Leita í fréttum mbl.is

Segir þetta allt sem þarf?

um starfsheim hæstvirts þingmanns Björns Levís Gunnarssonar?

reglurbjörnlevi

 Björn Leví hefur vakið á sér athygli  fyrir mikla fróðleiksfýsn á Alþingi. Bersýnilega finnur hann til mikillar vanþekkingar sjálfur og vill því fá fræðslu um alla mögulegar hliðar þingmennskunnar.

 

Nú síðast lagði hann þessa fyrirspurn til hins reynda þingmanns Steingríms J. Sigfússonar.

Ef fólk leggst nú í innhverfa íhugun á því hvaðan Steingrímur getur sótt þessar upplýsingar fyrir Björn og hvernig hann geti breytt þeim úr óskráðum reglum í skráðar, þá rekur maður sig á horn.

Er ekki átakanlegt að horfa á hvernig þessi þingmaður metur tilgang starfa Alþingis? Segir þessi fyrirspurn allt sem þarf?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að við ættum ekki að gera grín að þessum sjálfsagða rétti þingmanna að leggja fram fyrirspurnir.  Þetta er mikilvægur þáttur í starfsmeni þingsins.  Þetta er ein leið sem löggjafarvaldið hefur til að fylgjast með störfum og starfshætti framkvæmdarvaldins.  Höldum gríninu í skefjum og virðum lýðræðið.

Og áður en einhver fer að bendla mig við vinstri mennsku þá má geta þess að ég hef stutt Sjálfstæðisflokkinn.

Hilmar (IP-tala skráð) 2.6.2018 kl. 14:37

2 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Þar sem maðurinn spyr um óskráðar reglur fer best á því að hann fái óskráð svör.

Þórhallur Pálsson, 2.6.2018 kl. 14:57

3 identicon

Var ekki siðasta "fyrirspurn" Bjössa beiðni um tölfræði yfir hvenær barn bítur hund?

Grímur (IP-tala skráð) 2.6.2018 kl. 15:31

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Bara svona til athugunnar. Réttur þingmanna liggur til launa fyrir það að vinna verk sín vel, í þeim tilgangi að þingstörf gangi snurðulaust fyrir sig til hagsbóta fyrir land og líð.

Menn sem eru svo upptekknir af sjálfum sér að þeir skilja þetta ekki, ættu ekki að vera á Alþingi.

Hrólfur Þ Hraundal, 2.6.2018 kl. 21:10

5 Smámynd: Daníel Sigurðsson

Halldór, það týðkast víst að ávarpa óbreyttan þingmann háttvirtur þingmaður en ráðherra hæstvirtur ráðherra, ekki satt. Ég held að þetta séu skráðar reglur.

Daníel Sigurðsson, 2.6.2018 kl. 23:03

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég held að Björn Leví sé fastur á átjándu öldinni, þegar menn töldu að öllum heimsins fróðleik mætti koma fyrir í alfræðiorðabókum.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.6.2018 kl. 23:43

7 identicon

Sæll Halldór - sem og aðrir gestir, þínir !

Halldór: og þið aðrir, hér að ofan !

Vanmetum ekki: hina jákvæðari eiginleika Björns Leví´s, þrátt fyrir kunna Pírata annmarka hans.

Hann kom þó af stað - LÖNGU tímabærri umræðunni, um svindl og Benzín þjófnaði Ásmundar ökumanns Friðrikssonar / sem og: hinn illræmda húsnæðis kostnaðar þjóf, Steingríms J. Sigfússonar, eins kunnasta lagsmanns Ásmundar, í prívat sjálftökunni (frá 1983:: Steingrímsins dæmið), úr skúffum Helga Bernódussonar, hins 1/2 og al- sofandi skrifstofustjóra alþingis meðfram því, að Björn Leví hefur sýnt lit á áhuga, að liðsinna mér og öðrum, sem erum að reyna að kljást við ræningja bæli Lífeyrissjóðanna, að nokkru.

Hins vegar: mætti Björn Leví fara að hrækja hraustlega í lófa sína, til þess að fylgja sínum málum eftir, sem að ofan greinir, hann þarf líka að punda á útgerð Bessastaða fígúrunnar Guðna Th. Jóhannessonar / sem og Byskuppu frenjunnar Agnesar M. Sigurðardóttur (Þriggja Miljóna Króna Eingreiðzlu konunnar:: þið munið), ekki síður en annað það innfædda pack, sem lifir og hrærist á gripdeildum, úr vösum almennings, ár og síð.

Er svo ekki tímabært - að fara að leita Færeyskrar / eða þá Danskrar eða annarra landa handleiðzlu, um innri stjórnun mála, hér á landi úr þessu, piltar ???

Með ágætum kveðjum: engu að síður, af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 3.6.2018 kl. 17:54

8 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ræðandi um gripdeildir, þarf fyrst og síðast að fjalla um "stórhuga" rán stóru flokkanna úr ríkissjóði og úr vösum allra skattgreiðenda með hinum gífurlega háu styrkju ríkisins (á beina ábyrgð svínslega hagsmunatengdra alþingismanna) til flokkskrifstofa flokkanna (allra sem eiga menn á Alþingi), sjá hér: https://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/2217953/  og hér í hlífðarlausum orðum Gunnars Smára Egilssonar í því sem tvímælalaust má kalla viðtal vikunnar (í liðinni viku), allt viðtalið hér: ) http://utvarpsaga.is/segir-styrki-til-stjornmalaflokka-vera-misnotkun-a-almannafe/

En ekki ver ég hina vanhæfu biskupsnefnu á háu laununum, en í lágu leigunni í stóra húsinu, Óskar Helgi!

Jón Valur Jensson, 4.6.2018 kl. 14:45

9 identicon

Sælir: á ný !

Jón Valur !

Ekkert nema gott um að segja: að þú viljir vera sjálfum þér samkvæmur, í gagnrýninni á þennan sóðaskap sem:: því miður, vinur okkar Halldór síðuhafi m.a. reynir að verja, út í 1 

Löngu tímabært - að virkja Lögreglu / Landhelgisgæzluliða og Tollheimtumenn til avarlegra aðgerða, gagnvart þinghúss liðinu, og áhangendum þess, eigi ekki mun verr að fara í samfélaginu, en orðið er:: nú þegar.

Með sömu kveðjum: sem seinustu /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.6.2018 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 3418314

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband