17.11.2017 | 08:41
Hörður Ægisson
skrifar enn einu sinni af mikilli skynsemi um íslensk peningamál.
Það er kærkomið að lesa svo yfirveguð skrif um krónuna okkar og peninga-og vaxtastefnu Seðlabankans undir forystu Más Guðmundssonar í ljósi þeirra furðuskrifa sem vinstri-og Evrópusambandsflokkarnir ástunda og stöðugar fullyrðingar um ónýta krónu og álíka fullyrðingar.
Hörður segir:
"Núverandi peningastefna Seðlabankans er fjarri því gallalaus. Endurskoða þarf stefnuna með hliðsjón af þeirri kerfisbreytingu sem hefur orðið á hagkerfinu. Erlend staða þjóðarbúsins hefur aldrei verið betri og viðvarandi viðskiptaafgangur hefur gert Ísland að fjármagnsútflytjanda. Vinna verkefnisstjórnar að undirbúningi slíkra tillagna, sem hljóta að felast einkum í bættri umgjörð um krónuna, er nú á lokametrunum. Öllum má vera ljóst að þær breytingar geta aðeins orðið að veruleika fyrir tilstilli samhentrar pólitískrar forystu. Ástæða er til að ætla að svo geti orðið með þeirri ríkisstjórn sem nú er að fæðast. Þar yrði til mikils að vinna enda um að ræða eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda.
Þrátt fyrir nauðsyn þess að peningastefnan verði tekin til endurskoðunar þá verður ekki fram hjá því horft að trúverðugleiki hennar hefur aukist til muna síðustu ár. Með ýmsum úrbótum sem ráðist hefur verið í, ásamt innleiðingu nauðsynlegra þjóðhagsvarúðartækja, hefur peningastefnan skilað talsverðum árangri í að tryggja efnahagslegan stöðugleika.
Verðbólga hefur haldist lág samhliða einu lengsta samfellda hagvaxtarskeiði í lýðveldissögunni sem aftur hefur gefið Seðlabankanum færi á því að lækka smám saman vexti. Þá hafa verðbólguvæntingar, bæði til meðallangs og langs tíma, haldist í samræmi við markmið Seðlabankans.Þótt ráðist hafi verið í nánast fulla losun hafta fyrr á árinu, sem hafði í för með sér auknar gengissveiflur, þá hafa engu að síður ekki orðið breytingar á verðbólguvæntingum fjárfesta.
Spennan í þjóðarbúskapnum er í hámarki.
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá mun hagvöxtur helmingast í ár og verða 3,7 prósent. Þar ræður mestu aukinn innflutningur og hægari vöxtur útflutnings, einkum í ferðaþjónustunni. Sú þróun þarf ekki að koma á óvart enda ekki við því að búast að sá gríðarmikli vöxtur gæti haldið áfram með sama hætti. Már Guðmundsson seðlabankastjóri benti réttilega á það í ræðu sinni á peningamálafundi Viðskiptaráðs í gær að það væri þess vegna óumflýjanlegt og æskilegt að hagvöxtur væri farinn að minnka. Þótt það sé til vinsælda fallið að gera krónuna ávallt að blóraböggli þá hefur hún þar leikið lykilhlutverk. Gengishækkun gjaldmiðilsins hefur skipt sköpum í nauðsynlegri aðlögun þjóðarbúsins að þeim búhnykk sem hefur fylgt uppgangi ferðaþjónustunnar. Að öðrum kosti væri meira ójafnvægi í hagkerfinu, aukin verðbólga og hærri vextir.
Ný ríkisstjórn tekur við á sama tíma og efnahagsstaðan hefur aldrei verið sterkari. Því fylgja tækifæri og áskoranir. Mestu skiptir að ekki verði slakað á aga í ríkisfjármálum og að stöðugleiki verði tryggður á vinnumarkaði þar sem samið verði um hóflegar launahækkanir.
Takist það er fyrst ástæða til binda vonir við að Ísland geti farið að þokast í átt til þess að verða líkara lágvaxtalöndum. Verði hins vegar ráðist í þau útgjaldaloforð sem ýmsir flokkar boðuðu í aðdraganda kosninga eru afleiðingarnar fyrirsjáanlegar og viðskiptaafgangurinn mun meðal annars snúast í halla innan fárra ára.
Einn helsti lærdómur gjaldeyris- og bankakreppunnar 2008 er sá að fyrir opið lítið hagkerfi eins og Ísland skiptir öllu að viðhalda jafnvægi á greiðslujöfnuði við útlönd. Aldrei aftur má hagkerfið komast í þá stöðu að vera rekið með blússandi viðskiptahalla ár eftir ár. Þá fyrst er hætta á harðri lendingu í efnahagslífinu."
Þarna er sannleikurinn tær settur á borð.Kjarasamningar geta ráðið því hvort hér verði bjartari framtíð með lækkandi vöxtum, lágri verðbólgu og styrkara gengi krónunnar sem þýðir bætt lífskjör eða hvort áunninn árangur síðustu ára tapast á uppboðstorgi óábyrgra yfirboða. Því miður eru þær raddir að heyrast frá forystusveitum opinberra starfsmanna sem ætla að taka forystu í einhverskonar "leiðréttingakjarabaráttu" eins og það er skilgreint í stað beinna taxtahækkana.
Hörður Ægisson á þakkir skildar fyrir þessi skynsamlegu skrif.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419728
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.