Leita í fréttum mbl.is

Bandaríkin eru á uppleið

mun hraðar en menn sem spá mestum uppgangi í Asíu halda.

Trump hefur virkjað Bandaríkin til sjálfsskoðunar og aukið traust manna á sjálfum sér til muna. Allt atvinnulíf hefur tekið við sér eftir skattabreytingarnar og allir hagvísar stefna nú upp á við. Hans verður lengi minnst fyrir þetta og dómar þeirra svartsýnu munu breytast eins og gerðist með Reagan. Sá var nú ekki hátt skrifaður blessaður í byrjun forsetatíðar sinnar. En hann var ótrauður eins og Trump og er minnst nú sem eins af betri Forsetum Bandaríkjanna.

En Trump er ekki heldur fæddur í gær og hann virðist lengi hafa haft ákveðna framtíðarsýn fyrir Bandaríkin eins og sjá má á 40 ára gömlu viðtali við hann:https://youtu.be/nAgJAxkALyc

Innviðir Bandaríkjanna eru svo langtum betri menningar- og menntunarlega en Asíumanna að það bil verður ekki unnið upp með tómum steinsteypukössum áætlunarbúskapar Kína eða innviðafátækt og frumstæðingsskap á heilbrigðissviði sem sér öllum heiminum fyrir pestum. Kína á lengra í land og verður ekki lýðræðisríki í náinni framtíð.

Bandaríkin verða í forystu og á uppleið út þessa öld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Pópulistarnir munu aldrei viðukenna að Trump geti gert neitt rétt ef þeir finna ekki annað þá er það tínt til að hann þyrfti að vera með stærri hendur! 

Grímur (IP-tala skráð) 30.12.2017 kl. 16:21

2 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Halldór

Þetta er allt saman á hraðri uppleið hjá elítunni, rétt eins og hér á landi hjá ráðherrum og alþingismönnum, ekki spurning um það lengur. Vaxandi ójöfnuður og óréttlæti er komið til þess að vera!

KV. Image result for trump taxes cut for 1%
 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 30.12.2017 kl. 18:08

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þ S T

Ertu svona mikill kjáni að segja að skattalækkun sú sem þeir sem minnst borga í skatt skipti þá engu máli? Spyurðu þá sem eru í lægstu tekjuflokkunum hvort þeir vildu frekar sleppa þessri lækkun á sköttum þeirra frekar en þiggja hana, bara af því einhver sem er með mikil laun lækkar meira í $ talið en þeir?
Ekki gleyma því að hagsagan í heiminum sýnir að þeir tekjuhæstu eru jafnan þeir sem hafa skapað tækifærin með framlagi sínu til þess að þeir sem lægri hafa tekjurnar fái vinnu og ekki nóg með það eftir því sem hagur þeirra ríku vænkast af því að leggja fram áhættufé í nýjan rekstur eða endurbætur á eldtri rekstri eykur hagvöxt og tekjur sem og kaupmátt allra og eykur getuna til að gera betur í launum við starfsmenn sem og aðbúnaði á vinnustað, með sífelldri endurnýjun á aðstöðu eða stækkun á fyrirtækjunum. Kemur öllum hringnum vel.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 30.12.2017 kl. 21:25

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór réttsýnn eins og venjulega. Gleðilegt ár.

Valdimar Samúelsson, 30.12.2017 kl. 22:44

5 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Predikarinn - Cacoethes scribendi

Ég held þú ættir að skoða betur, hvaða þessar skattalækkanir (eða "Tax Cut") hafa að segja á heildina litið, heldur en koma með allan þennan stuðning fyrir þá efnameiri. Ég vil frekar spyrja þá í lægstu- og mið- tekjuflokkunum, hvort þeir vildu ekki frekar sömu lækkun (í prósentum eða hlutfaldslega lækkun) og þeir efnameiri þarna?
En það kann að vera rétt að þú getur bara ALLS EKKI stutt neitt nema svona óréttlæti og ójöfnuð, en hérna myndin með súluritunum stendur fyrir sínu, þú?

KV.
Related image

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 30.12.2017 kl. 22:49

6 identicon

Jæja, Steini (Predikarinn). Þeir ríku munu sjá um þá fátæku, er það ekki? Ekki verður vanþörf á þegar skattasnuðið verður tekið frá fátæklingunum og millistéttinni eftir 3-4 ár og öllum ágóðanum komið milliliðalaust til þeirra ofurefnuðu.

http://www.hringbraut.is/sjonvarp/thaettir/edaltonar

Þorsteinn Halldórsson (IP-tala skráð) 31.12.2017 kl. 00:53

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þ H

Ekki veit ég hvaðan þú hefur upplýsingar þínar. En því ertu að blanda saklausu fólki utan úr bæ við mig? Það er full bratt, í reynd ósmekklegt  lítur samt út fyrir að sá sem þú vísar á sért þú sjálfur, enda með sama nafn.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 31.12.2017 kl. 01:03

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Steini nú veit ég afhverju þú dæsir eins og Scari í "Lion King" ef þú ert krafinn um þjónustu í vinnunni,blaðandi í hatursáróðurs blöðum,eru ekki nýsamin lög um þetta athæfi,? OH ég hebbði haldið það..... 

Helga Kristjánsdóttir, 31.12.2017 kl. 07:49

9 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæl Helga

Ég er bara óánægður með hann Donald Trump kallinn, en ég kalla þetta ekki að dæsa sig, heldur er ég bara núna að benda á þetta óréttlæti og ójöfnuð. Ég vona bara að það sem að nafni minn segir hér fyrir ofna með, að "skattasnuðið verður tekið frá fátæklingunum og millistéttinni eftir 3-4 ár og öllum ágóðanum komið milliliðalaust til þeirra ofurefnuðu", rætist ekki.

Gleðilegt nýtt ár.     

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 31.12.2017 kl. 11:26

10 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ef menn ættla að komemtera á einhver málefni, þá er kanski í lagi að hafa staðhæfingar á hreinu.

1. Skattalækkun einstaklinga rennur út eftir 8 ár en ekki eftir 4 ár. En þá er kanski hægt að spurja af hverju bara í 8 ár? Jú vegna reglu íöldungardeildini þá varð að not meirihluta regluna í staðinn fyrir yfir 60% regluna. Ef að það hefðu verið 9 demókratar sem hefðu greitt atkvæði með skattalækkunum þá hefði skattalækkanirnar orðið óendanlegur. Það var ekki einn einasti kommi (demókrati) sem greiddi atkvæði með skattalækkunum.

2. Það verður stór hluti sem greiðir engan skatt, USA er með það á hreinu að yfirvöld skattleggja ekki fátækt fólk eins og islendingar gera.

3. Er það líklegt að þingmenn USA framlengi skattalækkanirnar þegar að því kemur? Ég sé það fyrir mér að demókratar neita að framlengja og biðja um atkvæði kjósenda á sama tíma. Það er mjög ólíklegt. Skattalögin verða á endanum gerð að óendanlegur skattalækkunum. Til að koma þessu í gegn þá var það notað sem að var hægt að nota, ístaðinn fyrir að gera ekki neitt í skattareglum USA.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 31.12.2017 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband