Leita í fréttum mbl.is

Klikkaði Skaparinn?

þegar hann koma að "Lillemand". Þarf mannlega preláta og pokapresta til að leiðrétta delluna hjá Drottni?

Eftirfarandi texti barst mér.Þó hann sé illa þýddur og jafnvel torskilinn þess vegna þá læt ég hann flakka því mér finnst hann nokkurn veginn skiljanlegur og bæti inn innskotum eftir mínum smekk.

I-Hvað er umskurn mannsins?

"Umskurnin þýðir" að skera í kringum ".

Á karlkyns ungbörnum er umskurn aðgerð sem felur í sér að nema burt hluta húðarinnar frá forskinninu  um höfuðið á typpinu.

Skinnið í typpinu er flókið fyrirbæri. Það er skorið af því  án þess að skýrar vísbendingar séu um það hvar það ætti að skera á umskurn. Þetta þýðir að það magn húðarinnar sem er fjarlægt frá einni umskurn til næstu getur verið mjög mismunandi og engar tvær umskurnir eru því þær sömu. Og framkvæmdar jafnvel af ómenntuðum hálfvitum.  

Húðin um liminn inniheldur mengi af "dorsal-taugum" og milli 10.000 og 20.000 sérhæfðir taugaenda af ýmsum gerðum er þar að finna sem eru færir um að skynja smá hreyfingu og teygjur,  breytingar á hitastigi og hárfínum stigum í viðkomu. Þannig eru allt að 20.000 taugaendar fjarlægðir með umskurn.

Næmasti hluti forhúðarinnar er fjarlægður í umskurnum.

 II-Allah er alvitandi, alvitur." (Kóraninn 4:26)


- Allah segir okkur að hann hafi skapað mennina fullkomna.

III-Læknisfræðilegar rannsóknir sýna að forhúðin þjónar mörgum  gagnlegum tilgangi og er ætlað af ásettu ráði af Allah eða hverju nafni sem Skaparinn nefnist, til að þjóna þessum tilgangi.Í stað Allah má líka setja Jahve, Guð eða hvað sem menn kjósa að kalla þann hæsta.

Því er þá þetta inngrip manna nauðsynlegt?

Hvernig getur Bispan okkar tekið að sér að samþykkja það að Drottinn sé Klikkhaus og hafi ekki vit á því sem hann er að gera? Þessvegna megi fremja þetta ofbeldi á varnarlausum börnum. Vill hún ekki bara  láta umskera sig til að sýna samstöðu með Múslímum svo þeir móðgist ekki og vilji ekki setjast að á Íslandi?

Eða er hún sjálf bara mannlegur Klikkhaus?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

 Í eftirfarandi grein eru trúarlegu rökin gegn umskurn rakin og rökin fyrir umskurn hrakin. Mjög áhugaverð lesning, tekur á öllum bábiljunum í kringum fyrirbærið. M.a. að umskurn á biblíutímum var allt öðruvísi en umskurn á okkar tímum.

Answers from the Bible to Questions about Circumcision

Theódór Norðkvist, 4.3.2018 kl. 21:49

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Mikið ósköp eru Íslendingar uppteknir af tipum og pikum, er ekkert meira áríðandi að fjalla um á Íslandi?

MAGA

Kveðja frá Houston 

Jóhann Kristinsson, 4.3.2018 kl. 22:53

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann, mikið er ég sammála þér hvað þetta tekur mikið pláss í samfélaginu. Mér finnst margt nauðsynlegra en þessi athygli sem bitnar á öðru þarfara.

Halldór Jónsson, 4.3.2018 kl. 23:03

4 identicon

Drottinn er klikkaður vegna þess að hann var búinn til af illa upplýstum geðsjúklingum

DoctorE (IP-tala skráð) 5.3.2018 kl. 10:25

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór flott grein.

Jóhann Gleðiefnið var að Hægri öfl í Ítalíu unnu og héðan í frá munu þeir loka sínum landamærum og senda flesta flóttamenn burt.

Valdimar Samúelsson, 5.3.2018 kl. 13:59

6 Smámynd: Halldór Jónsson

JÁ Valdimar, mæltu manna heilastur.

En til Íslands. Hversvegna voru valdir bara múslímar til að senda þarna vestur á land og verið var að sýna myndir af í sjónvarpinu. Hefðu ekki verið meiri líkur á að ekki-múslímar hefðu fallið betur inn í vestfirskt samfélag heldur en þetta slæðufólk?

Halldór Jónsson, 5.3.2018 kl. 15:58

7 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Að sjálfstöðu klikkaði skaparinn þarna Halldór, þar sem 500 læknar hafa skriflega afneitað eðli mannsins sem hann skapaði. Það segir sig sjálft.

Þeir hafa því að sjálfsögðu gert sjálfa sig að guði í staðinn. Maður getur bara ekki beðið eftir að Sameinuðu þjóðirnar stigi upp til himna og ryðji sér þar til rúms, sem ku vera stórt. Verst hversu hárra launa þeir krefjast af okkur, hinum vansköpuðu.

En merkilegt er hve stutt er síðan að 500 læknar mæltu með raflostum, klakaböðum í spennitreyjum og útrýmingu Gyðinga, sem læknisaðgerðum á mannkyni hins "klikkaða" guðs. Það eru ekki nema rúmlega 70 ár síðan.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 5.3.2018 kl. 16:12

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór og Gunnar mikið rétt hjá ykkur báðum og við erum alltaf þarna að vega salt með hvernig þessi heimur verður.

Valdimar Samúelsson, 5.3.2018 kl. 17:19

9 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Þegar ég horfi niður eftir kviðnum á mér, alveg niður að "Bibba", get ég ekki með nokkru móti skilið hvers vegna nokkur manns eða annars máttur vildi sneiða framan af þessu appírati.

 Það hefur einhverjum misheyrst á öllum þessum fjallstoppum sögunnar. Það getur barasta ekki annað verið. Skilaboð eiga það til að skolast til, í meðförum manna. Það er jú vel þekkt fyrirbæri. Tala nú ekki um ef niðurferðin var erfið og mikið að bera.

 Ef þú segir sama hlutinn nógu oft, að ég tali nú ekki um, fáir fleiri í lið með þér við málflutninginn og setjir að auki á blað eða í bók, öðrum til eftirbreytni um aldur og ævi, í formi "How to live your life" notendahandbókar, er þessi vart mælanlegi hluti úr fermeter skinns í stórhættu, að tuðaranum skilst.

 Úr því tuðarinn er farinn að tala í flatarmáli, sundlar hann við tilhugsunina um alla "bibbana" sem búið er að skera framan af, gegnum tíðina. Hver veit hvað það eru margir fermetrar, hektarar, eða hvaða mælieiningu um forhúðarflatarmál skal nota. Hvað ef þetta var allt á misskilningi byggt? Klúðruð skilaboð af fjalli, eða annað óvænt eða misskilið? Það er jú dulítið síðan, ekki satt?

 Snarlega kastar tuðarinn þessum hugleiðingum fyrir róða, rennir upp, girðir sig og heldur á braut. Eftir situr umræðan, um með eða án og honum (tuðaranum altso) gæti ekki verið meira sama.

 "Bibbi" er og verður ávallt ósnyrtur í góðum höndum.

 Góðar stundir, með kveju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 5.3.2018 kl. 22:22

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Sammála nafni

Halldór Jónsson, 7.3.2018 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband