Leita í fréttum mbl.is

"Útvarpskommarnir"

halda úti sérstakri síðu á RÚV sem heitir Forsetatíð Donalds Trump. 

Þar er safnað saman efni sem hefur þann tilgang að gera Forsetann ótrúverðugan með hálflygum og jafnvel ósönnuðum getsökum.

Þar er auðvitað því haldið á lofti að Trump sé að reyna að að fella Obamacare bara til þess að láta fátæka Bandaríkjamenn deyja án læknishjálpar. Þar aldrei minnst á Trumpcare sem er áætlun sem á að koma í staðinn fyrir Obamacare. Það er bara lögð áhersla á að kynna Trump sem fífl og fábjána sem ekkert geri nema vitleysur.

Það er ekki minnst á það hvernig Trump frelsaði Bandaríkin frá Parísarsamkomulaginu sem sparar þeim trilljónir dollara í vitleysu og á vonandi eftir að koma vitinu fyrir heimsbyggðina sem er undir forsæti hinna fjörtíuþúsund fífla Al Gore og kaupahéðnanna sem ætla að græða á þessari ósönnuðu nostalgíu. Kannski að eitthvað fé verði þá eftir í Trumpcare áður en upp er staðið?

"Útvarpskommarnir" bregðast ekki væntingum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sýnist að blaðakommarnir á Mogganum gera það líka :)

http://www.mbl.is/frettir/malefni/donald_trump_bandarikjaforseti/

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.8.2017 kl. 14:10

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Mikið væri nú samt gott að fá einn Trumplausan dag!!

Sigurður I B Guðmundsson, 1.8.2017 kl. 14:20

3 identicon

,,Þar aldrei minnst á Trumpcare.."

Halldór, þú mátt alveg fræða okkur hin um hvað það er , og hversu betra að er fyrir fólkið í USA  ?

JR (IP-tala skráð) 1.8.2017 kl. 14:34

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

RUV tekur virkan þátt í "Fake News" fölskum fréttaflutningi og reyndar er mbl.is ekki saklaust af þeim gerðum.

Obamacare er að ganga að millistéttinni í Bandaríkjunum dauðum. Iðgjöld til sjúkratrygginga hafa margfaldast og hefur almennur borgari ekki efni á að greiða þau. Þegar Obamacare var tekið upp missti fjöldinn allur af fólki vinnu sína og/eða varð að sætta sig við hlutastörf. Ástæðan var sú að fyrirtæki urðu að greiða með launþegum sínum iðgjöld til Obamacare þegar laun þeirra fóru upp fyrir tiltekið lágmark. Þeir sem höfðu lægri tekjur en þessu lágmarki náðu kom ríkið inn í og greiddi fyrir það og átti sjúkrakostnaður að vera þeim nánast ókeypis.

Ekki vildi betur til en svo að millistéttin er orðin að lágtekjufólki sem hefur varla til hnífs og skeiðar. Ríkissjóður Bandaríkjanna hefur ekki efni á að greiða fyrir sjúkrakostnað allrar þjóðarinnar, en tekjur ríkisins hafa lækkað svo um munar þrátt fyrir hækkandi skattprósentum í tíð Obama.

Trump og meirihluti Repúblikana vill leiðrétta þetta og á þann veg að það komi öllum vel og ekki síður þeim sem hafa engar eða litlar tekjur og geta ekki borgað iðgjöld til sjúkratrygginga. Þessu er haldið leyndu fyrir almenningi vegna ótrúlegs óvildar í garð Trumps. "Fake News" fjölmiðlanir gera í því að níðast á forsetanum og finnst það allt í lagi þar sem hann er ekki á mála elítunnar sem öllu vill stjórna bak við tjöldin, ekki bara í Bandaríkjunum og Evrópu heldur einnig hér á Íslandi.

Tómas Ibsen Halldórsson, 1.8.2017 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 77
  • Frá upphafi: 3418317

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 73
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband