Leita í fréttum mbl.is

"Gangandi og hjólandi"

slagorðið sem þeir Dagur B. og Hjálmar Sveinsson hafa komið inn í málið er farið að vinna stórtjón á allri umferðarhugsun manna. Það er tönnlast svo á þessu, Dag eftir dag að það er komið inn í huga fólks að hér sé um eitthvað stórhlutfall umferðar að ræða. Sannara er að þessi umferð er svo lítilvæg og skilar svo litlu í kílóum til flutningaþarfar þjóðarinnar að það er aukaatriði en ekki aðalatriði.

Einar Björn Björnsson bloggar tímabært um nauðsyn bílabrúar yfir Fossvog frá Kársnesi yfir að Flugvelli sem nú er farið að gæla við samkvæmt "Gangandi-hjólandi"músarholu hugtakinu. Sú umræða öll er í skötulíki og tekur ekki á þeim vanda sem þarf að leysa. Flutningum nútíma þjóðfélags á vöru og þjónustu.

Þarna verður að byggja fjórbreiða brú yfir og vegur sunnan flugvallar liggi  inn til Reykjavíkurhafnar, í undirgöngum undir nýja NA braut út í Skerjafjörð og svo eftir þörfum. Ég veit ekki hversu þýðingarmikið það er að einhver skip komist undir þessa brú inn í Fossvog en það gerir þetta allt dýrara.

Frá Kársnesi þarf líka að koma brú yfir í Arnarnes og svo þaðan upp í Gálgahraun. Allt saman fjórbreiðar brautir í byrjun. 

Þetta "Gangandi-hjólandi" slagorð Dags B. og Hjálmars tröllríður umræðum um samgöngur á Íslandi. Þessi trafík er bara aukaumferð og heilsubót og hefur ekkert með hina raunverulegu flutningaþörf að gera. Þeir hafa látið eins og hugtakið sé aðalatriðið í umferð fólks sem það er auðvitað ekki. Þeim hefur tekist að gegnsýra hugsanir allt of margra með svona innihaldslausu tali um aukaatriði.Ísland er ekki til hjólreiða fallið nema sem sport og heilsubót.

Göngufólk og reiðhjól flytja ekki fisk eða varning milli staða


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

"Ekkert með hina raunverulegu flutningaþörf að gera." 

Jæja. Undanfarin þrjú ár hef í í rólegheitum flutt meira en helming allrar minnar persónulegu flutningaþarfar yfir á rafreiðhjól og létt vespuvélhjól Honda PCX 125cc, svo að ekki hefur fallið vika úr. 

Farið tvisvar sinnum stóra hringinn og einu sinni Vestfjarðarhringinn á Hondunni með eyðslu upp á 2,5 lítra á hundraðið og síðari tvo hringina hafði ég á hjólinu hljómflutningskerfi sem nægði fyrir hljómleika í samkomuhúsum. 

Núna hefur tveggja sæta 760 kílóa rafbíll bæst við til að ná vistsporinu niður um 65 prósent og spara bæði gjaldeyri í bensínkaupum og rými í umferðinni. 

Ómar Ragnarsson, 30.5.2018 kl. 08:50

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Leiðrétting: Ná vistsporinu niður um 85 prósent. 

Ómar Ragnarsson, 30.5.2018 kl. 08:51

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ómar, flutningar einstaklinga á vörum til eigin nota eru bara brotabrot þeirra flutninga sem fram fara dag hvern. Því breytir litlu þó einstaklingnum takist að flytja allt að helming þeirra vara sem hann notar, á vespu.

Staðreyndin er að stærsti hluti mengunar frá farartækjum á höfuðborgarsvæðinu kemur frá öðrum farartækjum en einkabílnum. Þar eru t.d. strætisvagnar drjúgir, en mesta skelfingin er að lenda eftir þeim í þungri umferð. Jafnvel þó gætt sé að því að hafa alla glugga lokaða og inntak miðstöðvar stillt á hringrás, smýgur pústfýlan inn í bílinn hjá manni.

Gunnar Heiðarsson, 30.5.2018 kl. 09:58

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Flest farartæki eru ágæt til þess sem þau eru byggð til. En þó að Ómar segist afkasta öllum sínum fluttningum með reiðhjólum, þá er það svo að þegar ég fór austur á Voppnafjörð sem unglingur að vinna, þá fór ég með bát og síöar með rútu og var þó ágætur að hjóla og átti skellinöðu.

Til Neskaupstaðar flutti ég með flugvél, og þegar ég flutti vestur um 30 árum síðar þá var allt okkar hafurtask flutt á tveimur bílum og kerru sem var hengd aftan í öflugan jeepa og það sem ekki komst í kerrunna, var flutt í löngum benskálfi og hjólið með enda ég enþá ágætur að hjóla. 

Þegar ég snéri aftur austur um 25 árum síðar þá dugði jeepi hvergi til að draga þá kerru og því valin þungur öflugur pikkup til þess verks og er ég þó enþá ágætur að hjóla. 

Við hjónin förum stundum landrúnt eða hálfan að heilsa uppá vini og ætingja, en líka af ástæðum sem öldrun veldur. Til slíkra ferða nota ég tæki sem gömul reynsla segir mér að dugi og veiti konuni minni þau þægindi og öryggi til að ferðalagið verið ekki að plögun einhverstaðar í skafli.

En í því sambandi kemur boð um sæti á böglabera reiðhjóls ekki til greina þó ég sé enþá ágætur að hjóla. 

Hrólfur Þ Hraundal, 30.5.2018 kl. 12:44

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Gunnar, þu skilur málið.

Skemmtleg frásögn Hrólfur sem þín er von og vísa.

Er Ómar eitthvað að missa grínið á gamlasaldrinum? Hann sem var nú allra manna spaugsamastur og lét mann veina? Er fattarinn eitthvað a' draaastsaman?

Halldór Jónsson, 30.5.2018 kl. 16:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband