Leita í fréttum mbl.is

Sannleikurinn um sósíalismann

í Reykjavíkurborg undir forystu Dags B. Eggertssonar og Hjálmars Sveinssonar kemur vel fram í frábærri grein kollega Jóhannesar Loftssonar, formann frjálshyggjufélagsins, í Morgunblaðinu í dag.

Grípum niður í greininni:

 "....Ofbeldi og óráðsía er eina svar valdaelítunnar. Banna á ný gistiheimili í miðbænum, kaupa á rándýr friðþægingarfátæktarúrræði sem kosta 30 milljónir á hverja félagslega íbúð og byggja á borgarlínu með stofnkostnað upp á hátt í milljón á hverja íbúð á höfuðborgarsvæðinu.

Til að fjármagna óráðsíuna á að selja Vatnsmýrarlandið en þar sem byggja þarf rándýran nýjan flugvöll í staðinn munu skattgreiðendur stórtapa. Gróði fasteignafélaganna sem græða verður því að fullu fjármagnaður með skattfé.

Ef innanlandsflug flyst frá Reykjavík mun það leggjast af í nú- verandi mynd og miðast við þarfir útlendinga en ekki íslenskra höfuðborgarbúa. Þróun sífellt hljóðlátari flugvéla og lægri flugfargjalda mun aldrei ná til Reykjavíkur og ferðahagræðið mun aldrei verða samt aftur.

Í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 er stefnt að því að almenningssamgöngur þrefaldist og að hlutur gangandi, hjólandi og almenningssamgangna verði a.m.k. 42% allra ferða. Það eru ekki bara feitir, fótalúnir og kulvísir sem ættu að hafa áhyggjur, heldur líka skattgreiðendur.

Stórfellt markaðssókn í úreltar samgöngulausnir frá miðri síðustu öld er galin hugmynd. Alla daga aka niðurgreiddir hálftómir risavagnar eftir sömu föstu leiðunum á föstum tímaáætlunum. Ef Strætó yrði lokað á morgun myndu einkaaðilar strax taka við. Í samkeppnisumhverfi gæti þjónustan þróast á heilbrigðan hátt þar sem besta lausnin yrði brátt ofan á. Uber-strætóútfærsla gæti t.d. haft endalausan sveigjanleika með allar stærðir vagna og stýringu verðs og ferða með símaöppum sem gæti stytt ferðir og bið- tíma og lækkað kostnað. Uber er hins vegar bannað á Íslandi.

Í krafti pólitísks valds eru nú eingöngu byggðar strætóreinar og hjólastígar í borginni. Götur eru þrengdar og til stendur að lækka hámarkshraða helstu stofnbrauta. Ríki og borg hafa meira að segja samið um að taka árlega milljarð af skattfé bílaeigenda og nota í rekstur strætó en bílaeigendur fá ekkert.

Árið 2003 stóð til að gera alla Miklubraut og Kringlumýrarbraut að hraðbrautum án umferðarljósa en 14 árum síðar hefur ekkert gerst. Nýlega var samþykkt að byggja háhýsi við Kringluna og þar með byrja að takmarka til frambúðar mögulegar útfærslur á að gera mikilvægustu gatnamótin mislæg. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem deiluskipulaginu er beitt til að hindra samgöngur því bæði Sundabrautin og Neyðarbrautin urðu að víkja eftir svipaðar æfingar.

Breytinga er þörf

Þegar viðskipti eru óhindruð þá græða báðir aðilar. En þegar viðskipti eru þvinguð þá græðir bara annar. Í höfuðborginni er fasteignaverð komið í yfirverð, úreltar samgöngulausnir munu þvælast fyrir betri lausnum og flugsamgöngur frá höfuðborginni munu leggjast af. Því munu höfuðborgarbúar framtíðarinnar verða skuldsettari, skattpíndari, hafa minni frítíma og minna ferðafrelsi en nú er. Allt er þetta afleiðing af skilningsleysi á mikilvægi frjáls markaðar. Þessari valdníðslu og óráðsíu verður að linna. Það er kominn tími fyrir nýja iðnbyltingu frjálshyggjunnar."

Hjálmar Sveinsson kom nýlega fram í sjónvarpi og lýsti nýjum skýjaborgum meirihlutans í Reykjavík þar sem byggja á fjölda íbúða við Kringluna ofan á fyrri framtíðarsýnir þeirra kumpána sem svar þeirra við íbúðaskortinum. 

Eins og Jóhannes bendir á er þetta skipulag fyrst og fremst unnið til að eyðileggja möguleika á byggingu mislægra gatnamóta á Kringlumýrarbraut þar sem tími slíkra gatnamóta er liðinn í Reykjavík samkvæmt opinberri yfirlýsingu Dags B. Eggertssonar.

Sama er að gerast við Reykjavíkurflugvöll. Þar er einbeittur skipulagslegur brotavilji þessara kumpána notaður til að eyðileggja framtíðarvöxt flugvallarins með því að kakka niður íbúðum þvert fyrir lengingarmöguleika hans út í sjó. Sama gerðu þeir með því að nota deiliskipulagið til að gera Sundabraut milljörðum dýrari með því að útiloka hagkvæmustu legu hennar með gerð þess..

Þessar gerðir allar eru þvílíkt tilræði við framtíðina af hálfu þessara afturhaldspilta og fortíðardýrkenda Hjálmars og Dags að ekki verður til jafnað. Sem betur fer eru að koma kosningar og þá gefst Reykvíkingum kostur á að koma þessum öflum út á ruslahaug stjórnmálasögunnar og kjósa nútímafólk til valda í Borginni áður en þeim tekst að fullkomna ætlunarverk sín og skemmdarverk. 

Meira óhappafólk í skipulagsmálum en meirihlutaflokkur þeirra Dags B. og Hjálmars Sveinssonar er í Reykjavíkurborg er vandfundið svo sem grein Jóhannesar og dæmin sanna.

Sannleikurinn um sósíalismann kemur allstaðar í ljós fyrr en síðar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418443

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband