Leita í fréttum mbl.is

Hjóliðið !

og verið ekki að væla í okkur! Þið eigið að hjóla en ekki nota bíla, skiljið það ekki?

Þannig hugsar meirihluti Borgarstjórnar Reykjavíkur:

" Skrif­stofa eigna og at­vinnuþró­un­ar hjá Reykja­vík­ur­borg tel­ur nýja íbúa í Furu­gerði munu „geta nýtt reiðhjól sem sam­göngu­máta, til jafns við bif­reið, þar sem breyt­ing­ar á Grens­ás­vegi hafa leitt til betra aðgeng­is fyr­ir reiðhjól“.

Til­efnið er gagn­rýni íbúa í Furu­gerði á fyr­ir­hugaða þétt­ingu byggðar við göt­una. Málið varðar áform um að byggja allt að 37 íbúðir á lóðinni Furu­gerði 23 við Bú­staðaveg en þar var lengi gróðrar­stöðin Græna­hlíð. Fram kem­ur í bréfi borg­ar­inn­ar til íbúa að „strangt til tekið [sé] mögu­leiki á að fara upp í allt að 49 íbúðir á þess­um reit­um án þess að breyta aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur“.

Lára Sverr­is­dótt­ir, lög­fræðing­ur og full­trúi íbúa í Furu­gerði, seg­ir ekki hægt að túlka of­an­greint bréf borg­ar­inn­ar á ann­an veg en að þar sé því hótað að byggja 49 íbúðir í stað þeirra 4-6 íbúða sem aðal­skipu­lag ger­ir ráð fyr­ir."

"Vi alene vide" sögðu dönsku arfakóngarnir í dentid. Hjóliðið segir Dagur "BEggert-ti" eins og Friðrik 6-ti á undan honum

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Tóm della að fólk sem býr vestan Kringlumýrarbrautar í Reykjavík eigi ekki einkabíla og hatist við þá, enda eru þar einkabílar við hvert hús.

Gísli Marteinn Baldursson leigði kjallaraíbúð hjá öðrum frjálshyggjumanni, Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, sem einnig býr vestan Kringlumýrarbrautar í Reykjavík.

Enginn hefur bannað íbúum á höfuðborgarsvæðinu að fara á sínum einkabíl í vinnuna og með Borgarlínunni verður meira pláss en ella á akbrautum fyrir einkabíla á höfuðborgarsvæðinu.

Og meirihluti sveitarstjórnarmanna á höfuðborgarsvæðinu er fylgjandi Borgarlínunni, þar á meðal fjölmargir sjálfstæðismenn.

Og margir sjálfstæðismenn, þar á meðal borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, eru einnig fylgjandi því að Miklabraut verði í stokk frá Snorrabraut upp fyrir gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, þannig að gatnamótin verði mislæg.

En flokkseigendafélag Sjálfstæðisflokksins vill ekki þessa borgarfulltrúa.

Ungt fólk hjólar meira og ferðast meira með strætisvögnum en þeir sem eldri eru og hlutfallslega fátt ungt fólk kýs Sjálfstæðisflokkinn.

1.9.2015:

"Aðeins 5,9% kjósenda í aldurshópnum 30 ára og yngri segjast ætla að kjósa Framsóknarflokkinn og einungis 11,6% þeirra styðja Sjálfstæðisflokkinn."

Þorsteinn Briem, 1.5.2018 kl. 13:45

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að benda á að "Skrif­stofa eigna og at­vinnuþró­un­ar hjá Reykja­vík­ur­borg" er ekki meirihluti borgarstjórnar í Reykjavík. Og held að við Kópavogsbúar ættum nú að kannast ágætlega við þéttingu byggðar því unnið er henni víða í Kópavogi t.d. á Kársnesti og væntanlega á svæðingu frá Hamraborg og niður að Nýbýlavegi á næstu árum. Og Kópavogur þvi verið fylgjandi Borgrlínu eins og Halldór veit mæta vel og þar á meðal brú fyrir borgarlínu m.e. yfir Fossvoginn til að auðvelda fólki að lenda ekki í þeim umferðateppum sem t.d. myndast seinnipartin þegar allir Kópavogsbúar eru að koma sér heim ásamt Garbæingum og Hafnfirðingum. Og Hafnarfjarðarvegur annar ekki umferðinni.

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.5.2018 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband