Leita í fréttum mbl.is

Þetta þarf að stöðva

sem áframhaldandi aðför að Reykjavíkurflugvelli.

Svo segir í Mogga:

"Borgarráð hefur samþykkt að veita lóðavilyrði fyrir 200 íbúðum á þróunarreit í Skerjafirði, rétt við Reykjavíkurflugvöll. Um er að ræða Bjarg hses. sem fær leyfi fyrir 100 íbúðum og sömuleiðis fær Félagsstofnunar stúdenta lóð fyrir 100 íbúðir.

Vilyrðin eru veitt með fyrirvara um gildistöku deiliskipulags sem heimili lóðaafmörkunina og stað- festi byggingarréttinn.

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Skipulagssamkeppni var haldin um skipulag í Skerjafirði í fyrra og er verið að vinna að deiliskipulagstillögu á grundvelli niðurstöðu samkeppninnar. Tillaga ASK arkitekta, sem unnin var í samstarfi við Landslag og Eflu, var vinningstillaga í hugmyndaleitinn. Áætlanir gera ráð fyrir að allt að 1.400 íbúðir rísi á svæðinu auk 20.000 fermetra atvinnu- og þjónustuhúsnæðis. Húsin verða 2-5 hæðir. sisi@mbl."

Þarna verður girt fyrir stækkunarmöguleika Flugvallarins á fyllingu út í sjó sem blasir við.

Reykjavíkurflugvöllur virðist því eiga fáa vini þegar hér er komið sögu.

Nýr meirihluti mætti endurskoða þessa ráðstöfun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Guðni Ágústsson, fyrrverandi Alþingismaður og ráðherra, reit 26. apríl 2018 grein í Morgunblaðið, sem hann nefndi:

"Verður Reykjavíkurvöllur hrakinn burt og allt flug laskast ?":

"Það hefur verið ömurlegt að fylgjast með valdhroka meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur undir forystu Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, gagnvart flugvelli allra landsmanna í Vatnsmýrinni.  Og í rauninni fáheyrt, hvernig ríkisstjórn og Alþingi hafa án aðgerða horft á, hvernig verið er að þrengja að fluginu með því að ætla að byggja rándýr íbúðarhverfi allt í kringum völlinn.  Einn daginn verður svo hrópað: "Það er lífshætta að lenda flugvélum í Reykjavík, flugið verður að fara strax !"

Skipulagsvaldið er í höndum sveitarfélaganna, en um það eru mörg fordæmi, að þegar um almannahagsmuni er að ræða, eins og í þessu tilviki, þá leyfir Stjórnarskráin Alþingi að grípa til sinna ráða, ef gjörðir sveitarfélagsins stangast á við almannahagsmuni.  Þess vegna væri réttmætt, að Alþingi myndi setja lög um Reykjavíkurflugvöll til að festa þar 3 flugbrautir í sessi til framtíðar, enda hafa mælingar sýnt, að skýr meirihluti er í öllum kjördæmum landsins fyrir áframhaldandi starfsemi hans.

""Völlurinn gegnir mikilvægu öryggishlutverki fyrir flugsamgöngur landsins sem bezti varaflugvöllur millilandaflugsins." [Þetta hefur Guðni eftir Ingvari Mar Jónssyni, flugmanni, og efsta manni á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík.]  Hann segist oft sem flugmaður hafa stefnt þotunni frá ófærum Keflavíkurflugvelli í skjólið í Vatnsmýrinni og skilað farþegunum heilu og höldnu heim."

Ekki má gleyma ómetanlegri nytsemi flugvallarins fyrir sjúkraflugið í landinu.  Flugvöllurinn er steinsnar frá miðstöð bráðalækninga í landinu, Landsspítalanum, ásamt beztu Fæðingardeild landsins og annarri öflugri heilbrigðisþjónustu.  Það er ekki hægt að umbera slíkt ábyrgðarleysi, sem felst í að gera hlut þess fólks enn verri með stjórnvaldsákvörðun, sem lífsnauðsynlega þarf að komast fljótt undir læknishendur við beztu skilyrði, sem landið býður.  Ábyrgðarleysið felst í að loka Reykjavíkurflugvelli, sem er einhver versta stefnumörkun sveitarfélags gegn almannagagsmunum í manna minnum.  

Í lok greinarinnar birtist ákall Guðna til landsmanna um þetta efni:

"Ég bið alla landsmenn að hugleiða, hvers virði flugvöllurinn er öllu flugi og mannslífum í háska stöddum.  Flugvöllurinn er enn stærra kosningamál en nokkru sinni; nú snýst það um, hvort hann verður hrakinn eða ekki hrakinn á braut.  Brotavilji og ásetningur Dags B. Egertssonar og hans manna er einbeittur gegn flugvellinum, og þar með er allt flug í landinu sett í uppnám." 

 Syndin er lævís og lipur. Dagur B. og hans lið svífst einskis í Salami-stríðrekstri sínum gegn Reykjavíkurflugvelli og kemst upp með þa'ð vegna leti og sundurlyndis andstæðinganna. 

Halldór Jónsson, 10.5.2018 kl. 08:44

2 identicon

Það segirðu satt. Þetta er hin versta einræðisstjórn, sem við höfum þurft að þola allan þennan tíma. Vonandi tekst Eyþóri Arnalds og Vigdísi Hauksdóttur að vinda ofan af þessu rugli, sem hefur viðgengist hér alltof lengi með tilheyrandi fjármálaóreiðu, loka þessu Legolandi Dags og kó, og fara að gera eitthvað af viti í borgarstjórninni. Það er meira en kominn tími til. Þetta getur ekki gengið svona mikið lengur. Það sér hver heilvita maður. Vonandi tekst okkur að koma þessu jólasveinaliði, sem nú sitja í stjórnarstólunum, út þaðan 26. maí nk., og hefði mátt vera fyrr. Mál er að linni þessum vinnubrögðum, sem hafa viðgengist hér alltof lengi.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2018 kl. 10:23

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Sá sem lætur kjósa sig til alvöru verka og situr svo hjá, það er rola, skítseyði sem aldrei á að kjósa aftur.

Hrólfur Þ Hraundal, 10.5.2018 kl. 10:36

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Tillaga Höskuldar Þórs Þórhallssonar, þess efnis að skipulagsvald sveitarfélaga, sem eru með alþjóðaflugvöll innan sinna marka, yrði tekin af þeim og fært yfir til ríkisins, var sú besta sem hefur sést.  En einhverra hluta vegna var sú tillaga SVÆFÐ.  Ef mönnum hefði borið GÆFA til að samþykkja hana VÆRI ÞETTA LEIÐINDAMÁL EKKI Á DAGSKRÁ ENN ÞANN DAG Í DAG.

Jóhann Elíasson, 10.5.2018 kl. 11:57

5 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Er svo sammála ykkur öllum.

En hvernig stendur á því Ríkisstjónrn Íslands

gerir ekkert í málunum..???

Gæti verið, að það henti ekki einhverjum sem þar situr..??

Eigum við endalaust að horfa uppá sirkus, sem til

þess er eins gerður, svo ákveðnir hópar eða

fjöldskyldur geti endalaust grætt á græðginni.??

Já, það er stór spurning af hverju Ríkisstjórn Íslands

gerir ekki neitt.!!

Drullupotturinn er svo stór.

Eigum við að trúa því að hagsmunir sumra útvaldra

ráði ríkjum og hafi áhrif á þá sem stjórna..??

Enginn vill trúa því, en allt sem kemur að

Íslenskri pólitík hefur sýnt það og sannað að

við erum með því spilltara sem fyrir finnst.

Það er eitthvað mikið að á eyjunni Íslandi.!

Innan við 10% þjóðarinnar eiga 90% af okkar

þjóðarauð..!! Segir það ekki allt....

Sigurður Kristján Hjaltested, 10.5.2018 kl. 19:19

6 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Sigurður Kristján Hjaltested !

Það tók mig liðlega 50 ár: (f.1958) að átta mig á, að vinir Halldórs Verkfr. og merks síðuhafa, hafa gert Ísland að einhverju allra versta glæpa- og sorphauga bæli mannlegs lífs :: norðan Alpafjalla / sem og austan Grænlands ála.

Þar bera mestu ábyrðgðina - svokallaður Sjálfstæðisflokkur Halldórs, auk allra hinna með rangnefnin : Framsóknarflokks / Samfylkingar og hinna mjög svo og ört vaxandi hötuðu Vinstri grænna:: Marx- Lenínista ómenna, sem eru nú ein allra vinsælustu lagshjú flokkssytskina Halldórs fornvinar okkar Verkfr.

Annað hvoru tveggju: eru elliglöp farin að sækja svo mjög að Halldóri / að hann átti sig hreinlega ekki á hinni hröðu hrörnunarþróun samfélagsins:: þegar einhverjir almestu óþokkar seinni tíma Íslandssögu, þeir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson komust að, árið 1991, til þess að brugga landsmönnum Evrópusambands ólyfjanina (þó Davíð: vilji alls ekki kannzt við það í dag) og eða: að Halldór kjósi einfaldlega að skauta fram hjá öllum raunveruleika, í sefjunar djúpri tilbeiðzlunni, á flokks ómyndinni, suður í Valhöll við Háaleitisbrautina, í Reykjavík.

Nema - hvorutveggju sé um að kenna Sigurður Kristján.

Alla vegana: getur Halldór ekki annað en viðurkennt, skemmdarverk Engeyinganna:: helztu valhoppara Valsmanna hyskis Dags B. Eggertssonar suður á Reykjavíkurflugvelli, en höfuð- undirrót íslenzkra stórra vandamála okkar samtíma, er segulmögnun Davíðs stórmennzku brjálæðis tímabilsins, við þann sora, sem af undirheima starfsemi Engeyinga og ýmissa attníossa þeirra hefur leitt yfir landsmenn, og eru stóru Bankaránin frá Haustinu 2008 aðeins einn partur, þeirrar ógæfu.

Munum bara Sigurður minn.

Að gjalda Sjálfstæðisflokknum atkvæði: sem og vinaflokkum hans hinum, er viðlíka óhapp / eins og láta innbrotsþjóf hafa lyklavöld að persónulegum hýbýlum ærlegs fólks.

Á þetta er ég illþyrmilega minntur - í viðureign minni við Lífeyrissjóða þjófa bælin þessa dagana t.d., þegar helztu fjölmiðlar landsins kinoka sér við, að birta gögn mín, þar að lútandi.

Sigurður Kristján !

Látum okkur ekki bregða: þó við (þú og ég), auk annarra ærlegra samborgara þurfum að fara ganga vopnaðir um dagana hábjarta, sem og rökkurstundir sólarhringsins, sökum mjög svo vaxandi glæpa öldunnar í landinu, í boði Bjarna bandítts Benediktssonar og terrorista lýðs hans / hinna ýmsu flokka og annarrs konar ófénaðar, sem flest þolir ekki dagsbirtuna, hvað þá skæra geizla Snemmsumars Sólarinnar, þá sjaldan birtast hér, á þessu eyríki, fornvinur góður.

Með ágætum kveðjum - þó svo þungur sé undirtónninn, og það því miður ekki að ástæðulausu, af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.5.2018 kl. 20:04

7 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Já sæll Óskar Helgi.

Það ekkert verið að skafa af því.:)

Auðvitað veit alþjóð hvernig soðið er

i pottunum.

Það kraumar og svo sýður upp úr.

Hrunið 2008 er ekkert búið fyrir meiri hluta

alþýðu. Ennþá er verið að bera út fjöldskyldur og

það ólöglega og allt í boði ríkisstjórnar sem hefur engvan

áhuga á því að leiðrétta þann ógjörning.

Dómstólar landsins spila svo með, þannig að almenningur

á sér ekki vonar völ.

Réttarríki..!!! Ekki til.

Þetta er sorgarríkið Ísland.

Tek heilshugar undir með þér varðandi

lífeyrissjóðs spillinguna. Ef þú nefnir

þetta erlendis, þá spyrja menn undanteknigarlaus

hvort maður sé að ljúga.

Svo einfallt er það.

Sigurður Kristján Hjaltested, 10.5.2018 kl. 20:31

8 identicon

Komið þið sæl - á ný !

Sigurður Kristján !

Þakka þér fyrir: drengilegar undirtektirnar.

Við Hægrisinnaðir Hernaðarsinnar - sem erum fyrir löngu búnir að fá fullkomna ímugust á lið- ónýtum embættis og stjórnmálamönnum í okkar samfélagi, þyrftum að fara að huga að almennri endurreisn:: eins og í anda gamla Herstjórans okkar, Chiang´s heitins Kai- shek (1887 - 1975), t.d., sem dreif upp Kínverska Lýðveldið á Taíwan, þrátt fyrir hrakfarirnar gegn Maóistunum á meginlandi Kína, forðum.

Enda: hefur Taíwan skarað fram úr, á hinum ýmsu sviðum viðskipta og allrahandanna framþróunar, að öðrum nágranna ríkjum sínum ólöstuðum í Austur- Asíu, undanfarna áratugi, með ágætum.

  Myndaniðurstaða fyrir chiang kai shek

Chiang Kai- shek (1887 - 1975)

Með beztu kveðjum - að þessu sinni /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.5.2018 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband