23.9.2017 | 09:32
Sundurlyndið
er viðfangsefni Styrmis Gunnarssonar í dag í Morgunblaðinu. Styrmir skrifar svo:
"...... En það liggur við að pólitísk átök séu nú persónulegri og hatrammari en þau voru þá. Hinir nýju samskiptamiðlar eiga að einhverju leyti hlut að máli. Þar telja almennir borgarar sér leyfilegt að segja nánast hvað sem er um annað fólk, sem oft er meira í ætt við kjaftasögur fyrri tíma en veruleikann í kringum okkur.
.........Þessi fjölmiðlun nútímans á þátt í að skapa hér andrúmsloft, sem oft verður beinlínis eitrað. Hatrinu virðast lítil takmörk sett. Það er tími til kominn að þeir sem hafa boðið sig fram og eru að bjóða sig fram til að annast stjórn á sameiginlegum málefnum þjóðarinnar taki þennan samfélagsvanda til umræðu, bæði sín í milli og við þjóðina. Við erum að skaða sjálf okkur með því að láta sem þessi vandi sé ekki til staðar. Hann er djúpstæður.
Það er augljóst að það er markmið annarra flokka og framboða að útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá áhrifum á landstjórnina. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki jafn öflugur flokkur og hann var er þó ljóst að fylgi hans hleypur á milli fjórðungs og þriðjungs kjósenda. Það er lítið vit í því að útiloka sjónarmið svo stórs hóps fólks frá áhrifum á stjórn landsins. Um leið verður sá sami flokkur að gera sér ljóst að áhrif hans eru ekki þau sömu og áður og byggjast nú fremur á sundurlyndi andstæðinga en eigin styrkleika. En gagnkvæm óvild, andúð og jafnvel hatur er komið á það stig, að nú verður skynsamt fólk í öllum flokkum að taka höndum saman um að hreinsa þetta eitur út úr þjóðarlíkamanum.
Við vissum öll að það var ljótt að skilja einhvern eða einhverja útundan á leikvellinum við skólann í gamla daga. Við eigum að hafa þroska til að skilja að á leikvelli landsmálanna, getur það ekki verið sérstakt markmið að þessi eða hinn megi ekki vera með. Við erum of fá til þess að láta það eftir okkur að standa í svona sandkassaleik. Hagsmunir okkar sem búum á þessari eyju eru að standa saman og snúa bökum saman við uppbyggingu samfélagsins. Við erum ótrúlega heppin að búa hér og að eiga svo gjöfular auðlindir sem landið og hafið í kringum það er svo ríkt að. Það er tímabært að slíðra sverðin og fara að vinna saman."
Það er ljóst hvað Styrmir er að tala um. Orðaval og dónaskapur er komi á það stig í umræðunni um nánast hvað sem er að tólfunum kastar. Það eru samfélagsmiðlarnir, bloggið og sérstaklega athugasemdir siðleysingjanna sem leika þar lausum hala undir dulnefnum sem slá taktinn.
Sem dæmi um hvað a stíl blaðamenn eru farnir að tileinka sér má tilfæra klausur úr grein Sifjar Sigmarsdóttur í Fréttablaðinu í dag:
"...Hjalti Sigurjón virðist haldinn orsakablindu á háu stigi. Það er ekki dómur götunnar sem er honum fjötur um fót. Hann er ekki að gjalda dóms Hæstaréttar. Hjalti Sigurjón er einfaldlega að gjalda gjörða sinna.
Sjálfstæðisflokkurinn er haldinn sömu blindu. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar féll ekki vegna veiklyndis Bjartrar framtíðar. Ríkisstjórnin féll ekki vegna barnaníðings. Og pabba Bjarna Ben til varnar: Fall ríkisstjórnar sonar hans er ekki honum að kenna. Ríkisstjórnin féll vegna þess að einn ganginn enn gerðu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sig seka um leyndarhyggju og svívirðilegan valdhroka ef ekki beinlínis valdníðslu.
Enn á ný sýnir flokkurinn að hann starfar hvorki í þágu umbjóðenda sinna, fólksins í landinu, né að hag þeirra.
Í stað þess að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning og veita þeim svör er allt gert til að leggja stein í götu þeirra.
Og hvers vegna? Jú, samtryggingin er hornsteinn Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn starfar fyrst og fremst í þágu sín sjálfs.
Veikgeðja fúskarar
Pólitískan fnyk leggur frá Íslands ströndum til fjarlægra landa. En lyktin á ekki upptök sín hjá misvel kembdum Pírötum, sama hvað Sjálfstæðismenn reyna að klína henni á þá.
Fýlan er af þeim rotna kúltúr sem ríkir innan þeirra eigin flokks. Um leið og við skilum skömminni þangað sem hún á heima skulum við leita orsakarinnar þar sem hún liggur.
Tvennar kosningar á jafnmörgum árum eru engum öðrum að kenna en veikgeðja fúskurum sem skrumskæla lýðræðið og leggjast í vörn fyrir perra og Panama-polla svo lengi sem þeir eru í réttu liði. Höfum það hugfast er við stígum inn í kjörklefann 28. október næstkomandi."
Þetta orðaval og þessar myndlíkingar eru nýr stíll í stjórnmálabaráttunni. Menn sem eru virkir í athugasemdum á blogginu væru ekki í vandræðum með að velja höfundinum hæfileg orð sem lýsa hennar auma siðferði og sálarástandi. En ættu þeir eða aðrir að gera það?
Styrmir telur að orðaval í umræðunni sé löngu gengið út yfir það sem hollt eða hæfilegt má teljast.
Langafa mínum Jóni Ólafssyni, þeim fræga skammapenna sem var þó yfirleitt kurteis í orðum, ofbauð orðaval Alþingismanna um hvorn annan þegar hann settist á Alþingi. Hann kom því til leiðar til mótvægis að þingmenn fóru að ávarpa hvorn annan sem hæstvirtur þingmaður svo og svo til að reyna að fá skárri brag á umræðuna. Eitthvað í þessa veru þarf að eiga sér stað í almennri umræðu á Íslandi.
Það gæti vel verið að einhver hefði gaman af því að við Sif reyndum með okkur í því hvort okkar gæti svívirt hitt meira með ljótari orðum. Ég kann talsvert fyrir mér síðan í Mýrinni í gamla daga og get romsað út úr mér margvíslegum fúkyrðum um svona kvenfólk eins og Sif Sigmarsdóttir. Og henni virðist hvergi orðavant og gæti áreiðanlega svarað í sömu mynt. En væri það vel til fallið í kosningabaráttunni fyrir 28. október?
Er ekki sundurlyndið komið á það stig að við verðum að fara að reyna að bæta okkur eins og Styrmir bendir réttilega á?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:37 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Styrmir Gunnarsson: "Þar telja almennir borgarar sér leyfilegt að segja nánast hvað sem er um annað fólk, sem oft er meira í ætt við kjaftasögur fyrri tíma en veruleikann í kringum okkur." Er þessi Styrmir, sá hinn sami sem kallaði íslenska þjóðfélagið ógeðslegt, enn að njósna um meðborgara sína?
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 23.9.2017 kl. 11:34
Æ haltu þig heima hjá þér Haukur
Halldór Jónsson, 23.9.2017 kl. 13:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.