum.

 

Hvaða áhrif mun ásetningur stórs hluta múslíma hafa að ná Íslandi undir íslam og sharialög með jihad, - hvort sem það yrði með orðum eða sverðinu? Samkvæmt rannsóknum Humboldt-háskólans í Berlín eru um 45% múslíma í Evrópu bókstafstrúarmenn, fúndamentalistar og trúa því að fara beri eftir kóraninum og sunnah þ.e. ekki aðeins að fylgja fyrirmælum kóransins heldur einnig fylgja fordæmi Múhameðs í einu og öllu en hann var hræðilegur maður samkvæmt lýsingum múslíma sjálfra. Það er raunar uppspretta sífelldrar undrunar að sómakærir múslímar skuli ekki fyrir löngu hafa losað þjóðir sínar undan þessum þunga klafa.

 

Hefur íslenska þjóðin verið spurð hvort hún sé tilbúin til að taka þátt í glannaskap ráðamanna og greiða þetta háa gjald?"

Auðvitað verður nóg af viskubrunnum og vitleysingum, jafnvel  niður við Austurvöll, til að garga ókvæðisorð að Valdimari, alla orðabókina sem það notar. En engin rök munu fylgja frekar en fyrri daginn.

Af hverju má ekki reyna að velja flóttamenn með tilliti til þess hvaða möguleika þeir eigi til að falla inn í okkar samfélag? 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guðni sýndi sitt rétta andlit þegar hann lýsti yfir stuðningi við Hillary Clinton.  Það er sama hvað hann setur upp mörg buff eða fer í marga skræpótta sokka.  Við vitum öll hvaða mann hann hefur að geyma.  

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 1.2.2017 kl. 09:30

2 identicon

Sýna undirlægjuhætt á sokkaleistum.

Það þótti mörgum undrun sæta þegar mynd birtist í sjónvarpi allra landsmanna, þegar lögregla var kölluð til að stilla til friðar í Ýmishúsinu, (múslimahús ) að lögreglumenn sem fóru að sinna þessa verki, að fara inn í þetta hús höfðu allir dregið af sér skóna Þetta hefur sennilega aldrei gerst áður að lögreglumenn dragi af sér skófatnað sinn  í útkalli.  Eflaust er lögreglumönnum uppálagt af yfirstjórn að draga af sér skófatnað sinn þurfi þeir að fara inn í fundarhús múslima.  Til viðmiðunar fóru lögreglumenn í útkalli inn í Láugarneskirkju til að sækja ólöglegan hælisleitanda og voru í þeim búnaði sem þeim ber að vera í, skófatnaði.

Múslimum hefur fjölgað á Íslandi, en fyrir nokkrum árum var talið að fjöldi þeirra væri um 1500.  Þrátt fyrir að þeir væru ekki fleyri gátu þeir breytt ýmsu meðal annars skólafæði barna því ekki var lengur hægt að bjóða börnunum svínakjöt, og þarna var ekki nóg að gert ekki má lengur nefna kristinfræði í skólum.  Ungir nemendur höfðu ánægju af litlu jólunum sem haldin voru í skólunum, múslimar náðu að eyðileggja þessa ánægju barnanna. Heyrst hefur að undirlægjurnar hafi farið fram á að fólk sem kemur fram opinberlega beri ekki sýnilega krossa.

Við hverju er að búast.  Þeir sem hlustuðu á umræður á alþingi 31.jan. gera þer ljóst að allt getur gerst, var að heyra að þar væri á fer ekki heilvita fólk, og ekki eru ráðherrar betri.

 Guðlaugur Þór vill samskonar bandalag og sem gert var af ESB og skapaði viðskiptabann á Rússland og lokaði viðskiptum Íslands þangað. Að sjá vill Guðlaugur mynda enn bandalag með þessum sömu ríkjum og taka yfir tilhögun á landamæravörslu Bandaríkjanna, það gæti stuðlað að viðskiptabanni ´Bandaríkjanna á Ísland.

 Mikill er máttur allra smákónga á Íslandi.

Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 1.2.2017 kl. 11:52

3 Smámynd: Hörður Þormar

Guðni vill örugglega leggja gott til málanna varðandi þessa  sýrlensku flóttamenn.

Hið sama má segja um Angelu Merkel þegar hún bauð alla flóttamenn til Þýskalands, enda hefði hún alist upp við frásagnir af hörmungum flóttamanna í lok styrjaldarinnar.

Þjóðarleiðtogar verða hins vegar að gæta orða sinna, þau geta haft meiri áhrif heldur en þeir gera sér grein fyrir. Þetta sannaði sig eftir yfirlýsingu Angelu Merkel.

Hörður Þormar, 1.2.2017 kl. 12:11

4 identicon

Elín! Þetta minnir mig á atvik úr
      bókinni Missi e. Guðberg Bergsson
en þar segir frá konu nokkurri sem tók uppá
því að kyssa loftið og sérlega í almenningsgörðum.

Minnir líka á ákveðið orðalag úr dánartilkynningum:
"...lést í faðmi fjölskyldnunnar.

Þessar athugasemdir koma málinu eflaust ekkert við
en sýnir að aldrei er of varlega farið!

Húsari. (IP-tala skráð) 1.2.2017 kl. 12:43

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Kemur ekki til greina að gelda raðnauðgara?

Halldór Jónsson, 2.2.2017 kl. 21:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418323

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband