Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna Samfylking eða V.G.?

í ríkisstjórn?

Kallaði þjóðin eftir Evrópusambandsaðild? Nei

Kallaði þjóðin eftir skattahækkunum? Já og nei.

Lofuðu ekki allir flokkar að eyða meiru til samneyslu? Jú

Hvað valdi þjóðin?

V.G., M listann og Flokk Fólksins.

Samfylkingin sameinaðist B.F. fremur en að bæta við sig. Sjálfstæðisflokkurinn missti fjórða hvern þingmann.Viðreisn missti helminginn.

Sér einhver einhverja skuldbindingu flokkakerfisins gagnvart kjósendum út úr niðurstöðu kosninganna? 

Er spurningin ef til vill sú hvaða ríkisstjórnarform sé líklegast til að vinna minnstan skaða á stöðugleikanum?

Eru Samfylking eða V.G. líkleg til að standa undir þeim væntingum?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón Valur Jensson hefur þetta að segja á bloggi sínu:

"Atli (Gíslasons)virðist telja, að VG hafi "lent í þeirri gildru að reyna að verja mikið fylgi í skoðana­könn­un­um" með því kannski að virðast slétt og felld og ekki of róttæk í baráttunni. Eitt dæmi gæti ég nefnt: Flokkurinn var formlega í stefnuskrá sinni með stefnu á í það minnsta 2.000 nýja kvóta­flóttamenn á fjórum árum og meira en tvöfalt fleiri hælis­leitendur til að taka hér við og veita allan viður­gerning og helzt fastan búseturétt, en þagði um þetta stefnumál sitt eins og mannsmorð, kannski vitandi það, að Íslendingar vilja ekki láta margfalda hér fjölda múslima á einu kjörtímabili og myndu þá heldur vilja fara nær stefnu Dana, sem er núna: NÚLLkvóta­flóttamenn á ári, og eru Danir þó 18 sinnum fleiri en við! En þetta formlega stefnumál VG varð reyndar aðal-felumál flokksins í kosninga­baráttunni, og hvað skyldi Atli Gíslason segja um það?

En það er eins gott að rytjurnar af lflokknum komist ekki að kjötkötlum Alþingis og ráðuneytanna til að útfæra þetta stefnu­mál sitt í verki í nýrri ríkis­stjórn. Menn tala sumir (m.a. Fréttablað dagsins) um nauðsyn á stjórn Sjálf­stæðis­flokks og Fram­sókn­ar­flokks með Vinstri grænum. En er það ekki himinn og haf sem aðskilur VG og Valhallar­menn í skatta­málum? Hvernig gengur það upp að hækka skatta um 70-80 milljarða að ósk Katrínar & Co., en lækka samhliða tekjuskatt niður í 35% að ósk Sjálfstæðis­flokks­ins? Þess vegna ættu menn að vísa frá þessum afleita ríkis­stjórnar­kosti, enda byði hann því heim, að Vinstri græn fengju að fjölga hér marg­faldlega vinum sínum múslimum!

Þar að auki er frú Katrín Jakobsdóttir greinilega enginn áberandi stjórnvitringur í augum Atla Gíslasonar!"

 

Halldór Jónsson, 8.11.2017 kl. 17:05

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Hvað sem menn segja er í dag líklegasta stjórnin: Sjálfstæðisflokkur, Framsók, miðflokkur og flokkur fólksins undir forustu sjálfstæðisflokksins. Stjórn undir forustu framsóknarflokks eða miðflokks er varla inn í myndinni vegna togstreitu milli þessara tveggja flokka. VG er sennilega að spila sig út úr myndinni með kröfu um forsætisráðherrann.

Jósef Smári Ásmundsson, 8.11.2017 kl. 18:40

3 identicon

Það er nú einsýnt, að Logi er við sama heygarðshornið og ekki við hann talandi eða á hann hlustandi, enda loka ég alltaf fyrir hljóðið, þegar hann er tekinn tali, því að ég nenni ekki að hlusta á röflið í honum. Það hefur verið óskaríkisstjórn mín eins og margra, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur, Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins, en Sigurður Ingi virðist ekkert vera spenntur fyrir því, og ætlar að láta fýlu þeirra Sigmundar Davíðs út í hvern annan ráða för, því miður. Við báðum ekki um neina déskotans vinstri stjórn, og ég get ómögulega séð Kötu litlu sem forsætisráðherra. Það er samt kannske skiljanlegt, hvers vegna VG kallar eftir forsætisráðherranum, því að við munum nú að forveri þess flokks, Alþýðubandalagið, fékk aldrei forsætisráðuneytið í sinn hlut, sem Alþýðuflokkurinn fékk þó einu sinni á árum áður í Stefaníustjórninni svokölluðu. Ég skil samt ekki, hvers vegna Bjarni ætti að afsala sér forsætisráðuneytinu í annað sinn við myndun stjórnar, ef sá kosturinn yrði ofan á, að hann myndaði stjórn með VG og einhverjum þriðja flokki. VG vill fá Samfylkinguna, en Bjarni vill annaðhvort Framsókn eða Miðflokkinn, svo að ég sé nú ekki alveg, hvernig hægt verður að koma saman stjórn þarna, þó að Sjálfstæðisflokkurinn og VG eigi margt sameiginlegt svo sem, eins og Styrmir bendir á, og raunar Björn Bjarnason líka, en Björn hefur líka sagt, að Svandís og hennar lið sé vandamál þarna, því að hún vilji ekki vera í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og megi ekki heyra á það minnst. Það er kannske tilraun til að miðla málum og fá hana til að samþykkja ríkisstjórn þessarra flokka, með því að Kata verði forsætisráðherra. Ég er svona að giska á það. Sigurður Ingi verður bara að mínu mati að bíta í það súra epli, að besta útkoman út úr þessu ríkisstjórnaspili mundi vera ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Miðflokksins og Flokks fólksins, hvernig sem hann reynir að forðast það til þess eins að þurfa ekki að hafa neitt með Sigmund að gera. Þeir eru samt ekki tveir einir í stjórninni, svo að það ætti ekki að vera vandamálið, hélt ég. Þess vegna skil ég ekkert í Sigurði Inga og stífni hans. Svo eru allir að tala um, að allir þurfi að gefa eftir núna, til þess að landið verði ekki stjórnlaust í margar vikur. Sigurður Ingi verður þá að sýna og sanna, að hann sé reiðubúinn til þess líka. Annars er ekki hægt að taka neitt mark á orðum fólksins þarna. Svo mikið er víst samt sem áður, að þetta fólk getur ekki verið að humma lengi yfir þessum ríkisstjórnarkapli, þegar fjárlög bíða og samningar lausir. Þetta fólk verður að fara að haga sér eins og almennilegt fólk og láta skynsemina ráða, heldur en að láta eins og krakkar í sandkassa. Svo held ég, að Rúv og Stöð2 ættu að láta þetta fólk í friði og láta stjórnmálamennina um ríkisstjórnarkapalinn og halda sér til hlés á meðan, í stað þess að láta eins og þeir gera, og þrýsta á um vinstri stjórn, sem kjósendur voru ekki að biðja um eða kæra sig ekki hætishót um, Það væri vitið þeirra meina hjá Rúv og Stöð2, og sinna bara sínum fréttastörfum og sleppa pólitískum þrýtstingi á alþingismenn, og röfla þetta sífellt um pólitík frá eigin brjósti. Þá verður eitthvað meira vit í hlutunum. En við verðum að vona það besta, og vona, að flokksformennirnir geti komið sér saman um starfhæfa ríkisstjórn, sem dugar í fjögur ár, enda mál að linni þessum óstöðugleika, sem hefur verið hérna undanfarin ár.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 8.11.2017 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418443

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband