19.7.2017 | 08:39
Óli Björn
hugsjónalegur Sjálfstæðismaður eins og raunar Eykon var einna mestur allara. Annar sannur hugsjónamaður, Hrólfur Hraundal, skrifar eins og Óli Björn í Morgunblað dagsins og er farinn að bila í trúnni á að hugsjónir okkar Sjálfstæðismanna geti ræst.
Hrólfi finnst greinilega að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki lengur það sem hann var. Enda enn ekki vitað hvort næsti Landsfundur flokksins verður minni poppsamkunda en sá síðasti varð með þeim skrílslátum sem þar fóru fram undir forsæti Áslaugar Örnu og Unnar Brár. Sá flokkur þarf að fara í hugsjónalega tiltekt innandyra eigi hann að komast úpp úr því hjólfari sem hann er greinilega búinn að spóla sig fastan í með fjórðungs fylgi eða svo.
En hugsjónir innblásinna manna einar eru ekki nóg meðan spillingin grassérar í samfélaginu og gefur öllum draumsýnum Eykons, Óla Bjarnar og Sjálfstæðisflokksins langt nef.
Óli Björn skrifar svo í niðurlagi sinnar greinar :
"..... Það er í takt við grunntón í stefnu Sjálfstæðisflokksins að beita sér fyrir því að innleiða að nýju skattalega hvata til hlutabréfakaupa. Hin einfalda leið er að veita heimild til að draga frá tekjuskattsstofni ákveðna fjárhæð vegna hlutabréfakaupa líkt og áður, eða innleiða svipaða reglu og gildir í Svíþjóð. Það væri við hæfi að slíkur afsláttur tæki gildi á komandi ári þegar hálf öld er frá því að Eyjólfur Konráð Jónsson kynnti hugmyndir sínar í áðurnefndri bók.
Hlutabréfaafsláttur og almenningsvæðing bankakerfisins er í anda Eykons. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hefur gefið fyrirheit um almenningsvæðinguna. Við sjálfstæðismenn gáfum kjósendum loforð um að landsmenn eignist beinan hlut í bönkunum. Með almenningsvæðingu eykst aðhald að fjármálakerfinu, tortryggni minnkar, hlutabréfamarkaður styrkist og eignastaða heimilanna styrkist enn frekar.
Hið sama á við um aukna þátttöku launafólks í atvinnulífinu. Almenningsvæðing og hlutabréfaafsláttur eru leið til aukinnar valddreifingar, líkt og Eykon barðist fyrir og um leið eykst jöfnuður þegar tugþúsundir Íslendinga verða eignamenn."
Það er fallegt að trúa á hugsjónir hinnar ómenguðu Sjálfstæðisstefnu eins og við Óli Björn gerum báðir. En hvað stoðar okkar barnatrú gegn raunveruleikanum?
Allar tilraunir til auðstjórnar almennings stranda á því að allt samfélagið er sýkt af fjárhagslegu krabbameini sem spennir þræði sína um allt samfélagið. Það er viss hópur Hallbjarna, Friðrika, Ólavíusa, Lýða og andlitslausra lifeyrissjóðafursta sem hafa forgang að öllu fjármagni landsmanna af því að þeir eru þegar í fremstu röð. Þessi lýður sölsar allt sem þann kærir sig um undir sig og veður um í skjóli aðgangsins að fjármagninu því það er nefnilega vitlaust gefið þegar þú spilar við ríkið eins og Steinn Steinar áttaði sig á.
Almenningur má sín einskis gegn þessu fólki sem telur honum trú um að samrunar á þeirra vegum séu hagræðing til hagsældar fremur en samsæri gegn almenningi.Skoðið bara listann um þá sem komu svindilleiðina sem Seðlabankinn bjó til handa þeim. Hvað getur almenningur eða Óli Björn gert gegn þessu liði? Það gerir það sem því sýnist og gefur öðrum puttann.
Þetta fólk myndi leggja undir sig eignarhluti almenning í bönkunum á örskotsstund þó að Óli Björn ætli að afhenda öllum almenningi einhvern hluta af þýfi ríkisins í bönkunum sem það stal af mér og öðrum hluthöfum í Landsbankanum í hruninu. Þetta fólk gerir það sem því sýnist innan tukthúsa eða utan þeirra. Almenningur hefur ekkert í þessa menn og selur þeim hluti sína fyrir hálft orð því að einn fugl í hendi er betri en þrír í skógi hvað sem hugsjónum líður. Sjáið Sundabyggðina og örlög Sundabrautar? Eru almannahagsmunir einhversstaðar settir fram fyrir einkahagsmuni þó að einhverjir sjálfútnefndir fulltrúar fólksins séu við völd?
Því miður eru hugsjónir Eykons og Sjálfstæðisflokksins líklega bara draumsýnir í því samfélagi klíku og skipulagðra bófaflokka sem við erum búnir að skapa og afhenda öll völd á Íslandi með regluverkjum um lífeyrissjóðina, bankana og stjórnsýsluna sem ekki verður undið ofan af í einni hendingu og verður líklega seint úr þessu.
Óli Björn þarf að átta sig á því að við lifum ekki í Shangríla heldur fremur í einskonar bófasamfélagi þar sem enginn jöfnuður ríkir en kjaftavaðall er notaður til að strá sandi í svefndrukkin augu almennings þegar kosningar nálgast.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:54 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Því miður er Óli Björn ekki lengur það sem hann segist vera ... og heldur ekki það sem hans fólk var á Króknum í denn.
Það mótar meira líf hvers og eins hver er makinn. Og hans kona er hátt sett innan banka í eigu erlendra vogunarsjóða, Arion banka. Sá banki var áður hinn alræ´mdi hrunbanki Kaupþing!
Það segir allt sem segja þarf hverra erinda sá annars góði drengur, hér áður fyrr var.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 19.7.2017 kl. 10:59
Hverra erinda sá annars ágæti drengur, a.m.k. hér áður fyrr, gengur.
Tek því heils hugar undir áhyggjur þínar Halldór.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 19.7.2017 kl. 11:01
Skattafslátturinn verður til lítils ef verið er að narra almenning til að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum sem fara kannski á hausinn í haust!
Jón Valur Jensson, 19.7.2017 kl. 11:29
Sæll Halldór.
Þetta er þörf áminning
og ástæða til að hvetja alla
til að láta ekki blekkjast
af fagurgala þessum.
Sveiattan!
Húsari. (IP-tala skráð) 19.7.2017 kl. 11:40
Þetta skrifar Villi Birgis á Akranesi um Ólavíus:
"Hérna kemur að mínu áliti enn eitt hneykslismálið upp en eins og allir vita þá fékk Ólafur Ólafsson afskrifaða skuld uppá 64 milljarða í hruninu en á sama tíma og þessi afskrift átti sér stað kom félag í eigu Ólafs með tæplega tvo milljarða króna til landsins í gegnum fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands í desember 2012. Miðað við núverandi gengi gæti félagið hans Ólafs innleyst um 809 milljónir í gengishagnað, samkvæmt útreikningum Markaðarins sem birtist í dag.
Mér sýnist þessi fjárfestingarleið Seðlabankans toppa vitleysuna og ruglið í þessu þjóðfélagi en svo virðist vera að sumir hafi getað fengið 20% frá Seðlabankanum í bónus fyrir að koma heim með þýfið!
Það er algjörlega magnað að ekki megi upplýsa almennig um hverjir það voru nákvæmlega sem nýttu sér fjárfestingarleið Seðlabankans og fengu 20% bónus frá Seðlabankanum á sama tíma og okkur öllum þykir eðlilegt og sjálfsagt að álagningarskrár um tekjur allra íslendinga liggi frammi á hverju ári.
Ótrúlegt að Seðlabankinn vilji ekki upplýsa um þá sem nýttu sér þessa fjárfestingarleið Seðlabankans og fengu veglegan bónus fyrir það eitt að koma heim með fjármuni til að hjálpa alþýðunni, almenningi og heimilum við að ná fótfestu eftir hrunið en eins og allir vita voru það ekki alþýðan, almenningur eða íslensk heimili sem báru ábyrgð á hruninu. Hins vegar voru það þau sem þurftu að taka skellinn!"
Fréttablaði ðe er einmitt með yfirlit yfir það sem Villi er að biðja um í dag:
Fyrirtæki og fjárfestar Upphæðir í milljónum króna
Íslensk erfðagreining / Kári Stefánsson 9.267
Bakkavararbræður 5.150
Jón S. von Tetzchner 4.809
Actavis 3.201
Samherji 2.423 Arius ehf. /
Ólafur Ólafsson 1.990
Elkem 1.794
Norðurál 1.506
Húsasmiðjan 1.421 A
rnar Þórisson og Þórir Kjartansson 962
Eimskip 760 I
celand Incoming ferðir / Benedikt Kristinsson 718
Nitur ehf. / Hilmar Þór Kristinsson 661
Skúli Mogensen 655
Hjörleifur Jakobsson 613
Fyrirtæki og fjárfestar U
pphæðir í milljónum króna I
celand ProTravel / Guðmundur Kjartansson 554 J
ón Ólafsson 507
Róbert Guðfinnsson 473
Kjartan Þór Þórðarson (Saga Film) 408
Jabb á Íslandi 387 Kristinn Aðalsteinsson 369
Pétur Stefánsson útgerðarmaður 322
Bjarni Ármannsson 300
Sigurður Arngrímsson 290
Aztiq Pharma / Róbert Wessman 255
Karl Wernersson 240
Þorsteinn Sverrisson 215
Heiðar Guðjónsson 209
Auðun Már Guðmundsson 190
Fyrirtæki og fjárfestar
Upphæðir í milljónum króna
Jónas Hagan Guðmundsson 187
Rudolph Lamprecht /
Friðrik Pálsson 183
PWC 173
Björgvin S. Friðriksson 161
Iceland / Jóhannes í Bónus 160
Stafnar Invest / Ólafur Björn Ólafsson 150
Ármann Þorvaldsson 141
Jón Helgi í Byko 139
Guðmundur Ásgeirsson í Nesskip 139
Pétur Björnsson 121
Algalíf 111
Reykjavík Geothermal ehf. 107
Samtals 42.421 F
Þarna eru ýmsir þeskktir tukthúslimir á meðal og væntanlega kvittir sið samfélagið.og vel að þessum gjöfum komnir.
Halldór Jónsson, 19.7.2017 kl. 11:57
Lesning um innanmein Sjálfstæðisflokksins.
Landsfundur flokksins hefur nú verið kölluð poppsamkunda undir stjórn Áslaugar Örnu, og Unnar Brá. Unnur sem fékk premíu fyrir popptilburði sem hún sýndi á síðasta landsfundi flokksins.Kjósendur í kjördæmi hennar höfnuðu henni, en stjórn flokksins færði hana upp um eitt sæti sem dugði til þess að hún gæti sýnt popptilburði hjá flokknum í framtíð.Því miður fyrir sanntrúaða sjálfstæðismenn sem hafa augu og eyru opin er flokknum stýrt af fólki sem heldur vermd yfir spillingu, lifir og nærist síðan af henni. Hugmynd um skattafslátt og kaup fólks á hlutabréfum, með því næðist dreyfð eignaraðild að fyrirtækjum. Dreifð eignaraðild. Launþegar landsins eiga um 40-50 % í flestum fyrirtækjum landsins í dreyfði eignaraðild í gegn um lífeyrissjóðina. Landsmenn vita hvernig er farið með þá dreyfðu eignaraðild.
Hver er framtíð Sjálfstæðisflokksins ? Hann mun eyðast innanfrá vegna dug og áhugaleysis. Þegar ekki verður lengur til fólk innan flokksins til að halda vermd yfir spillingaröflum, þá verður stutt í algjört hrun flokksins. Hvergi má sjá betur framtíð flokksins en nú. Nú eru tæpt 1. ár til borgarstjórnarkosninga. Hvergi er hægt að sjá lífsmark hjá sjálfstæðisfólki vegna borgarstjórna kosninganna.
Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 19.7.2017 kl. 12:31
Það er náttúrlega leitt fyrir flokkinn þegar svona fýlpokar eins og þú Eddi lögga bara sitja á fjósbitanum og henda skít í þá sem eru á gólfinu að reyna að gera eitthvað. Þú ættir nú að reyna að leggja einhverju lið í staðinn. Flokkurinn er bara fólkið sem í honum er, ef enginn reynir að andæfa þá fer eins og þú spáir. Sjáðu Samfó, hún er dauð af þvi að enginn nennir að starfa fyrir hana lengur öðruvísi en að fá borgað eins og alikratinn Ingibjörg Sólrún. Það eru svo andskoti fáir hugsjónamenn eftir í pólitíkinni.
Halldór Jónsson, 19.7.2017 kl. 13:38
Sýnast þér Skjóni, Þorgerður Katrín eða Benni í Viðreisn vera hugsjónafólk ?
Halldór Jónsson, 19.7.2017 kl. 13:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.