Leita í fréttum mbl.is

Frábært viðtal

var hjá Arnþrúði á Sögu við hana Sveinbjörgu Framsóknarkonu og Flugvallarvin.

Sveinbjörg fór yfir marga málaflokka af mikilli þekkingu og og kom inn á mörg umhugsunarefni.

Eitt sem hún nefndi var hvernig skóli án aðgreiningar hefur breyst í grundvallaratriðum með fjölgun útlendinga. Þessu hefur ekki fylgt fjármagn frá ríkinu sem þá  fylgdi yfirtöku sveitarfélaganna á skólunum. Afleiðingin er að skólakerfið er að skila ómenntuðum einstaklingum sem hvorki eru reiknandi, skrifandi né læsir vegna þess að aðgreiningarleysið veldur því að enginn getur fengið neina kennslu við sitt hæfi.Misþroski nemendanna heldur öllu niðri. Sveinbjörg spurði hvort ekki væri ástæða til að hafa útlendingana í sérskólum sem er áreiðanlega rétt.

Sveinbjörg kom inn á málefni Hellisheiðarvirkjunar. Þar er málum, að því að virðist haldið frá kjörnum fulltrúum. Brennisteinsmengun frá virkjuninni er gríðarleg og þar fyrir utan er óvitað hvaða áhrif brennisteinssýran hefur á lungu mannfólksins sem fyrir verður. Nógu slæmt er að sjá hvernig mengunin fer með háspennumöstrin á Hellisheiði sem áður sá ekki á en eru nú að ryðga niður og enginn segir neitt. Ætli lungu sé minna viðkvæm en galvanisérin á stáli?

Það sem Sveinbjörg virtist ekki vita er hversu fjárhagsstaða virkjunarinnar er algerlega vonlaus.  Hún sagði að virkjunina skorti afl sem er rétt. Orkuveitan þyrfti að kaupa dýra orku að þar sem hún er búin að skuldbinda sig til að afhenda orku til stóriðjunnar á ákveðnu verði. En sú staðreynd er svo hrikaleg að um hana er ekki rætt. Virkjunin þarf að borga 3 kílówött sjálf með hverri kílówattstund sem hún selur eða því sem næst. Og niðurdæling á brennisteini með tilheyrandi landskjálftum  og aukaleg gufuöflun gerir bara að hlaða meiri kostnaði á þessa virkjun sem er tæknilega marggjaldþrota og getur aldrei borið sig. Dýrð sé Framsóknarflokknum meðal annars sem stóð fyrir óraunhæfri byggingu virkjunarinnar á dýrðardögum Alfreðs Þorsteinssonar og Ingibjargar Sólrúnar. 

Sveinbjörg fór einnig fyrir rekstrarvanda Reykjavíkurborgar þar sem flest er í niðurníðslu. Þar ber allt að sama brunni með viðhaldsleysi og vandræðagang. 

Ég fór að hugleiða með mér hversu feginn ég er að vera ekki á kjörskrá í Reykjavík. Þar myndi ég komast í vandræði hvort ég ætti að kjósa minn flokk eða eða frekar Sveinbjörgu og Guðfinnu af lista Framsóknar og Flugvallarvina? Íhaldið í Reykjavík virðist ekki duga til neinnar teljandi stjórnarandstöðu og því finnst mér stefna frekar i að Dagur Bergþóruson verði bara endurkjörinn og allt stefni áfram norður og niður þar á bæ.

Þá minntist ég fyrirbrigðis úr pólitíkinni sem var kallað Hræðslubandalagið í gamla daga. Það var bandalag tveggja stjórnmálaflokka sem náðu til samans meiri áhrifum en sitt í hvoru lagi. Raunsætt mat mitt er það, að íhaldið mitt sé ekki að meika það sem stjórnarandstaða þó allt sé rétt sem það segi. Það er bara ekki sannfærandi í málflutningi sínum og ástríðulaust með öllu. Virðist vanta allan neista.  Það  vantar sannfæringarkraftinn sem hann Davíð hafði á sínum ungu dögum. Framsókn og Flugvallarvinir ná heldur ekki fjöldanum hvað sem glæsilegri frammistöðu þeirra kvennanna Sveinbjargar og Guðfinnu líður.

Er kosningabandalag Framsóknar og Íhalds mögulegt?  Gæti það ekki frekar náð Borginni úr höndum 101-liðsins á þann hátt? Ráðast gegn því sameinað og reynt að sannfæra kjósendur úr hærri póstnúmerum um breytinga sé þörf í Borginni?

Þó nú sé verið að slá og fylla í holur þá verða menn að gera sér ljóst að það er gert í því trausti að ekki verði búið að gera ársreikning Borgarinnar þegar kosningar koma að vori. Hallanum vegna þessara útgjalda núna verður trúlega leynt að hætti Ingibjargar Sólrúnar sem einhverjum undirliggjandi halla í glæsilegum rekstri eins og hún gerði opinberlega að lýsa yfir og komst upp með það vegna ótrúlegrar ósvífni sinnar í málflutningi og svo vinstri slagsíðu RÚV og fleiri fjölmiðla á þeirri tíð. Þetta mun Dagur B. reyna og hugsanlega komast upp með vegna slapps málflutnings stjórnarandstöðunnar í Reykjavík. 

En viðtalið var frábært við hana Sveinbjörgu en dugar ekki til eitt og sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það verður að kjósa þær stöllur í Framsókn ef ekkert betra kemur til Sjallarnir eru algjörar gufur og máttlaus, því miður að mínu mati.

Kristján Jón Sveinbjörnsson (IP-tala skráð) 1.8.2017 kl. 20:49

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já ekki eru þeir lafmóðir af hlaupunum 

Halldór Jónsson, 3.8.2017 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418442

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband