Leita í fréttum mbl.is

Sannleikurinn um Reykjavík:

Holóttar götur, illa hirt rusl, skortur á gæði matar í leikskólum og hækkandi álögur íbúa Reykjavíkurborgar voru umfjöllunarefni Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra þegar hann ávarpaði Reykjavíkurþing Sjálfstæðisflokksins sem sett var í Valhöll í gær. Á þriðja hundrað manns sækja þingið samkvæmt upplýsingum frá Sjálfstæðisflokknum, en þingstörfum verður haldið áfram í dag.

 

Reykjavík að missa af því að vera leiðandi

„Reykjavík er borg sem hefur upp á ótalmargt að bjóða. En við finnum fyrir því að borgin hefur ekki verið að sýna sínar bestu hliðar,“ sagði Bjarni en bætti við að vissulega hefði borgin notið góðs af uppgangi í efnahagslífinu almennt á Íslandi og gaman væri að vera í miðborginni þar sem ný veitingahús og nýjar verslanir spryttu upp og allt iðaði af mannlífi. Nefndi hann í því sambandi að ríkisstjórnin hefði greitt skuldir ríkissjóðs hratt niður á undanförnum árum, sem væri ekki aðeins hagkvæmara fyrir ríkissjóð og skattgreiðendur þar með, heldur styrkti það efnahags- og atvinnulíf landsins og kæmi þar öllum landsmönnum til góða.

Í ræðu sinni tók Bjarni sem dæmi að jákvæð afleiðing fjölgunar ferðamanna til höfuðborgarinnar væri að aukið líf hefði færst út í hverfi borgarinnar og að miklu máli skipti að huga að nánasta umhverfi borgarbúa. „Það skiptir máli að færa gæðin líka til úthverfanna. Að Reykvíkingar allir fái að njóta þess sem borgin ætti svo auðveldlega að geta veitt,“ sagði hann í ræðunni.

 

Að sögn Bjarna skiptir höfuðborg miklu fyrir ásýnd hvers lands og þjóðar. „Reykjavíkurborg er að missa af því að vera leiðandi. Hér þarf að úthluta fleiri lóðum, og gera það sem hægt er til að halda jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar. Fjölgun íbúa í Reykjavík er engin, samanborið við sveitarfélögin í kring. Þarna er mikið sóknarfæri,“ sagði hann. „Reykjavík á að bjóða fólk velkomið og gera sitt til að halda í þá íbúa sem þegar búa þar.“

Það er nokkuð greinilegur tónninn um það að Bjarni Benediktsson deilir ekki draumsýnum með Degi B. Eggertssyni varðandi núverandi stöðu hennar eftir vistina hjá vinstri mönnum. Ástanið í Reykjavík er bara martröð sem setfnir hraðbyri í að bara versna sem Dagur er lengur við völd.

Sannleikurinn um Reykjavík og framtíðina er allur annar en Dagur heldur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418331

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband