Leita í fréttum mbl.is

Trump

lætur ekki deigan síga þó að þingið reyni að bregða fæti fyrir vegginn við Mexico með því að skera niður fjármagn.

Þeir gleymdu því að Trump er yfirmaður heraflans. Hann ætlar að stöðva eiturlyfjaflóðið með tiltækum ráðum eins og hann sagði. Og hann leggur upp úr því að standa við orð sín. 

Finnst einhverjum að hann eigi að eyða tíma í að munnhöggvast við draghóruna Stormy Daniels? Verða stjórnmálamenn yfirleitt að eyða tíma sínum í að svara vitleysingum eins og okkar ráðherrar verða að standa í með vitfirrtar fyrirspurnirnar á Alþingi?

Trump er óvenjulegur maður.Ég geng með Trump húfu hér á Florida, Ítrekað hefur það gerst að bláókunnugir menn koma til mín og óska mér til hamingju með þessa húfu. Heima kvöddu menn mig því að ég yrði skotinn á færi ef ég sýndi mig með Trump húfuna hér í Bandaríkjunum, slíkar væru óvinsældir Trumps.

Rúv-og 101 liðið veit allt um bandarísk stjórnmál og Trump forseta.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Halldór,

Veggurinn hefur ekkert að gera með eiturlyf.  Hann er hugsaður til að fækka ólöglegum innflytjendum.  En þar sem þeir koma langt flestir löglega inn í landið þá hefur þetta veggjarugl fengið frekar lítin hljómgrunn þar sem eytt yrði tugum milljarða dollara af skattpeningum til einskis. 

Reyndar er landamæravarsla við syðri landamærin varla til á mörg þúsund kílómetra svæði þar sem lítil sem engin byggð er.  T.d. milli Laredo og Del Rio og svo Del Rio og El Paso.  Þetta er strjálbýlt og mjög hrjóstrugt landsvæði beggja vegna Rio Grande og lítill áhugi á löggæslu.  Innflytjendaeftirlit t.d. á I-35 eru marga kílómetra frá landamærunum.  Þar sem Mexíkóskir verkamenn, löglegir sem ólöglegir eru undirstaða landbúnaðar og ýmiss þjónustuiðnaðar í suðurhluta Bandaríkjanna, þá hefur þetta eftirlit einfaldlega ekki verið mjög effektívt í mörg ár.  

Eigðu góða daga í Flórída, það er notalegt þar á þessum árstíma :)

Arnór Baldvinsson, 7.4.2018 kl. 15:22

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þakka þéer fyrir Arnór gaman að heyra frá manni sem veit hvað hann er að tala um. Ég ætla mér ekki að blanda mér í stjórnarathafnir Trumps. En ég hlustaði á ræðuna hans um ópíoíóana og mér fannst honum vera alvara með það að reyna. Auðvitað er erfitt að komast af án vinnuafls innflytjenda, löglegra sem ó.

Ég man frá Darmstadt á tímum járntjaldsins þá bunaði austantjaldsfólk til Darmstadt að stinga Spargel, hvort sem það var lög-eða ólöglegt. Þetta bara þurfti og svo fór það bara aftur heim. Trump hefði ekki getað ráðið við það frekar en það sem þú lýsir enda held ég að hann kæri sig ekki neitt um að leggja steina í götu vinnandi fólks. Hann er mest að reyna að moka út  glæpamönnum í hópi ólöglegra. Eða er það ekki svo? 

Halldór Jónsson, 7.4.2018 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband