Leita í fréttum mbl.is

Hvað með okkur og EES?

Er ekki komið að Íslendingaum að fara að hugsa sinn gang með þetta EES sem ekkert er að færa okkur nema þvinganir í málefnum sem okkur koma einum við.

Norðmenn eru fyrir löngu farnir að efast svo sem eftirfarandi grein ber með sér:

 

"Norðmenn hafa áhyggjur af víkjandi hagsmunum Noregs vegna lagareglna ESB. Evrópska efnahagssvæðið er umdeilt vegna óendanlegs flóðs nýrra lagareglna ESB sem ógnar norrænum vinnumarkaði, eykur kostnað fyrirtækja í dreifbýli vegna aukinna reglna ESB og fullveldið er flutt til eftirlitsstofnunarinnar EFTA (ESA) og fjölmargra stofnana ESB, svo sem í fjármálagerningum. Nærri 12.000 ESB-tilskipanir og reglugerðir hafa verið teknar upp í gegnum EES-samninginn, sem hefur breytt norsku samfélagi á ýmsum sviðum, þar á meðal í geirum samfélagsins sem áttu að vera utan samningsins, svo sem í sjávarútvegi og landbúnaði.

Þetta kemur fram í grein eftir Morten Harper, rannsóknarstjóra norsku samtakanna Nei til EU.

Jafnframt kemur fram í greininni: 

Þegar Noregur undirritaði samninginn um Evrópska efnahagssvæðið var okkur sagt frá bæði ESB og ríkisstjórn Verkamannaflokksins á þeim tíma að norskt fullveldi yrði virt. Þess í stað hefur samningurinn – sem gerir Noreg, Ísland og Liechtenstein að hluta til að innri markaði ESB – leitt til stjórnarhátta ESB á nokkrum sviðum.
 
Fyrir 25 árum – 2. maí 1992 – var þessi umdeildi EES-samningur undirritaður áður en þingið samþykkti samninginn um haustið sama ár.
 
Samkomulagið var aldrei tekið til þjóðaratkvæðagreiðslu og í 25 ár er Noregur enn í miðri EES-umræðu sem er ákafari en nokkru sinni fyrr.
 
Þessi heita umræða er að hluta til vegna Brexit, sem er auðvitað það sem er að breytast í evrópskum stjórnmálum og býður upp á ný tækifæri til að takast á við alþjóðleg viðskipti og samstarf.
 
Fyrir Noreg er þetta tími til að endurskoða samskipti okkar við ESB, auk þess að þróa tvíhliða viðskiptasambönd við Bretland, helsta útflutningsmarkað Noregs.
 
....
Samhliða ræður túlkun ESB-sáttmálans og annarra ESB-/EES-reglna sem eru strangari og hafa enn frekari áhrif á norska hagsmuni með víðtækara umfangi. Kostnaður Noregs af EES-samningnum hefur tífaldast frá árinu 1992. Án formlegrar skuldbindingar í samningnum hefur norska ríkisstjórnin aftur og aftur samþykkt að fjármagna stuðningsáætlanir ESB-landanna (EES-styrki og Noregs-styrki). Vegna áætlana ESB (rannsóknir o.s.frv.) og kostnaðar við EFTA-/EES-stofnanir, greiðir Noregur um 650 milljónir punda (um 100 milljarða ISK) á hverju ári til ESB og einstakra ríkja sambandsins.
 
....
 
EES-samningurinn hefur reynst nákvæmlega eins og samningurinn sem Nei við ESB varaði við þegar Noregur gerðist aðili fyrir 25 árum; „greiða, hlýða og þegja“. Í Brexit-umræðunni hafa sumir mælt fyrir EES sem möguleika fyrir Bretland, þ.m.t. framkvæmdastjórn ESB. En kennslustundin frá Noregi, eftir reynslu í aldarfjórðung, er sú að í EES er landið ekki fært um að stjórna eigin málum. Og það sem kann að hafa verið ætlað sem tímabundið fyrirkomulag dagaði uppi í áratugi. EES-samningurinn var reyndar gerður til að undirbúa aðild Noregs að ESB – sem þjóðin hafnaði síðan í þjóðaratkvæðagreiðslu 1994.
 
Við í Nei við ESB viljum skipta EES-samningnum út gegn nýjum viðskiptasamningi og krefjumst þjóðaratkvæðagreiðslu um uppsögn EES-samningsins. Við erum viss um að það væri betra að eiga viðskipti á jöfnum skilmálum við ESB en að vera samþætt inn í innri markaðinn og „frelsi“ hans, frjálst flæði vöru, þjónustu, fjármagns og vinnuafls.
 
Tvær nýlegar skoðanakannanir, á vegum Nei við ESB og framkvæmdar af Sentio, staðfestu opinberan stuðning við þessa mikilvægu kröfu. Í fyrsta lagi: Mikill meirihluti hefur áhuga á að segja upp EES-samningnum: 47% eru fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu um að Noregur yfirgefi EES, en aðeins 20% hafna slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu.
 
Norðmenn eru einnig gagnrýnni á EES en áður. Kannanir undanfarin ár hafa sýnt meirihlutastuðning Norðmanna við EES, en þetta er nú að breytast. Enn er mikill fjöldi óviss í afstöðu sinni – 46% – en meðal þeirra sem taka þátt styðja aðeins 23% EES og 31% vilja eiga viðskipti í staðinn. Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu er meirihluti gegn veru í EES, næstum 60% á móti 40%.
 
Mikill meirihluti er á móti ESB, sem hefur verið stöðugt í kringum 70% í nokkur ár. Verkamannaflokkurinn, sem er stærsti stjórnmálaflokkur Noregs, breytti nýlega um afstöðu og hefur hætt við það markmið að koma Noregi inn í ESB. Nú er forsætisráðherrann okkar, Erna Solberg, að verða síðust í sínum flokki fylgjandi aðild að ESB. Samstarfsflokkur hennar í ríkisstjórn, Framfaraflokkurinn, er gegn aðild að ESB og vill endursemja um nýjan EES-samning (en vill ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um EES). EES-samningurinn ætti að virða norskt fullveldi og Noregur ætti að geta hafnað þeim reglum sem við ættum ekki að hafa. 25 árum síðar er augljóst að Noregur hefur nokkrum sinnum gefið eftir stjórnvaldsákvæði. Réttur Noregs og EFTA-samstarfsaðila okkar til að hafna nýjum ESB-lagareglum er í EES-samningnum, en hefur ávallt verið svæfður. Í nokkurn tíma hafnaði Noregur þriðju pósttilskipunum ESB, en núverandi borgaralega ríkisstjórn dró til baka þá höfnun. Neitunarákvæði samningsins hafa aldrei verið notuð til að tryggja varanlegar undantekningar fyrir Noreg.
 
Í norsku EES-umræðunni er mikið talað um að nota „rými fyrir innlent frelsi“, það er að segja, að finna fyrirkomulag til að sniðganga eða draga úr neikvæðum áhrifum regluverks ESB. Þetta segir eitthvað um hve mótsagnakenndur og óskynsamlegur EES-samningurinn hefur reynst vera.
 
Lykilatriði í nýju skýrslunni „25 ár í EES“, er hvernig EES-samningurinn veldur einkum skaða á norska atvinnulífinu. EES-skýrslan sýnir hvernig norsk lög, kjarasamningar og ILO-samningar (Alþjóðavinnumálastofnunin) víkja fyrir reglum ESB/EES.
 
Í umdeildum úrskurði í lok síðasta árs fylgdi Hæstiréttur ráðgjöf EFTA-dómstólsins og setti reglur ESB um frelsi fyrirtækja framar rétti verkamanna og 137. ákvæði Alþjóða Vinnumálastofnunarinnar um hafnarverkamenn. Nokkur verkalýðsfélög krefjast þess nú að Noregur yfirgefi EES.
 
Noregur er mikill framleiðandi orku. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill tengja Noreg eins náið og unnt er við ESB-orkukerfið og stefnir að fimmta frelsinu: frjálsu orkuflæði. Meirihluti ESB-orkulöggjafarinnar er talinn falla undir Evrópska efnahagssvæðið og gerir því samninginn að verkfæri ESB til að samþætta Noreg í orkukerfið.
 
Nánast ekkert hefur meiri þýðingu fyrir norskan iðnað en langtíma aðgengi að raforku á samkeppnishæfu verði. Sífellt meiri útflutningur rafmagns til meginlandsins og Bretlands getur leitt til þess að Noregur þurfi að greiða hærra raforkuverð fyrir sín not. Aðeins við þjóðarorkakreppu getur Noregur komið í veg fyrir útflutning raforku. Að öðru leyti stjórnast allt af samkeppnisreglum ESB/EES.
 
Stuðningsmenn EES styðjast enn við sama hræðsluáróðurinn og árið 1992: að við verðum að hafa EES-samning um að selja vörur til ESB. Þessi áróður var mjög villandi árið 1992 – og er það enn í dag. Norski iðnaðurinn hafði frjálsan aðgang að öllum útflutningi til Evrópusambandsins fyrir EES – og þessi fríverslunarsamningur myndi enn gilda ef EES-samningnum yrði sagt upp.
 
Reyndar fór stærri hluti útflutnings til ESB-landa (þá EU12) fyrir EES-samninginn en raunin er í dag. Ef eitthvað sýnir þetta greinilega að EES-samningurinn er ekki forsenda fyrir viðskiptum við ESB. Meira en 150 lönd utan hins sameiginlega markaðs selja vörur til ESB.
 
Ekkert þeirra þarf að breyta löggjöf sinni eða gefa eftir fullveldi til að selja vörur sínar til ESB. Þetta á einungis við um Noreg, Ísland og Liechtenstein og það er þessi undirgefni fyrir ESB-löggjöfinni sem gerir EES-samninginn svo óþolandi.
 
25 ár í EES hefur verið meira en nóg.

Höfundur er rannsóknarstjóri „Nej til EU“-samtakanna norsku."

Ég held að Íslendingar eigi að hætta að láta stjórna sér svo blint sem raun er á orðin.Við eigum að fara að okkar eigin hætti eins og hinar þjóðirnar gera þegar þeim hentar.

Það erum bara við Íslendingar sem gleypum allt hrátt og samþykkjum af því að Alþingismenn okkar eru svo latir eða vitlausir að lesa ekki einu sinni tilskipanirnar sem embættismennirnir keyra inn á þingið.  Nú síðast ætla þeir að keyra ofan i okkur fjölónæmar bakteríur í hráu kjöti af því að einhverjir prangarar halda að þeir geti grætt eitthvað á því að selja fleiri kíló af ódýrara kjöti. 

En hvað verð verður greitt fyrir það slys að vista hér pestir sem við erum nú lausir við og allir vísindamenn okkar vara við að flytja hér inn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það er kominn tími til að segja astala vista bye bye við EES og Schengen.

Þetta átti að vera viðskiptaaðild við ESB sem er kominn út í það að Brussel er farin segja Íslendingum hvað má og hvað má ekki gera. Sem sagt farinn að stjórna Íslandi og setja lög.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 2.12.2017 kl. 18:43

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

Það fer ekki á milli mála eftir úrskurð EFTA-dómstólsins um daginn gegn íslenzka ríkinu um, að varúðarráðstafnir íslenzka ríkisins gegn sýkingu manna og dýra með innflutningi á hráu kjöti og eggjum og ógerilsneyddri mjólk, stríði gegn matvælalöggjöf ESB og þar með gegn EES-samninginum, að aðild Íslands að EES felur í sér svo verulegt fullveldisframsal, að ekki verður við unað.

Endurskoðun, eða, ef nauðsyn krefur, uppsögn EES-samningsins felur í sér stærsta utanríkispólitíska viðfangsefni Íslendinga á þessu kjörtímabili, en það er ekki ýjað að því í sáttmála "Fullveldisríkisstjórnarinnar".

Bjarni Jónsson, 2.12.2017 kl. 18:46

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er langt síðan við hefðum átt að segja upp samningnum um EES.  Það er alveg víst að sá samningur gerir okkur meiri skaða en gagn.....

Jóhann Elíasson, 2.12.2017 kl. 19:56

4 Smámynd: Þorkell Guðnason

Ég ber mikla virðingu fyrir menntun þess fólks, sem hefur notað nám sitt til að afla þarfrar menntunar.  Fyrir menntun hinna ber ég ég litla virðingu - jafnvel þótt titlar og gráður séu á hæsta stigi. "Menntun" jafngildir hvorki gáfum né þekkingu í minni bó

Mín tilfinning er sú, að á jötuna hjá okkur og EES/ ESB hafi raðað sér "menntað" hyski, sem misbeiti stöðu sinni og valdi með hroka og yfirgangi. Íslensk þjóð þarf að losna undan því hyski.

Þorkell Guðnason, 2.12.2017 kl. 23:54

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann flugvirkjameistari, kollega Bjarni,Jóhann Elíasson og Þorkell. Mér sýnist að þið hafið svipaðar efasemdir og ég um ágæti þess að láta stjórna okkur svo sem gert er. Mér er fortali´ð að allar aðrar EES þjóðit hafi það bara úr samningnum sem þeim hentar og geri sínar undantekingar eftir þörfum. En okkar fólk gerir ekkert nema hlýða í blindni eins og ætlar að verða ofaná með perstarketið.Eða þekkið þið til dæma um þetta?

Halldór Jónsson, 3.12.2017 kl. 10:11

6 Smámynd: Már Elíson

Hvaða ábata höfum við íslendingar hins vegar í Evrópu vegna EES-samningsins ? Ef einhvern, segið mér. - Evrópska sjúkrakortið kannski ? - Eitthvað fleira eða annað ?

Már Elíson, 3.12.2017 kl. 13:43

7 Smámynd: Jónatan Karlsson

Er ekki öruggast að fylgja þeim Bjarna og Áslaugu Örnu í þessu, sem og í öðrum málefnum og vera ekki að rugga bátnum?

Jónatan Karlsson, 3.12.2017 kl. 16:54

8 identicon

Víð höfum ekkert með Schengen að gera.

Merry (IP-tala skráð) 3.12.2017 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband