Leita í fréttum mbl.is

Svandís á að víkja fyrr

en Sigríður Andersen ef dómar frá okkar umdeilda Hæstarétti  eiga að útloka fólk frá pólitík.

10.febrúar 2011 stóð þetta í fréttum á Vísi:

" Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu í dag að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefði brotið lög þegar hún neitaði að staðfesta aðalskipulag vegna Urriðafossvirkjunar. Mikill áfellisdómur yfir stjórnsýslu ráðherrans, segir lögmaður Flóahrepps.

Synjun ráðherra fyrir rúmu ári að staðfesta skipulag tveggja hreppa, Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, stöðvaði í raun þrjár virkjanir í neðri Þjórsá, kenndar við Urriðafoss, Holt og Hvamm, en þær voru fullhannaðar og tilbúnar til útboðs. Svandís Svavarsdóttir hafnaði skipulaginu á þeirri forsendu að Landsvirkjun hefði greitt kostnað viðkomandi sveitarfélaga vegna skipulagsvinnu.

Ráðamenn Flóahrepps sættu sig ekki við ákvörðun ráðherrans, hvað varðar Urriðafossvirkjun, töldu þetta pólitískan gerning en ekki faglegan. Flóamenn höfðu sigur í Héraðsdómi í haust og nú hefur Hæstiréttur staðfest þann dóm. Fimm dómarar Hæstaréttar voru einhuga um niðurstöðuna.

Óskar Sigurðsson, lögmaður Flóahrepps, segir dóm Hæstaréttar vera mikinn áfellisdóm yfir stjórnsýslu ráðherra; að ráðherra hafi brotið gegn fyrirmælum laga við ákvörðun sína og ekki farið eftir því sem lagatextinn segir.

Þá komi fram í dómnum að sveitarstjórn hafi að öllu leyti, efnislega, málefnalega og löglega, staðið rétt að sínum ákvörðunum, að sögn Óskars.

„Það er þvert gegn því sem ráðherra hefur haldið fram, - og sveitarstjórnarmenn þurft að sitja undir áburði um það að hafa ekki staðið faglega að málum. Þessu er einfaldlega hnekkt, bæði í héraði og Hæstarétti," segir lögmaðurinn.

Synjun Svandísar í fyrra hafði þær afleiðingar, að sögn forstjóra Landsvirkjunar, að fyrirtækið ákvað að fresta öllum viðræðum við fjölda erlenda fyrirtækja sem óskað höfðu eftir orkukaupum, og sagði Hörður Arnarson þá að ákvörðun ráðherrans myndi tefja atvinnuuppbyggingu, sem nýtt hefði orku þessara virkjana, um eitt til tvö ár.

„Ég geri ráð fyrir því að ráðherra staðfesti þetta skipulag á næstu dögum," segir lögmaður Flóahrepps."

Sigríður hefur miklu meiri réttlætingu á sínum gerðum heldur en Svandís. Sigríður hafði afgerandi samþykkt Alþingis á bak við sig þegar hún skipaði í dómarasætin samkvæmt því. Svandís var bara ein og sér í sínu. Kommarnir skauta yfir það atriði að engin önnur tillaga lá fyrir Alþingi en tillaga Sigríðar.

Þeir hundskuðust ekki til þess að æmta né skræmta þegar þetta var tekið fyrir á Alþingi. Nú gelta þeir Huijbens og Björn Valur eins og óðir hundar og reyna að grafa undan formanni sínum aðallega og ríkisstjórninni sem þeir þola hvorugur.

Það á að ræða ráðherrahæfi Svandísar Svavarsdóttur áður en menn ræða embættishæfi  Sigríðar Andersen sem er ótvírætt.

 


 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband