Leita í fréttum mbl.is

"Skítlegt eðli"

voru orðin sem vor fyrrum ástsæli Forseti doktor Ólafur Ragnar Grímsson notaði til að lýsa formanni Sjálfstæðisflokksins Davíð Oddssyni á sínum tíma.

Björn Bjarnason ritar um árásir Sunnu Ævarsdóttur og Loga Más á Bjarna Benediktsson svofellt:

"Málatilbúnaður formanns Samfylkingarinnar bar vott um vanstillingu. Skyldi hann þrá sjálfur sviðsljósið í stað þess að Helga Vala baði sig í því fyrir hönd Samfylkingarinnar? Eða hefur hann ákveðið að keppa við Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmann Pírata, í leiknum sem hún hefur stofnað til í þingsalnum um hver særir og móðgar mest?  "

Spurning sem ég velti fyrir mér æ oftar þegar ég hlusta á þetta fólk er sú hvernig innréttingin sé í því? 

Varðandi Loga hugsa ég til Snorra í Betel og viðskipta Loga við hann. Ég þarf eiginlega ekkert meira.

Varðandi Sunnu sannfærist ég því meir sem ég heyri hana tala að þar fer manneskja sem ég hef litla löngun til að þekkja.

Orð fyrrum Forseta vors um mannlegt eðli geta auðveldlega komið í hugann að minna tilefni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Skildi friður vera búinn á alþingi og sorinn farin af stað.

Valdimar Samúelsson, 3.3.2018 kl. 11:27

2 Smámynd: Kristmann Magnússon

Ja nú erum við innilega sammála Halldór minn 

Kristmann Magnússon, 3.3.2018 kl. 14:58

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég hélt að Logi væri þinn maður og vopnabróðir í ESB málinu eins og Bieltved Mannsi.

Almáttugur er ég að bila við það sagði kallinn þegar hann saup duglega á hreinum spíra en hélt að það væri venjulegt brennvín. Ertu nokkuð að bila við ESB-ið  Mannsi minn?

Valdimar, það yrði dagurinn þegar friðsælt yrði í kringum Þórhildi Sunnu

Halldór Jónsson, 3.3.2018 kl. 15:59

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Halldór! Já Samfó er að súkka niður,einhvern tíma hefði ég glaðst ógurlega,td. þegar þau réðust á Davíð og alla okkar menn,ég sé glottandi feisin þeirra enn ef sá tími ber á góma.-- Ég skil ekki í mér að vera að blogga með migrene steykjand lamb oní 2 af drengjunum mínum með Eurovisian í eyrunum,gömlu kvendin gátu gert margt í einu og ég held áfram til að látast vera ung bara smá.  

Helga Kristjánsdóttir, 3.3.2018 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 3418305

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband